10.12.1975
Efri deild: 21. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1030 í B-deild Alþingistíðinda. (706)

94. mál, bátaábyrgðarfélög

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason) :

Herra forseti. Þetta frv. er um breyt. á l. um bátaábyrgðarfélög. Þótti nauðsynlegt að endurskoða þessi lög og vegna þess skipaði ég n. til að endurskoða lögin. Þessi n. var skipuð 12. nóv. á s. l. ári. Var óskað tilnefningar stjórnar Samábyrgðar Íslands sem tilnefndi forstjóra sinn, Pál Sigurðsson, í þessa n. og tilnefningar Landssambands ísl. útvegsmanna sem tilnefndi Jón Ægi Ólafsson í n., en formaður n. var skipaður án tilnefningar Einar B. Ingvarsson. N. hélt 18 fundi og fór vandlega yfir bæði lög og reglugerðir. Enn fremur fjallaði hún um ýmsar ábendingar um æskilegar breyt. sem borist höfðu frá forráðamönnum Samábyrgðarinnar og ýmsum bátaábyrgðarfélögum að fenginni reynslu af framkvæmd fyrrgreindra laga og reglugerða. Um nokkur lagaleg atriði var leitað umsagnar Sveinbjarnar Jónssonar hrl., sem er lögfræðingur Samábyrgðar Íslands, og sömuleiðis lét Tryggingaeftirlitið nefndinni í té aths. við núgildandi lög og reglugerðir vegna þessarar endurskoðunar.

Allar ábendingar og aths. voru ræddar ítarlega í n. og er árangur n. það frv. sem hér liggur fyrir ásamt grg. Enn fremur undirbjó n. breyt. á reglugerð sem fylgir í kjölfar þessa frv. ef það verður að lögum.

Nm. benda í áliti sínu á mikilvægi þess að Samábyrgðin og bátatryggingafélögin auki mjög kynningarstarf meðal tryggingartaka, bæði með fundarhöldum og útgáfu bæklinga, þar sem fræðsla yrði veitt um skilmála, tjónareynslu, sjálfsábyrgð o. fl., enda verði gildandi laga- og reglugerðarákvæðum varðandi sjálfsábyrgð og fleira beitt meira en verið hefur og þannig stefnt að því að draga úr tjónum og þar með gera mögulega lækkun vátryggingariðgjalda.

Þetta frv. í sjálfu sér er ekki stórkostlegar breytingar á gildandi lögum.

Í 1. gr., varðandi breyt. 3. málsgr., þykir rétt og eðlilegt að það komi ótvírætt fram í l. að Samábyrgðin ákveði tryggingarskilmála vegna opinna vélbáta sem tryggðir eru skv. þessari gr., en það er í gildandi lögum mjög óljóst.

Um 2. gr. er talið eðlilegt að stytta þann tíma sem skip getur verið í tryggingu eftir að haffærisskírteini þess rann út, enda óeðlilegt að viðgerð á þeim ágöllum, sem urðu þess valdandi að haffærisskírteinið fékkst ekki endurnýjað, sé ekki hafin innan eins árs. En á því hefur verið misbrestur. Það hefur í skyldutryggingunni verið þannig, að skip eða báta, sem ekki hafa verið hreyfðir árum saman, hefur ekki verið hægt að losna við úr skyldutryggingu og því þykir rétt að stytta þetta tímabil.

Um 3. gr., þá er það eingöngu til samræmis við lög um vátryggingarstarfsemi sem eru yngri en gildandi bátaábyrgðarlög.

Um 4. gr., þá er breyt. gerð til að taka af öll tvímæli um hvenær ábyrgð viðtakandi félags hefst, en þar hefur oft verið um ágreining að ræða milli bátaábyrgðarfélaga. Hér er því aðeins verið að binda tryggilegar um hnútana til þess að ekki þurfi að fara í ágreining eða jafnvel málshöfðun á milli skyldra félaga eins og bátaábyrgðarfélögin eru.

Varðandi 5. gr., þá hafa komið fram óskir um heimild handa bátaábyrgðarfélögunum að hafa allt að 5 manna stjórn. Á það einkum við um félög sem hafa stór félagssvæði. Aðrar breytingar eru svo gerðar í samræmi við þetta. Það var gerð breyt. síðast að fækka í 3 stjórnarmenn skv. ályktun fundar trúnaðarmanna bátaábyrgðarfélaganna. Svo kom í ljós síðar óánægja, einkum hjá einu eða tveimur félögum, að hafa fækkað stjórnarmönnum niður í 3, og því þykir sjálfsagt að gefa bátaábyrgðarfélögunum fullt frelsi í þeim efnum, hvort þeir hafa 3 eða 5 manna stjórn.

Breyt. um löggiltan endurskoðanda er gerð til samræmis við lög um vátryggingarstarfsemi, en löggiltur endurskoðandi er nú varðandi endurskoðun reikninga allra bátaábyrgðarfélaganna eftir að Tryggingaeftirlitið tók til starfa.

Um 7. gr., þá er ákvæði um aðalfundi félaganna. Það er gert einnig til samræmis við lög um vátryggingarstarfsemi.

Þá er 9. gr. Þar er gerð sú breyt. til að taka af öll tvímæli að fella megi skip úr tryggingu þegar skoðunarmenn félags telja það ekki tryggingarhæft, en hagsmuna veðhafa jafnframt gætt. Þykir rétt að taka af öll tvímæli í þessum efnum.

Ég þarf hvorki að ræða 10. né 11. gr., þær skýra sig sjálfar. En í 12. gr. er bætt við nýjum málslið um að endurtryggingariðgjöld, sem greidd eru skv. 8. gr. laga um bátaábyrgðarfélög, skuli ekki teljast til aðstöðuskyldra útgjalda, en auðvitað frumtryggingargjöld bátaábyrgðarfélaganna. Þessu er beitt misjafnlega á hinum ýmsu stöðum, en eðlilegt er að tvískatta ekki aðstöðugjald af þessum tryggingarupphæðum bátaábyrgðarfélaganna.

Ég tel ekki ástæðu til að hafa fleiri orð um þetta frv. Það er fyrst og fremst verið að færa til samræmis við lög sem samþ. hafa verið eftir að lögum um bátaábyrgðarfélög voru samþ. og til þess að taka af ýmsar veilur sem hafa verið fyrir í löggjöf og hafa valdið óþarfa ágreiningi í nokkrum tilfellum.

Tryggingaárið er almanaksárið, og ég vil beina þeim tilmælum til þeirrar n., sem fær þetta frv., að þó að því sé seint fylgt hér úr hlaði, þá er þetta mál mjög einfalt og undirbúið af þeim aðilum sem hér eiga hlut að máli, og ég væri mjög þakklátur ef n. vildi taka það til afgreiðslu sem allra fyrst og stefna að því að frv. yrði að lögum fyrir áramót, — vegna þess að tryggingaárið er almanaksárið. Ef n. sér sér ekki fært að verða við því, þá verður að hafa það. Þá verður það bara að taka sinn tíma. En þetta er að mörgu leyti mjög mikilvægt varðandi eðlilega starfsemi þessara bátaábyrgðarfélaga allra.

Herra forseti. Ég legg til að að lokinni þessari umr. verði þessu frv. vísað til heilbr.- og trn.