03.12.1975
Efri deild: 17. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 977 í B-deild Alþingistíðinda. (595)

87. mál, lax- og silungaveiði

Flm. (Steingrímur Hermannason):

Herra forseti. Á þskj. 97 flyt ég ásamt þremur öðrum hv. þm. frv. til l. um breyt. á lögum nr. 76/1970, um lax- og silungsveiði. Það er ekki hægt að segja, að frv. þetta sé nýtt hér í d. Það hefur verið flutt á þremur þingum áður, 93., 94. og 96. löggjafarþingum. Frv. fjallar um að nema úr lögum ákvæði sem nú er í 14. gr. laga um lax- og silungsveiði, þar sem slík veiði er heimiluð í sjó, þar sem laxveiði í sjó hefur verið metin sérstaklega til dýrleika á fasteignamati, eins og þar segir.

Fyrir þessu frv. hefur verið gerð allítarleg grein í þessari hv. d. og ég get því haft orð mín fá. Ég vil aðeins leggja áherslu á þetta atriði: Við íslendingar höfum haft forustu um skynsamlega meðferð á laxveiði í sjó. Við höfum beitt okkur fyrir sem mestri friðun þar. Okkur hefur tekist hér í okkar landi að auka laxgöngu í ár og þykir mörgum það til fyrirmyndar. En því er ekki að neita, að það ákvæði, sem hér um ræðir, hefur valdið nokkrum erfiðleikum. Það hefur valdið deilum manna á meðal. Það hefur verið klögumál um misnotkun og fleira og samræmist ekki þeirri stefnu okkar íslendinga að koma í veg fyrir laxveiði í sjó. En það er fyrst og fremst með þetta í huga sem frv. hefur verið flutt á þessum þingum öllum.

Hv. landbn. hefur hafi frv. til meðferðar og nú haft það svo oft og svo ítarlega að ég leyfi mér að treysta því, að hún sjái sér fært að afgr. það á þessu þingi. Hitt skal ég viðurkenna, að frv. hefur oft verið seint fram lagt. Nú er það lagt fram snemma þings og vænti ég að tími verði því nægur til afgreiðslu þessa máls á þessu þingi.

Að lokinni þessari umr. legg ég til að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. landbn.