09.12.1975
Sameinað þing: 30. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1018 í B-deild Alþingistíðinda. (673)
307. mál, milliþinganefnd í byggðamálum
Tómas Árnason:
Herra forseti. Ég vildi aðeins í sambandi við þessar umr. víkja að því, að þegar núv. hæstv. ríkisstj. var mynduð var ákveðið í stjórnarsamningi stjórnarinnar að verja sem svarar 2% af útgjöldum á fjárlagafrv. til Byggðasjóðs sem framlagi árlega. Þetta hefur þýtt það á árunum 1975 og 1976, að hefði ekki þessi breyt. verið gerð, þá hefði eigið fé Byggðasjóðs til útlána numið um 400 millj. kr. á árunum 1975 og 1976, en vegna breyt., sem varð á, mun eigið fé Byggðasjóðs nema tæplega 2 milljörðum kr. Þetta er sú breyt. sem orðið hefur á í þessum efnum með tilkomu þess ákvæðis í málefnasamningi núv. hæstv. ríkisstj. að verja 2% af útgjöldum á fjárlagafrv. sem framlagi til Byggðasjóðs á hverju ári.