12.12.1975
Neðri deild: 29. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1171 í B-deild Alþingistíðinda. (866)
89. mál, vörugjald
Frsm. 1. minni hl. (Gylfi Þ. Gíslason) :
Hæstv. forseti. Þetta frv. er flutt til staðfestingar á brbl. sem út voru gefin á s. l. sumri, nánar tiltekið 16. júlí 1975, en þá var ákveðið að innheimta skyldi 12% vörugjald af tilteknum vöruflokkum og lögin gilda til loka þessa árs.
Málavextir voru þeir og aðstæður í þjóðfélaginu voru þannig, að þegar brbl. voru gefin út hafði nýlega verið gert samkomulag um kjaramál milli launþegasamtaka annars vegar og samtaka vinnuveitenda hins vegar, en í sambandi við það samkomulag gaf ríkisstj. vissar yfirlýsingar sem stuðluðu mjög að því að samkomulag næðist. Ein þessara yfirlýsinga var um að skattar skyldu lækkaðir um því sem næst 2000 millj. kr. og skyldi það reiknað launþegum sem kjarabót.
Auðvitað var við þetta fyrirheit staðið. Það dettur engum í hug að ríkisstj. gefi yfirlýsingar í sambandi við kjarasamninga og bregðist þeim síðan beinlínis. En það gerðist skömmu síðar án nokkurs samráðs við launþegasamtökin, án þess að þeim væri gert viðvart með einu orði, án þess að efna til nokkurs samtals við þau, að ríkisstj. gaf út brbl. um þetta 12% vörugjald, þau brbl. sem nú er lagt til að verði staðfest. Auðvitað jafngilti vörugjaldið útgjaldaauka fyrir launþega, þ. e. hækkaði vöruverð í landinu mjög verulega. Á það verður að benda alveg sérstaklega að það er ekki réttur skilningur, sem þó er mjög algengur, að vöruverð hafi hækkað um 12% eins og menn álykta gjarnan af því að gjaldið heitir 12% vörugjald. Vörugjaldið varð einnig til þess að tollar hækkuðu, vegna þess að tollar leggjast ofan á innflutningsverðið, og það varð einnig til þess að álagning hækkaði, vegna þess að hún er hlutfallsleg og álagningin kom á hækkað verð. Að sjálfsögðu hefur hækkunin orðið misjöfn á einstökum vörutegundum eftir því hvernig tollum og álagningu hefur verið hagað, en óhætt er að fullyrða að hér var ekki um 12% verðhækkun á vörum að ræða í kjölfar 12% vörugjaldsins, heldur einhvers staðar á milli 17 og 20% verðhækkun, í sumum tilfellum eflaust yfir 20%, eins og bent var á af einum hv. þm. Hér var því augljóslega um mjög mikla útgjaldaaukningu að ræða hjá launþegum í kjölfar setningar þessara brbl.
Mér er ekki kunnugt um að nákvæmir útreikningar hafi verið gerðir á því til hve mikillar útgjaldaaukningar þetta leiddi, en ég hef lauslegar áætlanir um að á ársgrundvelli hafi setning þessara brbl. jafngilt um það bil 4000 millj. kr. útgjaldaaukningu fyrir launþega eða allt að því tvöfalt hærri upphæð en ríkisstj. hafði lofað að lækka beina skatta um í samningunum. Ef þessi áætlun er rétt, — ég viðurkenni fúslega að hún er lausleg og byggist ekki á neinum nákvæmum útreikningum að því er ég best veit, en mjög fjarri lagi er hún ekki, — þá er efni málsins það, að í sambandi við samninga launþega og vinnuveitenda lýsir ríkisstj. því yfir að hún skuli lækka skattabyrðar á almenningi um 2000 millj. kr., en rétt á eftir, án þess að virða launþegasamtökin viðlits, án þess að eiga við þau eitt einasta samtal, þá leggur hún á skatta, að vísu í öðru formi, sem kosta launþega næstum tvöfalt meira. Hér er að sjálfsögðu um að ræða algjörlega óviðunandi framferði. Það er jafnvel um að ræða óviðunandi framkoma gagnvart launþegasamtökunum, að gera slíkt án nokkurs samráðs. Lágmarkskurteisi hefði verið að láta launþegasamtökin vita af því að þetta stæði til, en jafnvel slík kurteisi var þeim ekki sýnd.
Það er því meginefni þessa máls, að í framhaldi af efnd loforðs um 2000 millj. kr. skattalækkun kemur hækkun óbeinna skatta sem nemur allt að því tvöfaldri þeirri upphæð. Það þurfti því engan að undra að launþegasamtökin andmæltu þessum aðförum mjög harðlega, sem þau og gerðu, og teldu hér vera í reynd um brigð að ræða á því samkomulagi sem þau hefðu gert við ríkisstj. í sambandi við gerð launasamninganna.
Þingflokkur Alþfl. lítur þannig á að útgáfa þessara brbl. hafi verið mjög óeðlileg ráðstöfun og auk þess gerð á mjög óheppilegum tíma með hliðsjón af nýgerðum kjarasamningum. Þm. Alþfl. munu greiða atkv. gegn staðfestingu brbl.