10.12.1975
Efri deild: 21. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1034 í B-deild Alþingistíðinda. (712)

96. mál, sjúkraþjálfun

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Þetta frv. er flutt að ósk Félags ísl. sjúkraþjálfara og er að mestu leyti byggt á till. að nýjum lögum um sjúkraþjálfun, sem félagið sendi heilbr.- og trmrn, til umfjöllunar á s. l. ári, en núgildandi lög um þetta efni eru frá árinu 1962. Heilbrrn. taldi till. félagsins horfa í flestu til bóta frá núgildandi ákvæðum, og við samningu þessa frv. í rn. hafa ekki verið gerðar neinar efnisbreytingar, nema sú að fellt hefur verið niður úr 2. gr. í till. félagsins það skilyrði að viðkomandi skuli hafa meðmæli Félags ísl. sjúkraþjálfara og landlæknis, heldur skuli umsagnar þeirra leitað. Við í rn. töldum ekki rétt að stéttarfélag hefði þennan rétt. Ef fólk, sem uppfyllir menntunarskilyrði, kemur á að vera skylt að veita því starfsleyfi skv. 1. gr. frv., þar sem segir að rétt til að starfa sem sjúkraþjálfari hér á landi og kalla sig sjúkraþjálfara hefur sá einn sem til þess hefur fengið leyfi heilbrrh., og leyfið skal veita þeim íslenskum ríkisborgurum sem lokið hafa prófi frá skóla sem viðurkenndur er af Alþjóðasambandi sjúkraþjálfara. Hins vegar þykir rétt að leita umsagnar Félags sjúkraþjálfara og landlæknis áður en leyfi er veitt hverju sinni, eins og er í gildandi lögum.

Þetta frv. skýrir sig sjálft að öðru leyti. Það er aðeins verið að verða við ósk þessa félags.