02.12.1975
Sameinað þing: 27. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 936 í B-deild Alþingistíðinda. (558)

47. mál, útflutningsuppbætur á landbúnaðarafurðir

Fyrirspyrjandi (Vilborg Harðardóttir):

Herra forseti. Þegar samþykkt var sú breyting á lögum á síðasta þingi að þeir, sem hljóta uppbót á elli- og örorkulífeyri, verði undanþegnir afnotagjöldum fyrir síma, lá sú hugsun að baki hve þörfin fyrir síma er brýn hjá mörgu af þessu fólki sem býr eitt á heimilum sínum, bæði til að hafa eðlileg tengsl við umhverfi sitt og einnig í öryggisskyni, t. d. ef um er að ræða snöggleg veikindi.

En símgjöld eru erfiður baggi fólki með þurftartekjur, ekki síst eftir 35% hækkunina sem á þeim varð fyrir ekki alllöngu, og raunar svo stór útgjaldaliður að margir fleiri en lífeyrisþegar treysta sér vart lengur til að hafa síma. Þegar við bætist stórfelld kjaraskerðing vegna verðhækkana á nauðsynjavörum, á sama tíma og lífeyrir hækkar lítið sem ekkert, er augljóst um hve mikið sanngirnismál hér er að ræða. Um það urðu hv. þm. líka sammála á síðasta þingi er þeir samþykktu lagabreytingu þess efnis að undanþiggja hóp lífeyrisþega afnotagjöldum af síma. En þar sem ég hef ekki orðið vör við neinar tilkynningar frá opinberum aðilum um þetta mál, leyfi ég mér að spyrja hæstv. samgrh.: Hvað líður framkvæmd laganna? Hefur reglugerð samkvæmt þeim verið samin?