11.12.1975
Sameinað þing: 32. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1103 í B-deild Alþingistíðinda. (760)
44. mál, frestun framkvæmda við Grundartangaverksmiðjuna
Jón Árm. Héðinsson:
Herra forseti. Eins og kom fram hjá frsm., fyrra flm. þessarar till., var hún lögð fram nokkru áður en stjórn þessa fyrirtækis sá sig til knúna að halda blaðamannafund um málið 13. nóv. s. l. Þá þegar hafði heyrst að mikil breyting væri orðin á þeim forsendum sem lágu til grundvallar þeirri ákvörðun að þetta fyrirtæki skyldi reist á Íslandi. Ég dokaði með forvitni eftir skýringu frá stjórn fyrirtækisins varðandi þetta mál, en það verð ég að segja að hvergi nærri voru tæmandi þær skýringar sem fram komu. Ósk mín er sú og raunar krafa og ég tel það lágmarkskurteisi við okkur, sem studdum málið á Alþ., að sérstök skýrsla verði gefin um málið og allar forsendur teknar fyrir að nýju. Ég beini þeirri áskorun til hæstv. iðnrh., og ég trúi ekki öðru en hann beiti sér fyrir því, slíkur maður sem hann er, að hið sanna komi allt í ljós og málið verði allt stokkað upp að nýju. Ef þessir valinkunnu kunnáttumenn eru ekki færir um að athuga málið einir sér, þá er það krafa mín að þingnefnd athugi málið. Hér er um stórar tölur að ræða. Þetta hefur hækkað um milljarða frá því að við tókum ákvörðun um að fylgja málinu. Hæstv. ráðh. sagði: „Allt þetta þarf að skoða“ — skoða betur, bæti ég við. Ef þn. á einhvern tíma að athuga mál, þá er þetta mál sem þarf sannarlega að athuga sérstaklega og gaumgæfilega af þingnefnd, allar forsendur fyrir því, slíkar sem fjárskuldbindingarnar eru og þar sem við eigum meiri hluta í fyrirtækinu, íslendingar sjálfir, og það var eitt af þeim atriðum sem sumir lögðu mikla áherslu á. Það kann að fara svo og kann að vera það réttasta í dæminu að hætta við allt saman. En til þess þurfum við að fá gaumgæfilega athugun á málinu, — mjög gaumgæfilega.
Ég vil líka fá að vita hvað er komið mikið fjármagn í þetta í dag, nákvæmlega frá sagt, enga ágiskun, einhverjar „sirka-tölur“ eins og talað er um í daglegu tali, hvernig dæmið stóð um s. l. mánaðarmót, nákvæmlega, hvað hefur þetta allt kostað, ferðalög, lántökukostnaður og þar fram eftir götunum, beinar framkvæmdir, vaxtakostnaður og ýmislegt annað, — fá allt á borðið eins og það leggur sig. Það kann að fara svo bæði með mig og fleiri þegar sú skýrsla liggur á borðinu að ég hugsi mig um tvisvar hvað gera skal varðandi framhaldið, þrátt fyrir það að við höfum ráðist í ákveðna virkjun sem átti að selja rafmagn á ákveðnum tíma í þetta fyrirtæki. Það getur vel verið að við getum hagnýtt það rafmagn með öðrum hætti og ekkert síður, vegna þess að forsendur fyrir upphitun á Íslandi með olíu hafa gjörbreyst og kann að vera fólgin í því verulegur ávinningur að taka nú þessa umframorku til húshitunar á þeim svæðum þar sem ekki verður komið við að nota heitt vatn — og vera nú röskir að því, eins og það átak var myndarlegt sem Alþ. stóð að á sínum tíma varðandi hitaveituframkvæmdir hér í næsta nágrenni.
Þetta mál er ekkert smámál og alls ekki þess eðlis, fyrst forsendur hafa brostið svo, að það eigi að halda því í höndum fárra manna þótt kunnáttumenn séu taldir, — alls ekki. Ef Alþ. vill halda reisn sinni og fylgjast vel með afleiðingum af verkum sínum, hv. alþm., þá verða þeir að krefjast þess að nákvæm og góð skýrsla komi um þetta mál. Ég verð að treysta því að allshn. sjái ástæðu til þess að safna miklum gögnum og leggja málið skipulega og vel fyrir alþm., ella gæti verið grundvöllur fyrir því að sérstök n. kannaði málið til hlítar fram yfir venjulega athugun þm., starfsnefndar Alþ. Ég tel þetta mál orðið svo viðamikið og svo gjörbreyttar forsendur fyrir því öllu saman að slíkt sé réttlætanlegt. Það kom fram í ræðu hæstv. iðnrh., hann sagði: „Allt þetta þarf að skoða.“
Það er e. t. v. óþarfi að orðlengja meira um þessa till. Það var ekki að ófyrirsynju að það kæmi fram af hálfu þeirra manna sem jafnan töldu þetta nokkurt glæfraspil frá ýmsum sjónarhólum séð. En hvað sem því líður, þá var talið að bæði fyrrv. ríkisstj. og núv. ríkisstj. hefðu látið fara fram vandaðan undirbúning að verkinu. En þær tölur, sem við fengum og höfðum enga minnstu möguleika til að vefengja, en voru sagðar gerðar af kunnáttumönnum, eins og stendur í gömlum sáttmála, að bestu manna yfirsýn, hafa ekki reynst mjög haldgóðar og jafnvel mætti kveða fastar að orði. Sem sagt, það er ósk mín og raunar krafa að Alþ. fái sérstaka skýrslu um þetta mál, um forsendur þess, möguleika í framtíðinni, fjármagnskostnað o. s. frv., og ekkert verði undan dregið á nokkurn hátt. Það er slík krafa sem ekki er hægt að stinga undir stól að mínu mati.