15.10.1975
Neðri deild: 6. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 36 í B-deild Alþingistíðinda. (59)
7. mál, almenningsbókasöfn
Gylfi Þ. Gíslason:
Hæstv. forseti. Auðvitað er það rétt sem hæstv. menntmrh. sagði í ræðu sinni áðan og hæstv. fyrrv. menntmrh. undirstrikaði í fáum orðum sínum að venjuleg starfsregla er sú að byggja fjárveitingar í fjárlagafrv. á gildandi lögum. Hins vegar er mér ekki ljóst hvaða nauður rak hv. þm. til þess að verja jafnfurðulega framkomu og hér átti sér stað af hálfu hæstv. ríkisstj. þegar á fyrsta raunverulegum starfsdegi þingsins. Ég segi nú það eitt án þess að vilja lengja þessar umr.: Það gefast nóg tilefni til þess að ræða stefnu ríkisstj. í efnahagsmálum og fjármálum yfirleitt síðar. Þá er málstað ríkisstj. illa komið ef hv. þm. finnur til þess, þó að hann hafi nýlega verið í ríkisstj., að nauðsyn sé að koma henni til hjálpar í máli eins og þessu. Sannleikurinn er sá, að það og það eitt, sem ég var að vekja athygli á, eru í hæsta lagi undarleg vinnubrögð, að hæstv. ríkisstj. skuli samdægurs leggja fram þskj. nr. 1 og þskj. nr. 7 sem er á svo augljós munur sem hér á sér stað. Ef hæstv. ríkisstj. meinar eitthvað í alvöru, sem ég vona að hún geri og vona að hún geri með árangri með flutningi frv. um almenningsbókasöfn, þá hefði hún átt að sýna á því einhvern lit í fjárlagafrv. að hím meinti í alvöru að frv. um almenningsbókasöfn næði fram að ganga. Þegar um jafnstórkostlegan mun, kannske fimmfaldan mun er að ræða á raunverulegum till. um fjárveitingu og því sem gert er ráð fyrir í frv. um ákveðið svið, mikilvægt svið í menningarmálum, þá fannst mér það satt að segja augljós vitnisburður um að ríkisstj. væri ekki öll þar sem hún væri séð, að hún meinti ekki alltaf það sem hún segði, að það væri ekki mark takandi á þeim plöggum sem hún legði fyrir Alþ., ekki á fyrsta degi — og hvað á maður þá að halda um 10. daginn eða 30. daginn eða það sem hún kann að segja sem sitt síðasta orð þegar fjárl. verða afgreidd? Það var þetta augljósa misræmi í mikilvægum þskj. fyrsta þingdagsins sem hlaut að vekja athygli mína og annarra þm. Á þessu hlaut ég að vekja athygli. Eða eigum við von á áframhaldandi tali og gerðum á næstu víkum og mánuðum þingsins eins og þessi tvö þskj. bera vott um?
Ég endurtek aðeins það sem ég sagði í lok orða minna áðan, ég vona að þetta sé ekki fyrirboði þess, sem við eigum eftir að heyra af vörum hæstv. ríkisstj., hvað þá þess, sem við eigum eftir að reyna af gerðum hennar.