12.12.1975
Neðri deild: 28. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1166 í B-deild Alþingistíðinda. (849)
71. mál, launaskattur
Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):
Hæstv. forseti. Á þskj. 76 er frv. til l. um breyt. á l. um launaskatt. Hér er um að ræða framlengingu á gildandi lögum alveg óbreyttum eins og þau eru nú og hafa verið frá því lög um skattkerfisbreytingu tóku gildi. Eins og rakið er í grg. frv. eru lögin að stofni til frá 1965, en þá var lagður á 1% launaskattur. Árið 1970 var lagður á sérstakur launaskattur, 1.5%, í tengslum við efnahagsráðstafanir sem þá voru gerðar. Launaskatturinn hækkaði enn á s. l. ári um 1%. Var sú hækkun tengd ráðstöfunum til lausnar vinnudeilu sem uppi var fyrri hluta þess árs.
Gildistími launaskatts samkv. lögum nr. 95 1974 rennur út nú um n. k. áramót. Frv. á þskj. 76 gerir ráð fyrir að gildistíminn verði enn framlengdur um eitt ár og hefur verið við það miðað við gerð fjárlaga. Að mínu mati er óeðlilegt að binda gildistíma skatta í lögum, en þar sem hér hefur verið talið um bráðabirgðaskattheimtu að ræða að hluta til er að sjálfsögðu rétt að framlengja gildistíma laganna aðeins um eitt úr.
Ég legg svo til, hæstv. forseti, að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.