08.12.1975
Efri deild: 19. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 998 í B-deild Alþingistíðinda. (645)

33. mál, ríkisreikningurinn 1973

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen) :

Herra forseti. Frv. til l. um samþykkt á ríkisreikningi fyrir árið 1973, á þskj. 36 liggur hér fyrir til 1. umr. Þá hefur einnig verið lagt fram og tekið til 1. umr. frv. til fjáraukalaga sama árs og hefur verið gerð grein fyrir því frv. í Sþ.

Aðalyfirlit A-hluta ríkisreiknings fyrir árið 1973 var afhent þm. vorið 1974 og reikningurinn í heild með sundurliðunaryfirlitum A-hlutans og öllum yfirlítum B-hlutans, frágengin af hálfu ríkisbókhaldsins til meðferðar hjá yfirskoðunarmönnum Alþ., afhentur þm. í okt. 1974. Yfirskoðunarmenn gerðu fsp. í sjö liðum og birtu auk þeirra yfirlit um innheimtu embætta fyrir ríkissjóð skv. bókhaldi ríkisbókhaldsins fyrir árið 1973 með hliðstæðum hætti og áður hefur verið gert. Svör við þeim fsp. telja yfirskoðunarmenn ýmist fullnægjandi eða rétt að viðkomandi atriði verði til athugunar. Till. sínum skiluðu yfirskoðunarmenn í maímánuði s. l. og vannst því ekki tími til að taka reikninginn til meðferðar hér á Alþ., en honum var hins vegar dreift meðal þm. Ég leyfi mér að vísa í aths. og till. yfirskoðunarmanna í ríkisreikningi og tel ekki ástæðu að svo stöddu til að gera sérstaka grein fyrir þeim.

Við 1. umr. fjárlagafrv. fyrir árið 1975 gerði ég grein fyrir afkomu ríkissjóðs á árinu 1973 skv. ríkisreikningi og lagði jafnframt fram grg. ríkisbókhaldsins þar um. Með frv.til fjáraukalaga fyrir árið 1973 gerði ég stutta grein fyrir helstu frávikum reiknings og fjárl. ársins 1973 og tel ég því ekki ástæðu til þess nú að rekja efni þessa frv. að öðru leyti en því að geta stærstu liða A-hluta ríkisreikningsins.

Ég vil vekja athygli á tveimur meginreglum við uppgjör A-hluta ríkisreikningsins skv. núgildandi lögum, nr. 52 frá 1966, um ríkisbókhald, gerð ríkisreiknings og fjárlaga, eins og ég reyndar gerði einnig við afgreiðslu ríkisreiknings fyrir árið 1972 fyrr á þessu ári.

Önnur er sú, að álagðar tekjur og áfallin gjöld eru lögð til grundvallar við uppgjör rekstrarreiknings, en ekki greiðsluhreyfing þessara liða, þ. e. innheimta tekna og útgreiðsla gjalda. Af því leiðir að í efnahagsyfirliti eru óinnheimtar tekjur meðal eignaliða og ógreiddar gjaldskuldbindingar meðal skuldaliða.

Hin meginreglan er sú, að fjárfestingarútgjöld A-hlutans eru talin með gjöldum þess árs, þegar til þeirra er stofnað, en þeim ekki dreift með afskriftum á þann árafjölda sem gert er ráð fyrir að fjárfestingin endist, eins og gildir um uppgjör fyrirtækja og sjóða ríkisins í B-hluta ríkisreiknings.

Heildarniðurstaða rekstrarreiknings A-hluta ríkisreiknings fyrir árið 1973 var sú, að gjöldin námu 252 millj. 987 þús. kr. umfram tekjur. Gjöld rekstrarreiknings námu 25 milljörðum 129 millj. 413 þús. kr. Tekjur námu 24 milljörðum 876 millj. 426 þús. kr. Endurmatsjöfnuður var hagstæður um 28 millj. 900 þús. kr. Samtala jafnaðar-, rekstrar- og endurmatsreikninga var því óhagstæð um 224 millj. 87 þús. kr. og samsvarar aukningu skuldaliða umfram aukningu eignaliða í efnahagsreikningi án efnislegra fjármuna. Sú breyting kom fram í verri stöðu sjóðs og óbundinna bankareikninga í árslok en í ársbyrjun um 615 millj. 794 þús. kr., en 301 millj. 996 þús. kr. að meðtöldum lánareikningum í Seðlabankanum. Bætt staða annarra greiðslujafnaðarliða nam nettó 756 millj. 17 þús. kr. Í þeirri fjárhæð kemur fram aukning óinnheimtra tekju- og eignarskatta um 471 millj. 6 þús. kr. og söluskatts um 216 millj. 452 þús. kr. Á móti þessum greiðslujafnaðarliðum kemur lánajöfnuður. Hann fól í sér hækkun hlutabréfaeignar og stofnfjárframlaga um 52 millj. 291 þús. kr. og skuldaaukningu vegna nýrra lántaka umfram afborganir og hreyfingu veittra lána um 731 millj. 297 þús. kr., ef greindur lánajöfnuður við Seðlabankann er talinn með greiðslujöfnuði.

Um það bil helming gjalda ríkisreiknings má rekja til þriggja þátta:

1) Framlög til Tryggingastofnunar ríkisins og Atvinnuleysistryggingasjóðs að fjárhæð 8 milljarðar 95 millj. 315 þús. kr., og eru þá markaðar tekjur meðtaldar að fjárhæð 729 millj. 379 þús. kr.

2) Niðurgreiðslur á vöruverði 2 milljarðar 142 millj. 48 þús. kr., auk uppbóta á útfluttar landbúnaðarafurðir 518 millj. 340 þús. kr., eða samtals 2 milljarðar 660 millj. 388 þús. kr.

3) Gjöld til vegamála 2 milljarðar 112 millj. kr.

Þessir þrír þættir námu samtals 12 milljörðum 867 millj. 703 þús. kr. eða 51.2% af gjöldum A-hlutans. Gjöld skóla- og fræðslumála er falla undir menntmrn., auk bændaskólanna, námu 3 milljörðum 828 millj. 468 þús. kr. eða um 15% heildarútgjalda. Þessir fjórir þættir námu því um 2/3 hlutum gjalda A-hluta ríkisreiknings fyrir árið 1973.

Þrír stærstu liðir tekna á árinu 1973 voru almenn aðflutningsgjöld 6 milljarðar 328 millj. 139 þús. kr., söluskattur 5 milljarðar 715 millj. 793 þús. kr. og tekjuskattur 5 milljarðar 333 millj. 316 þús. kr., eða samtals 17 milljarðar 377 millj. 248 þús. kr., sem svarar til um 70% heildartekna A-hluta ríkisreiknings árið 1973.

Ég mun ekki gera nánari grein fyrir niðurstöðutölum ríkisreiknings fyrir árið 1973. Um frávik reiknings og fjárl. hef ég fjallað, eins og ég áður sagði, í framsögu fyrir frv. til fjáraukalaga fyrir sama ár.

Ég legg til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2, umr. og hv. fjh.og viðskn.