10.12.1975
Neðri deild: 26. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1077 í B-deild Alþingistíðinda. (737)
105. mál, söluskattur
Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen) :
Hæstv. forseti. Frv. það, sem hér er til umr., gerir ráð fyrir í fyrsta lagi að viðlagagjald á söluskattsstofn, 2%, verði framvegis greitt í ríkissjóð sem söluskattur, í öðru lagi að Jöfnunarsjóður sveitarfélaganna fái 8% hlutdeild í því gjaldi svo og þeim tekjum sem til þessa hafa runnið í ríkissjóð af svokölluðum 4% söluskattsauka.
Í fjárlagaræðu minni gat ég þeirra áforma ríkisstj. að auka tekjur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaganna og jafnframt að fá sveitarfélögunum aukin verkefni er þeim tekjuauka svaraði. Með þeirri breytingu er gert ráð fyrir að tekjuaukning sveitarfélaganna verði um það bil 600 millj. kr. og ætlað að verkefni, sem nema þeirri fjárhæð, verði flutt til sveitarfélaganna og er unnið að gerð frumvarps eða frumvarpa þar að lútandi. Breyting Viðlagasjóðsgjaldsins í söluskatt er í samræmi við tekjuáætlun fjárlagafrv. Hækkun framlaga til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaganna er hins vegar að sjálfsögðu háð því að sveitarfélögin taki við verkefnum sem nú eru unnin á kostnað ríkissjóðs eða auki þátttöku sína í verkefnum sem kostuð eru sameiginlega af ríki og sveitarfélögum.
Ég hef áður lýst því yfir að ég tel brýna nauðsyn á því að þær mörgu reglur sem gilda um fjárhagsleg samskipti ríkisins og sveitarfélaga verði teknar til gagngerðrar endurskoðunar. Ég vona því að það skref, sem stigið er með þessu frv. og væntanlegri samþykkt frv. um verkefnaflutning til sveitarfélaganna að sama skapi, komi á skýrari verkefnaskiptingu milli ríkisins og sveitarfélaganna og um leið betra fjárhagsaðhaldi aðila með verkefnum sínum.
Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða meir um þetta frv., en legg til að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.