12.12.1975
Neðri deild: 28. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1166 í B-deild Alþingistíðinda. (848)
Umræður utan dagskrár
Forsrh. (Geir Hallgrímsson):
Virðulegi forseti. Ég sé enga ástæðu til þess að bæta einu eða neinu við algerlega skýra yfirlýsingu mína hér áðan og vil taka það fram enn á ný, að þetta mál verður, ef og þegar skilyrði breytast varðandi viðræður við breta, tekið upp alveg að nýju. Og það tel ég algerlega fullnægjandi yfirlýsingu á þessu stigi málsins, miðað við það sem ég hef áður sagt.
Ég vil um leið láta í ljós það álit mitt, að miður sé að karpa um einstök atriði varðandi þetta mikilvæga mál hér innbyrðis þegar við út á við stöndum í baráttu þar sem við verðum að sýna mikla samstöðu. Ég vil í því sambandi sérstaklega undirstrika hve áhrifamikið það var og er að ríkisstj. og utanrmn. Alþ. sýndu sameiginlega afstöðu í þessu máli varðandi viðbrögð við gerræðisfullum vinnubrögðum og atferli breta á Íslandsmiðum í gær með ályktun sinni og ákvörðun í gærkvöld. Það tel ég vera vinnubrögð sem séu okkur til sóma. Þeim vinnubrögðum eigum við að halda áfram, sýna samhug og samstöðu um meginefni málsins, svo að skýrt komi fram út á við.