03.12.1975
Neðri deild: 20. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 987 í B-deild Alþingistíðinda. (612)

Umræður utan dagskrár

Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Skipherrar varðskipanna gera skriflega skýrslu um hvern slíkan atburð sem þennan. Ég hef ekki séð enn þá skýrslu skipherrans sem hér er um að ræða. Það þarf náttúrlega ekki að taka það fram að ég stend ekki í daglegu sambandi við varðskipin, heldur er það Landhelgisgæslan eða stjórnstöð hennar í landi. Ég skal þess vegna ekkert fullyrða um það hvernig atvikum þarna hefur verið háttað. En hitt vil ég segja, að varðskipsforingjar vita að það er minn vilji og fyrirskipanir að þeir taki brotleg skip hvenær sem þeir telja sér það fært án þess að stofna sínu skipi eða mannslífum í voða. Ég tel mig þekkja dugnað skipstjóranna það vel, að ég tel að það hafi sjálfsagt eitthvað verið þarna sem hefur verið þannig vaxið að þeir hafi ekki talið fært að eiga við þetta. En sem sagt, skýrsla kemur um þennan atburð og þá verður nánar hægt að skýra það út.