12.12.1975
Neðri deild: 29. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1174 í B-deild Alþingistíðinda. (869)

89. mál, vörugjald

Forsrh. (Geir Hallgrímsson) :

Virðulegi forseti. Ég vil svara fyrirspurn hv. 5. þm. Vestf. á þá leið að það er ekki útilokað að vörugjald verði framlengt í sama eða breyttu horfi eða samsvarandi gjald verði í gildi á næsta ári. Það, sem úrslitum veldur um svarið, er hver verður endanleg niðurstaða við fjárlagaafgreiðslu. Verður því spurningu hv. þm. ekki svarað skýrar á þessu stigi málsins.