15.12.1975
Efri deild: 28. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1206 í B-deild Alþingistíðinda. (920)

121. mál, almannatryggingar

Ragnar Arnalds:

Herra forseti. Ég segi nú eins og seinasti ræðumaður, að ég hafði engar spurnir haft af þessu frv. þegar fundur var boðaður í í þessari hv. d., og ég verð að segja að mér finnst það alveg óforsvaranleg vinnubrögð að þannig sé staðið að málum, að mál séu hér tekin til umr. samstundis og þeim hefur verið útbýtt hér, — mál sem bersýnilega eru mikil stórmál. Staðreyndin er sú, að við höfum beðið eftir því að fá inni í þingið frv. sem fæli í sér efndir á yfirlýsingum hæstv. fjmrh. um 2000 millj. kr. sparnað á ríkisútgjöldum. Ég er ekki að segja að við höfum verið ýkjahrifnir af þeim áformum, en það var frv. sem menn áttu von á að sjá hér í dag. Svo kemur allt í einu þetta frv. og er þá allt annars eðlis. Í staðinn fyrir að fjalla um 2000 millj. kr. sparnað á ríkisútgjöldum er um að ræða 1600 millj. kr. nýjar skattálögur á almenning, — álögur sem eru lagðar á almenning á eins óréttlátan hátt og hugsast getur.

Það leynir sér ekki enda þótt ég og aðrir hv. þm. hafi ekki haft nema fáar mínútur til að kynna sér þetta mál, að hér er um stórmál að ræða. Undanfarnar víkur og mánuði hefur farið fram hér á Alþ. og í blöðum mjög einkennilegur skopleikur. Sjálfstfl. hefur marglýst því yfir að það sé á stefnuskrá hans að draga úr ríkisútgjöldum, og flokknum hefur verið mikið í mun að sanna að hann geti komið þessu áhugamáli sínu í framkvæmd. Af þessari ástæðu hefur verið ráðist á margar brýnustu nauðþurftir almennings og þær skornar niður. Sjúkrahúsabyggingar, skólabyggingar, framlög og lánveitingar til námsmanna, allt hefur þetta lent undir niðurskurðarhnífnum. Nægir að minna á að t. d. skólabyggingar fá framlög á þessu ári sem nema nákvæmlega sömu upphæð og var á s. l. ári, en það er í reynd niðurskurður um 1/3 vegna þess að framkvæmdakostnaður hefur aukist um 50% milli ára. En þetta hefur ekki reynst flokknum nægilegt. Þetta hefur ekki fullnægt þeim ofstækisfyllstu í Sjálfstfl. sem gera kröfu um að ríkisútgjöld séu skorin enn frekar niður, og þá er gripið til hinna ótrúlegustu ráða til þess að reyna að blekkja þessa ágætu stuðningsmenn Sjálfstfl. og allan fjöldann og láta þá halda að niðurskurður hafi átt sér stað. Ég nefni hér sem dæmi nýlegt frv. sem fól það eitt í sér að ríkissjóður greiddi ekki laun húsnæðismálastjórnar eða laun framkvæmdastjóra Húsnæðismálastofnunarinnar, heldur skyldi Byggingarsjóður ríkisins greiða þessi laun. Frv. er flutt í þeim eina tilgangi að færa úr vinstri vasanum yfir í þann hægri, þannig að hægt væri að ljúga því að almenningi að þarna væri falinn nokkur niðurskurður á ríkisútgjöldum.

Frv., sem hér birtist, er mjög svipaðs eðlis. Þar er að vísu um að ræða 500 millj. kr. sparnað, sem er fólginn í því að kostnaður, sem asmasjúklingar, glákusjúklingar, berklasjúklingar, flogaveikisjúklingar, hjartasjúklingar á sumum stigum og sjúklingar með efnaskiptasjúkdóma og krabbamein, — kostnaður sem þessir sjúklingar hafa fram að þessu sloppið sæmilega frá, hann er stórlega hækkaður. (Sjútvrh.: Í hvaða grein er hann hækkaður?) Já, ef hæstv. ráðh. mótmælir þessu atriði, þá skal það tekið til endurskoðunar, en ég veit ekki betur en að hér sé um að ræða að lækka útgjöld sjúkratrygginga um 280 millj. og gera breytingar á greiðslum fyrir sérfræðilæknishjálp og rannsóknir um 200 millj. kr. Nei, ég hef líklega misskilið þetta atriði, en það skýrist ósköp einfaldlega af því að tími hefur verið ákaflega lítill til að kynna sér þetta frv. og vona ég að það verði fært til betri vegar. Ég mun hafa lesið skakkt, þessir sjúklingar munu ekki verða fyrir kostnaðarauka af þessum sökum. En hitt liggur fyrir, að kostnaður hjá sjúklingum mun stórlega vaxa, og þarf ég ekki að ræða það frekar. Þar er um að ræða 480 millj. kr. útgjaldaauka.

En hitt málið er svo aftur stóra málið. Það er það, að áætlunin er að velta 1200 millj. kr. yfir á sveitarfélögin með því að leggja á þau 1% útsvar. Hér er sem sagt alls ekki um að ræða tryggingamál, hér er ekki um að ræða sparnaðarmál, heldur er einfaldlega um að ræða skattamál. Það á enn að auka álögur á allan fjöldann með því að hækka útsvarið um 1%. Ég vil leyfa mér að minna á að þessi ríkisstj. hefur staðið fyrir stórauknum skattaálögum á almenning. Hún hefur hækkað nú þegar söluskatt um 3% og er að hækka söluskatt um 2% til viðbótar. Hún hefur sett á sérstakt tollvörugjald sem nemur 1200 millj. kr. Og nú á sem sagt að fara að bæta við þessum skatti sem er brúttóskattur sem leggst eingöngu á launafólkið, en alls ekki á atvinnureksturinn. Ég vil sérstaklega benda hv. dm. á það atriði, hversu ósanngjarn þessi skattur er. Hann er eingöngu lagður á launafólkið í landinu og er að sjálfsögðu með óréttlátari skattstofnum sem hægt er að finna.

Ég vil minna á það í þessu sambandi að hér á Alþ. hafa farið fram talsverðar umræður um skattamál að undanförnu. Það hefur verið bent á að tekjuskattslöggjöfin væri hið mesta hneyksli og að það væru ekki færri en 430 fyrirtæki í Reykjavík sem slyppu algjörlega við að greiða tekjuskatt. Það hefur verið bent á að þessi fyrirtæki hafa yfir 20 þús. millj. kr. í veitu á hverju ári og að með breytingum á tekjuskattslöggjöfinni væri hugsanlegt að auka tekjur ríkisins sem nemur 3–4 þús. millj. kr. Því miður hefur hæstv. ríkisstj. og stuðningsmenn hennar hér á Alþ. ekki verið reiðubúin að ræða um þessi mál. Þegar við fluttum hér tillögu um endurskoðun fyrningarákvæða, afnám flýtifyrningar og afnám fyrningarstuðuls, var ekki nokkur leið að hemja einn einasta ráðherra í þingsalnum til þess að ræða slík mál, þó að þar væri um að ræða tekjuauka fyrir ríkissjóð sem nemur nokkrum þús. millj. Þegar síðan kemur í ljós að það vantar meiri tekjur til ríkisins, þá er ríkisstj. ekki lengi að finna lausn á vandamálum sínum. Þá skal bara lagður 1% brúttóskattur á alla launamenn í landinu og þá að sjálfsögðu séð um að hafa skattstofninn á þann veg að atvinnufyrirtækin í landinu, sem ekkert greiða, sleppi líka í þessu tilviki.

Ég tel enga þörf á því að fjölyrða um þetta mál. Ég vil bara undirstrika það hér að þetta er fyrst og fremst skattamál sem verið er að bera hér á borð fyrir hv. alþm., en ekki tryggingamál, og ég vil algjörlega mótmæla því að þessi skattur verði á lagður. Ég tel að þessi brúttóskattur sem er að sjálfsögðu óréttlátur í eðli sínu, sé nógu hár í dag. Hann hefur sérstaklega verið ætlaður sveitarfélögunum til tekjuauka. Öllum er kunnugt um að hagur sveitarfélaganna er ekki of góður í dag, og ef menn telja að unnt sé að hækka útsvör úr hinum almenna 10% skattstiga í 11%, þá eru það tekjur sem sveitarfélögin hafa sannarlega þörf fyrir. En þegar ríkið ætlar sér að ryðjast inn á þetta skattasvið sveitarfélaganna, er þá það auðvitað ekkert annað en hreint hneyksli. Og þegar um það er að ræða að ríkið ætlar sér að ná í auknar tekjur, að þá skuli það ekki sjá neinn annan möguleika heldur en skatt sem sleppir atvinnufyrirtækjunum í landinu, það er líka að sjálfsögðu hið mesta hneyksli ofan á þau hneyksli sem fyrir eru og margsinnis hefur verið bent á að undanförnu hvað tekjuskattslöggjöfina snertir.