12.12.1975
Neðri deild: 29. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1173 í B-deild Alþingistíðinda. (867)
89. mál, vörugjald
Frsm. 2. minni hl. (Lúðvík Jósepsson) :
Hæstv. forseti. Ég hef gefið út sérstakt nál. á þskj. 162 þar sem ég lýsi yfir andstöðu minni við þetta frv. Ég get í rauninni tekið undir allar þær röksemdir sem komu fram hjá hv. 9. þm. Reykv. Meginafstaða mín er sú, að ég tel að þetta gjald hafi verið lagt á með þeim hætti að það hafi í rauninni farið í bága við það samkomulag sem ríkisstj. hafði nýlega gert við launþegasamtökin í landinu. Auk þess er svo það, að þessi sérstaki skattur miðaði auðvitað að verulegri verðlagshækkun í landinu. Er talið að þetta gjald nemi í vísitöluútreikningi í kringum 4%. Þetta var því einn af mörgum liðum sem höfðu áhrif á hina almennu verðlagshækkun á árinu og hæstv. ríkisstj. stóð beinlínis fyrir. Stefnan virðist vera óbreytt hjá hæstv. stjórn, því að nú er hún einnig með tillögu um að bæta við 2% stigum í söluskatti til þess að afla ríkissjóði nýrra tekna, og einnig er lagt til að hækka eignarskatt. Allt miðar þetta auðvitað að hækkandi verðlagi og dregur því ekki úr hinni margumtöluðu verðbólgu sem ríkisstj. talar þó mikið um við viss tækifæri að verði að vinna bug á.
Hér er fyrst og fremst um að ræða staðfestingu á brbl. sem sett voru til takmarkaðs tíma, og þessi lög eiga að falla úr gildi nú um áramót eða eftir fáar vikur. Það hefði vissulega verið viðeigandi að hæstv. ríkisstj. hefði í sambandi við þessa afgreiðslu málsins gefið yfirlýsingu um hvort hún er að hugsa um að framlengja þetta gjald eða hvort það er meining hennar að láta það falla niður nú um áramótin eins og yfirlýsingar voru gefnar um.
En í stuttu máli er afstaða mín sú að ég er á móti þessu og við alþb.- menn munum greiða atkv. gegn þessu frv. Ég tek sem sagt undir öll þau rök, sem hér komu fram hjá hv. 9. þm. Reykv., til viðbótar því sem ég hef þegar sagt um afstöðu mína til málsins.