11.12.1975
Sameinað þing: 32. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1115 í B-deild Alþingistíðinda. (765)
Umræður utan dagskrár
Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson) :
Herra forseti. Ég verð því miður að staðfesta það, að alvarlegir atburðir hafa átt sér stað í íslenskri landhelgi. Því miður hefur mér ekki borist enn þá skýrsla í hendur um þennan atburð, en eftir því sem ég veit best mun þetta hafa gerst þannig að varðskipið Þór kom að þrem dráttarbátum um 1.2 sjómílur frá landi við eða í mynni Loðmundarfjarðar eða á þeim slóðum. Varðskipið mun hafa hafist handa um að stugga þeim burt og ýtti tveim dráttarbátum á undan sér, en þá gerðist það snögglega að annar þeirra sneri við og stofnaði til áreksturs og stímaði beint á varðskipið, þannig að það gat ekki þar undan komist. Síðan gerðist það, að sá dráttarbáturinn, sem eftir hafði orðíð og varðskipsmenn munu sennilega hafa talið að væri eitthvað bilaður, Lloydsman, kom snögglega á eftir og stímaði beint á varðskipið. Og enn gerðist svo það, að annar þeirra, sem voru komnir þá fram fyrir varðskipið eða varðskipið hafði rekið á flótta snerist enn gegn því og stímaði á, þannig að eftir því sem ég veit best áttu sér þarna stað a. m. k. þrjár ástímingar af hálfu dráttarbátanna. Varðskipið, þegar það var komið í þessa klemmu, skaut fyrst púðurskoti eða aðvörunarskoti, og þegar þeir létu sér ekki þar við segjast, þá var skotið einu föstu skoti sem kallað er eða kúlu. Mun það hafa hrifið, ásamt því máske að þá mun flugvélin hafa verið komin á þessar slóðir og verið þarna yfir og annað varðskip ef til vill ekki mjög langt frá, þá munu þeir hafa haldið frá.
Varðskipið Þór leitaði síðan inn á Seyðisfjörð og er þangað komið. Það eru talsverðar skemmdir a. m. k. á Þór, en á meðan ég hef ekki skýrsluna í höndum get ég ekki fullyrt um það nánar hversu miklar þær eru. Meiðsli á mönnum af skipshöfn Þórs munu ekki hafa orðið nema að því er varðar einn mann sem hlaut einhver meiðsli. Ég get ekki heldur sagt um það núna nánar hversu alvarleg þau eru, vona þó að þau séu ekki mjög alvarleg.
Þetta ertu þær fregnir sem ég hef þegar fengið af þessum atburði, en brátt mun berast nákvæmari skýrsla um þetta og að sjálfsögðu verður þá gefin út nákvæm fréttatilkynning af þessum atburði.
Þetta er auðvitað atburður sem við hljótum að líta mjög alvarlegum augum, af því að hvað sem allri deilu um fiskveiðimörk líður, þá er þarna um að ræða atburð sem hefur átt sér stað innan hinna elstu landhelgismarka, innan óvefengjanlegra landhelgismarka. Mér er óhætt að fullyrða að ríkisstj. mun taka þetta mál til meðferðar og ræða það og gera ráðstafanir sínar í sambandi við það þegar nánari skýrsla hefur borist.
Ég vil nú ekki, herra forseti, fara að ræða þetta frekar að sinni. Auðvitað höfum við öll mátt reikna með því að til alvarlegra tíðinda drægi í þessum átökum, en hitt er það, sem kemur manni á óvart, að þetta skuli eiga sér stað á þessum stað, svo að segja uppí í landssteinum, ef það er rétt, sem ég dreg ekki í efa, sem ég hef hér sagt og hef eftir þeim skeytum sem þegar hafa borist um þennan atburð.
Ég veit að allir þingmenn munu líta þennan atburð mjög alvarlegum augum og munu senda skipshöfn varðskipsins kveðjur. Ég hygg að þeir á varðskipinu hafi eftir atvikum ekki getað brugðist við á annan hátt en þeir gerðu undir þessum kringumstæðum.