12.12.1975
Neðri deild: 29. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1180 í B-deild Alþingistíðinda. (879)
97. mál, kaupstaðarréttindi til handa Njarðvíkurhreppi
Friðjón Þórðarson:
Herra forseti. Með fullri virðingu fyrir Njarðvíkurhreppi og íbúum hans vil ég leyfa mér að taka eindregið undir þau orð sem hæstv. dómsmrh. lét falla í þessu máli. Ég held að hv. alþm. verði að fara að gera sér fulla grein fyrir því og horfast af fullri alvöru í augu við það sem hér er að gerast. Á síðasta Alþ. fara að mig minnir fimm hreppar landsins af stað, krefjast kaupstaðarréttinda og fá þau. Nú eru tveir þegar farnir af stað, sennilega fleiri í vændum. Þarna er að hefjast skriða sem ég efast um að menn geri sér fulla grein fyrir hvar endar. Hvað vilja hv. alþm. í þessum efnum? Vilja þeir leggja niður hin einu lögboðnu samtök hreppa á Íslandi í dag, sýslufélögin? Við skulum segja að þeir vilji það. Vilja þeir þá fá landshlutasamtökin í staðinn sem hingað til hafa starfað sem áhugamannasamtök? Það er ekki svo að sjá því að ég man ekki betur en frv. um landshlutasamtök hafi legið fyrir þingi a. m. k. þrisvar sinnum án þess að ná fram að ganga. —Það er aðeins þetta sem ég vil eindregið taka undir, að við verðum allir sem einn að gera okkur fulla grein fyrir því, hvert stefnir í þessum efnum, og reyna að stemma á að ósi á einhvern hátt áður en þessi mál lenda í fullkomnu öngþveiti og vandræðum.