12.12.1975
Neðri deild: 29. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1178 í B-deild Alþingistíðinda. (875)
105. mál, söluskattur
Garðar Sigurðsson:
Herra forseti. Ég vil aðeins segja örfá orð í tilefni af umr. um þetta frv.
Ég vil byrja á því að lýsa yfir að ég er andvígur málinu, en álit okkar alþb.-manna hefur þegar fram komið í ræðu hv. 2. þm. Austurl.
Ég stend upp fyrst og fremst vegna þess sem kemur fram í aths. við þetta lagafrv. Þar segir að áætlað sé að núgildandi tekjustofnar Viðlagasjóðs dugi til að ljúka verkefnum hans í Vestmannaeyjum og á Norðfirði. Ég álít að þessi staðhæfing sé röng, eins og kom skýrt fram í máli mínu þegar rætt var um að taka 200 millj. úr Vestmannaeyjadeild Viðlagasjóðs til Neskaupstaðar. Ég hélt því þá fram og rökstuddi það nokkuð að verulegar upphæðir vantaði til þess að sæmilega væri skilið við endurreisn Vestmannaeyjakaupstaðar. Þessi tekjustofn, 2% af söluskattsstofni, var upphaflega settur til þess að bæta skaða af völdum náttúruhamfara. Nú hefur hins vegar komið í ljós að ríkisstj. ætlar að notfæra sér þennan náttúruhamfara-tekjustofn til þess að halda sér á floti fjárhagslega. Enda má með sanni segja, að það jafngildi náttúruhamförum að slík ríkisstj. sitji við völd.