10.12.1975
Efri deild: 21. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1033 í B-deild Alþingistíðinda. (708)
94. mál, bátaábyrgðarfélög
Sjútvrh. (Matthías Bjarnason) :
Herra forseti. Þessum tveimur fsp. vil ég svara á þann veg að það komi ekki til tals að hækka stærðarmörkin. Þetta er aðeins það sem er á milli 100 og 101 tonn, sem hér er um að ræða. Hins vegar er löng saga á bak við skyldutrygginguna.
Þegar fiskiskipin fóru að stækka fóru þau í hina svokölluðu frjálsu tryggingu sem bauð þá mjög lág iðgjöld og miklu meiri áhættu í tjónum. Þetta var mikill munur á fyrstu árunum. Síðan er það með tjónagreiðsluna, að þegar hún liggur fyrir, þá hækka iðgjöldin sem henni nemur, og þá fóru sumir að sjá að þetta voru ekki góðgerðarfélög, heldur eru vátryggingarfélögin auðvitað byggð upp á því að bera sig. Endurtryggingin tapaði á íslenska fiskiflotanum árum saman, og þá kom þetta mál mjög til kasta á aðalfundum Landssambands ísl. útvegsmanna. Var samþ. á þingi þeirra að hækka skyldutrygginguna. En ári síðar kom málið aftur fyrir á sama fundi og þá var fellt að hækka skyldutrygginguna. Síðan held ég að þetta mál, stærðarmörk skyldutryggingarinnar, hafi ekki komið fyrir þar, ekki í neinni alvöru. En þessi n., sem ég skipaði, taldi ekki ástæðu til þess að breyta stærðarmörkunum. Það er aðeins það, sem um er að ræða, að skipin á milli t. d. 250 brúttólesta, sem hv. þm. nefndi, og 100 lesta eru nú að verða sífellt eldri og eru þess vegna komin eftir slæma tjónareynslu með mjög há iðgjöld. Sama er að segja um suma togarana. Hér er byggt á svokallaðri samsteypu tryggingarfélaganna í tryggingu umfram frjálsu trygginguna, og fram undan er þar nú stórfelld hækkun iðgjalda vegna mjög bágborinnar tjónareynslu. Til eru dæmi þess að partstjón á einu skipi, — stærstu skipum — hafi farið á þessu ári upp undir 50 millj. kr. Skyldutryggingin innan við 100 tonn, held ég að ég megi segja, að alls staðar hjá Samábyrgðinni sé komin upp á 330 millj. kr., svo að útlitið í tryggingamálum fiskiskipanna er mjög slæmt og það er ekki útlit fyrir að það verði um lækkun iðgjalda að ræða, heldur stórfellda hækkun iðgjalda og þá um leið stórfellda hækkun á sjálfsábyrgð.
Varðandi síðari spurninguna um sjálfsábyrgðina, þá er hún í lögum fyrir, en í reglugerð á hún að breytast eftir verðgildi peninga, viðgerðarkostnaði og tjónareynslu, svo að stjórn Samábyrgðarinnar hefur í hendi sér að gera till. um breyt. á sjálfsábyrgðinni. Í gömlu lögunum, áður en þessi lög tóku gildi, var þetta ákveðin krónutala, og þar var sjálfsábyrgðin, þegar þessum lögum var breytt, að hámarki 1400 kr. á skip, og þá var þetta orðin hlægileg upphæð. Þess vegna var upphæðin tekin út úr lögunum og sett í reglugerðarheimild og þar á hún auðvitað að mínum dómi að vera og þar hefur henni verið fylgt. En ég vil ekki á þessu stigi fullyrða neitt um það hvernig verður með sjálfsábyrgð almennt í tjónum fiskiskipa, en allt útlit bendir til þess að hún muni ekki hækka neitt lítillega, heldur muni hún margfaldast um næstu áramót, ef samningar eiga að nást á milli trygginganna og útgerðarinnar. Samábyrgðin verður auðvitað að taka mið af verðgildi peninga eða réttara sagt hækkun á viðgerðum og bera það þá undir rn. sem getur gert sínar aths. ef því finnst stjórn Samábyrgðarinnar ganga of langt í þessum efnum.
Ég vona að fyrirspyrjandi hafi fengið svar við sínum spurningum. En varðandi stærðarmörkin, þá er það mál afar viðkvæmt meðal útgerðarmannanna, hvort eigi að fara inn á þá braut eða ekki. Hins vegar hef ég frá fyrstu tíð verið mjög harður í þeim efnum, að ég vildi hækka skyldutrygginguna og láta bátaflotann allan verða skyldutryggðan. En þar voru aðrir í meiri hl., en ég veit ekki hvort þeir eru eins glaðir nú og þeir voru fyrir nokkrum árum.