15.12.1975
Neðri deild: 30. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1194 í B-deild Alþingistíðinda. (906)

98. mál, lækkun lögbundinna framlaga á fjárlögum

Benedikt Gröndal:

Virðulegi forseti. Ég get ekki staðist það að láta fram koma þegar í þessari umr. að ég tel að með þessu frv. sé á furðulega einfaldan og ódýran hátt afgreitt býsna stórt og viðamikið mál.

Það hefur verið til siðs hér á landi um langt árabil að ákveðið hefur verið í lögum að veitt skuli fé, annaðhvort vissar upphæðir eða hlutfall af einhverjum öðrum upphæðum, í ákveðnu skyni. Verður að telja að með þeim ákvörðunum hafi Alþ. sett þær fjárveitingar á vissan hátt ofar öðrum, því að þær eru ekki háðar aðstæðum og vilja fjvn. eða Alþ. á hverju ári.

Hér er flutt frv. sem er 6–7 línur þar sem allt þetta er skorið niður um 5%, alveg jöfnum höndum, að tryggingunum undanskildum, sem eiga að fá sérmeðferð, og við vitum hver hún á að vera, a. m. k. ef staðið verður við þau orð sem þegar hafa verið um það höfð. Það er lagt til að skera þetta allt saman niður án tillits til þess hvað í hlut á, og kemur þá ekki til greina hvort ástæða væri til að skera eitt frekar en annað.

Ég viðurkenni að það er rík nauðsyn á því að hafa hemil á ríkisútgjöldum eins og nú standa sakir miklu meira en tekist hefur hingað til og þarf því að gera róttækar ráðstafanir. En er ekki einum of langt gengið að flytja slíkt frv. þar sem ekki er einu sinni látin fylgja með í þskj. skrá yfir hin lögbundnu gjöld sem verið er að skera niður? Það er ekki svo mikið við haft. Það kann að vera að n., sem skoðar málið, geti fengið að sjá slíka skrá. En af hverju er hún eitthvert leyniskjal? Hún kom ekki fram í nál. í Ed. Á ekki þjóðin heimtingu á að fá að vita þetta? Á ekki fólkið, sem í hlut á, í hverri af þeirri starfsgrein sem hefur notið fastra fjárveitinga, heimtingu á að fá að heyra um það? Svona almennar heimildir eru allt of einfaldar til þess að hægt sé að bjóða löggjafarþingi þær nú á dögum. Ég undrast það stórlega að hæstv. ríkisstj. skuli leyfa sér að gera það. Mér finnst það lágmark að það fylgi með frv. skrá yfir hver þessi gjöld eru svo að við vitum hvað við erum að gera, hvað það er sem við erum að skera niður um 5%. Það gæti verið að við vildum skera eitthvað niður um 10%, en annað ekki. Og eins væri ástæða til að fá að vita hve miklum upphæðum þetta nemur í hverju tilviki. Það er eytt klukkutímum í að svara fsp. um alls konar atriði í opinberum fjármálum sem eru hreinir smámunir í samanburði við þetta.

Ég tel að það sé fyrir neðan allar hellur að leggja fram frv. eins og þetta og ætla að það verði afgreitt nálega fyrirvaralaust, og algjört lágmark er að d. öll eða raunar þingið allt fái skrá yfir hvaða gjöld það eru sem eru lögbundin og verið er að skera niður og hversu stórum upphæðum þau nema.