15.10.1975
Neðri deild: 6. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 38 í B-deild Alþingistíðinda. (62)

7. mál, almenningsbókasöfn

Benedikt Gröndal:

Virðulegi forseti. Ég kveð mér hljóðs út af spurningu hv. síðasta ræðumanns og vil gefa honum þá skýringu að þetta orð hefur á síðustu árum verið tekið upp í vaxandi mæli og er átt við það sem á flestum nágrannamálum okkar er kallað „audiovisual“ tæki. Það hefur ekki verið til sameiginlegt orð og ég hygg að þetta orð hafi fyrst komist í umferð í kennarastofu Kennaraháskólans og hafi síðan breiðst nokkuð út og mörgum þótt að það væri hreint ekki svo slæmt. Við fylgjum hér íslenskri hefð að leita eftir orði í fornu máli, eins og hæstv. ráðh. skaut hér fram í, og gefa því nýja og tæknilega merkingu. Nýsitæki eru hvers konar tæki sem nota myndtækni eða hljóðtækni. Það geta verið skuggamyndavélar, vissar tegundir af kvikmyndavélum, t. d. 8 mm kvikmyndavélar, og þá sérstaklega þær sem nota hylki eða „kasettur“, það geta verið segulbönd, hljóðsegulbönd og myndsegulbönd og oft samsetningar af hvoru tveggja. En það er einkenni á bókasöfnum nútímans að allt þetta er þar komið inn, og sá, sem leitar sér upplýsinga eða rannsakar mál í nútímabókasafni, getur alveg eins fundið þær upplýsingar í prentuðu máli eða varðveittar á myndrænan eða hljóðrænan hátt á einhverju af þessum tækjum.

Þegar grunnskólalögin voru afgreidd var þar sett ákvæði um bókasöfn, þar sem gert var ráð fyrir öllu þessu, og mig minnir að orðið hafi a. m. k. borið á góma hér þá. Þar að auki er þetta orð notað í því frv. sem er 8. mál og ekki er á dagskrá í dag, það er frv. um námsgagnastofnun. Ég vil vænta þess, að hv. síðasti ræðumaður, sem er orðhagur og íslenskumaður góður íhugi þetta og ef hann getur ekki sætt sig við orðið komi þá með annað betra.