03.12.1975
Neðri deild: 20. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 986 í B-deild Alþingistíðinda. (611)

Umræður utan dagskrár

Karvel Pálmason:

Virðulegi forseti. Ég ætlaði mér ekki að taka þátt í þessum umr., en ástæðan fyrir því að ég hef kvatt mér hljóðs er sú að hv. þm. Jón Skaftason kom hér inn á atriði sem ég vildi aðeins frekar ræða um. En áður en ég kem að því vil ég aðeins segja það, að það atriði, sem er upphaf þessara umr. hér, eins og hv. þm. Sighvatur Björgvinsson gerði að umræðuefni, er auðvitað enn eitt dæmið um það með hversu óskynsamlegum hætti hæstv. ríkisstj. stendur að framkvæmd landhelgismálsins. Það virðist vera svo, því miður, að það sé farið að framkvæma samkomulag áður en það er meira að segja lagt fyrir landhelgisnefndina og því síður að því er virðist vera Alþ. sjálft. Þetta er auðvitað óskynsamleg meðferð máls. En nóg um það.

Eins og hv. þm. Jón Skaftason kom inn á, þá átti það sér stað snemma í gærmorgun á Vestfjarðamiðum, út af Straumnesi, að Árvakur halastýfði þar einn veiðiþjóf breskan. Að því er fréttir herma voru kringumstæður þær að þessi breski veiðiþjófur var með trollið á síðunni, og ég hef velt því fyrir mér sem leikmaður og sjálfsagt hefur fjöldinn allur annarra manna velt því fyrir sér sem leikmenn hvort hér hafi ekki verið það tækifæri sem best hefur gefist til þess að handtaka veiðiþjóf. Mér sýnist, án þess að ég vilji neitt um þetta fullyrða, — ég tek það fram, þetta eru aðeins hugleiðingar sem ég hef gert með sjálfum mér, — mér finnst ekki ólíklegt að ætla, eftir því sem atburðum er lýst, að hér hafi kannske verið hvað best tækifæri til þess að handsama veiðiþjóf. Ég vildi því allra vinsamlegast að sjálfsögðu beina því til hæstv. dómsmrh. hvort hann gæti eitthvað upplýst um það hér hvort tilraun hafi verið gerð til þess að handsama þennan veiðiþjóf, — hafi svo ekki verið, hvaða ástæður það hafi þá fyrst og fremst verið sem mönnum sýndust koma í veg fyrir að slíkt gæti gerst. Ég er ekki í neinum vafa um það, a. m. k. vona ég að menn hafi hugleitt hvort ekki væri hér tækifæri til þess að handsama einn af þessum bresku veiðiþjófum.

Ég vildi mjög gjarnan spyrja hæstv. dómsmrh. um hvort það hafi verið eitthvað sérstakt sem kom í veg fyrir að það væri hægt að bandsama þennan togara og færa hann til hafnar. En eins og ég segi, ég vil ekki fullyrða hér um þetta, en að því er manni hefur skilist á fréttaflutningi af þessum atburði, þá virðist manni sem þessi breski veiðiþjófur hafi verið nokkuð bjargarlítill eða bjargarlaus, eins og þær kringumstæður voru sem þarna er um að ræða. Þess vegna vek ég máls á þessu hér, hvort hæstv. ráðh. gæti eitthvað upplýst frekar um ástæður fyrir því að ekki var lengra gengið en raun bar vitni með því að klippa á troll togarans.