09.12.1975
Sameinað þing: 30. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1020 í B-deild Alþingistíðinda. (677)

66. mál, skuttogarakaup

Lúðvík Jósepsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins nota þetta tækifæri til þess að láta það koma fram, að ég er algjörlega andvígur þeirri stefnu sem hæstv. ríkisstj. hefur markað varðandi kaup á nýjum fiskiskipum eða skuttogurum. Ég tel að það sé með engu móti hægt að neita mönnum, sem þurfa á því að halda, að eignast ný og fullkomin fiskiskip í staðinn fyrir gömul og meira og minna úr sér gengin skip — að neita þeim um eðlilega aðstöðu til þess að kaupa sér ný skip, en það er gert með þessum reglum hæstv. ríkisstj. Með þeim er mönnum neitað um að taka þau lán erlendis sem auðvelt er að fá og fram eru boðin í sambandi við kaup á svona skipum. Það er enginn vafi á því, að þrátt fyrir þá endurnýjun í skipastólnum, sem átt hefur sér stað, skortir víða mikið á að því marki hafi verið náð að gera skipastólinn almennt að góðum og fullkomnum skipastól. Ég álít því að hér sé um mikla skammsýni að ræða sem fái í rauninni ekki staðist í framkvæmd og í rauninni mikill misskilningur á því hvers konar veiðiskip hér er um að ræða sem við höfum verið að kaupa, þar sem mjög mikill hluti af þessum skuttogurum kemur í rauninni í staðinn fyrir hluta af okkar fiskibátaflota sem áður var. En á það má minna að fyrir allmörgum árum áttu íslendingar 60 togara, auk alls annars fiskiskipastóls.