03.12.1975
Efri deild: 17. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 978 í B-deild Alþingistíðinda. (597)

43. mál, meðferð einkamála í héraði

Frsm. (Ingi Tryggvason) :

Herra forseti. Mál þetta var til umr. í Ed. á síðasta þingi og hlaut afgreiðslu úr d. með nokkrum breytingum. Allshn. hefur á ný fjallað um mál þetta og orðið sammála um að mæla með samþykkt þess og mun flytja við 3. umr. sömu brtt. eða svipaðar og þær sem fluttar voru á síðasta þingi.