11.12.1975
Sameinað þing: 32. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1116 í B-deild Alþingistíðinda. (768)

Umræður utan dagskrár

Lúðvík Jósepsson:

Herra forseti. Ég vil taka undir góðar óskir til varðskipsmanna og þakklæti til þeirra sem hér hefur fram komið. Ég tel að þeir hafi yfirleitt unnið verk sitt mjög vel, og þeir eiga þakkir skildar fyrir.

En í sambandi við þær upplýsingar, sem hér hafa verið gefnar, tel ég að hér sé um svo alvarlega atburði að ræða að það beri nú þegar að kalla saman fund í utanrmn, Alþ. og ræða mótaðgerðir af okkar hálfu. Ég tel að það megi ekki dragast lengur en þegar hefur gerst að við slitum formlega stjórnmálasambandi við Bretland. Það þýðir ekkert að tala neina tæpitungu við þá aðila sem við eigum þarna í höggi við. Þeir verða að taka afstöðu okkar alvarlega. Við eigum þegar í stað að kalla sendiherra okkar heim frá London, og við eigum þegar í stað að óska eftir því að breski sendiherrann víki héðan og fari til síns heimalands. Ég tel líka að það sé útilokað með öllu, eftir að atburðir af þessu tagi hafa gerst, að utanrrh. okkar geti verið þátttakandi í fundi á vegum Atlantshafsbandalagsins án þess að rísa þar upp og mótmæla þessu á þann hátt einan sem þeir aðilar í því bandalagi skilja, og það er að þeim verði gert ljóst að í slíku bandalagi geti Ísland ekki verið eftir að eitt af bandalagsríkjunum sendir herskipaflota á hendur okkur og beitir þeim brögðum hér sem jafngilda í rauninni alveg hreinni innrás. Eftir að þeir hafa brotist inn í hina almennu landhelgi með ofbeldisaðgerðir þar, þá jafngildir það að fullu og öllu að þeir hefðu sett hér menn á land til þess að taka stjórn mála í sínar hendur. Við verðum að gera öllum það ljóst að okkur er alvara í þessu máli. Hér duga ekki nein minni háttar viðbrögð sem yfirleitt eru ekki tekin mjög alvarleg ef við ætlum ekki að kalla yfir okkur það sem verra er,

Ég sem sagt ítreka það, að hæstv. ríkisstj. verði við því að kalla saman fund í utanrmn. Alþ. til þess að fjalla um þessa atburði nú þegar á þessum degi og að þar verði m. a. þessar kröfur mínar, sem ég hef sett hér fram, teknar til sérstakrar afgreiðslu.