16.12.1975
Sameinað þing: 34. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1239 í B-deild Alþingistíðinda. (935)

1. mál, fjárlög 1976

Jón Árm. Héðinsson:

Herra forseti. Ég vil í upphafi þakka meðnm. mínum fyrir það tímabil sem n. hefur starfað við þessa fjárlagagerð á yfirstandandi hausti, en jafnan er ágæt samvinna í þessum hópi, þó að skoðanaágreiningur um einstök atriði sé eðlilega fyrir hendi. Við ræðum það og skiptumst á viðhorfum gagnvart einstökum erindum, en samstarfið í heild er gott. Einnig vil ég þakka frsm. nál. okkar hjá minni hl., en hann hefur gert ítarlega grein fyrir afstöðu okkar og get ég því stytt mál mitt mjög. Ég ætla þó að stikla á einstökum atriðum, einstökum málaflokkum, öllu nánar.

Ég sagði hér í umr. 28. okt. s. l.: „Eins og ég hef þegar getið um er ekki unnt að taka þetta fjárlagafrv. of alvarlega, þar sem það byggir á mjög mörgum frv. er enn hafa ekki verið lögð fram og munu jafnvel ekki, a. m. k., mótuð enn þá og því síður rædd í stjórnarflokkunum. Ég dreg persónulega í efa að öll frv. gangi fram eins og fjárlagafrv. gerir ráð fyrir.“ Þetta sagði ég þá og því miður er það svo nú 16. des. að Alþ. hefur ekki enn mótað þá lággjöf sem fjárlagaafgreiðslan byggir á og þó höfum við aðeins tvo eða í hæsta lagi þrjá starfsdaga fram undan. Það er því örugglega við alveg frábærlega undarlegar aðstæður sem okkur er gert að fjalla um fjárl. við 2. umr., einkanlega þegar geymdir eru til 3. umr. stærri málaflokkar en hefur átt sér stað um langt árabil, jafnvel áratugi. Svo seint gengur að móta ákveðna stefnu, þó að við í stjórnarandstöðunni teljum augljóst að hverju sé stefnt. Samt sem áður er vitað að ekki eru allir á einu máli um þá stefnumótun og því ganga mál hægt fram í stjórnarherbúðunum.

Ég drap í ræðu minni í haust á að vissir málaflokkar hlytu að fá betri meðferð og nauðsyn væri á auknu fjármagni, og ætla ég að minnast á fáeina hér.

Okkur bárust í hendur varðandi sjúkrahús till. rn. í þeim efnum og þær sýndu nauðsyn upp á 1013 millj. kr. og var gerð mjög góð grein fyrir því fjármagni. Frv. gerir hins vegar ráð ~fyrir að við notum 717 millj. kr. Það var ekki með neinu glöðu geði hjá meiri hl., það fann maður þegar til endanlegrar afstöðu kom, að þurfa að lækka till. sem lágu á borðinu frá rn. og í ljós kom að hæstv. fjmrh. eða ríkisstj. hélt sér fast við töluna 717 millj. og þar við skal standa. Þó eru enn óleyst mörg vandamál varðandi sjúkrahúsin, einkanlega varðandi Landsspítalann og vissa staði úti á landi, en sérstakt vandamál er tengt Landsspítalanum sem væri fróðlegt að fara út í, en mundi taka alllangan tíma, en ég ætla þó að drepa eilítið á.

Það var langur aðdragandi að því að samkomulag tækist um skipulegar framkvæmdir á landsspítalalóðinni og sérstök yfirnefnd var skipuð í því skyni. Þetta samstarf var undirbúið 1970, þannig að allir stjórnmálaflokkar hafa átt aðild að ríkisstj. er hafa starfað á þessu tímabili við mótun á þessari stefnu. Það er ljóst mál, að hér er stefnt að ákveðnu markmiði, og grundvallaratriði í þessu markmiði er, að sú áætlun, sem gerð var fyrir nokkru og menn urðu sammála um að stefna að, raskist ekki. Ef ekki verður hlustað á nokkru ríflegri fjármögnun en þegar er gert, segja forsvarsmenn þessarar áætlunar og hafa lagt fram um það gögn, er sýnt að þessi áætlun raskist, og þeim líta það mjög alvarlegum augum. Þeir hafa komið á fund n. nú í ár og gerðu það einnig í fyrra og töldu að afar naumt væri til þeirra skammtað. Að vísu er það svo, að verðbólgan eyðir fé örar en fram er lagt, og því kann að vera við sérstaka erfiðleika að etja í þessu efni. En meginforsenda þess, að hægt sé að una því að ekki náist allt fram, er að staðfesting liggi fyrir um að heildarsamkomulagið haldi áfram. Það leggja allir áherslu á. Mér er óhætt að segja að það leggja allir fjvn: menn áherslu á þó að hæstv. ríkisstj. hafi ekki enn treyst sér til að sinna þessari áætlun að fullu. Sérstakt blað kom frá læknaráði Landsspítalans, þar sem þeir undirstrika lífsnauðsyn á því að fá 90 millj. til sérstakra tækjakaupa og telja upp hvað um er að ræða og raða því í forgangsröð. Þetta er alllangt bréf sem ég ætla ekki að lesa, herra forseti, en er til rannsóknarstofu í meinefnafræði, í blóðmeinafræði a. m. k. 25 millj., í röntgendeild, breytingar 15 millj., sótthreinsunardeild, innrétting 10 millj., lyfjabúrið, innrétting 10 millj., það er á því stigi að ekki er talið með nokkru móti fært að hafa það lengur við núverandi aðstæður, skurðstofugangur, breytingar 5 millj. og nokkrir aðrir þættir sem gera samtals 20 millj. Svo er fæðingardeild. endurnýjun á gömlu byggingunni, fyrsti hluti, 20 millj. Sá þáttur er í svo ömurlegu ástandi að ekki er hægt að skýra frá því hér að mínu mati og annarra úr ræðustóli í hve ömurlegu ástandi sá þáttur er sem þeir fara fram á að fé sé veitt til. Þannig er nú ástandið á landsspítalalóðinni. Ég fæ ekki með nokkru móti séð annað en það verði að hlusta á þetta, ef ekki fæst fjármagn úr ríkissjóði beint, þá a. m. k. að okkur sé gerð grein fyrir því síðar að sérstök lánahreyfing skapi svigrúm í þessu efni. Þetta og fleiri þættir, undirstrika að fjárl. ern enn of mikið pappírsgagn til að taka þau alvarlega.

Hafnaþátturinn, sem frsm. minni hl. drap á áðan, er einnig mjög athyglisverður. Það var gerð áætlun og til þess að standast þá áætlun hefðum við þurft í ár um 1500 millj. kr. En í fjárlagafrv. eru 684 millj. kr., þar af hefur verið eytt nokkuð á annað hundrað millj. kr. fyrirfram á yfirstandandi ári, þannig að til beinnar ráðstöfunar á næsta ári eru 520 millj. kr., þ. e. a. s. þriðjungur af þeirri krónutölu sem talið er nauðsynlegt að til sé svo að við höldum fyrirframgerðri áætlun. Ekki er nú betur staðið í ístaðinu en þetta varðandi hafnirnar. Síðan eru að vísu landshafnir sem fjármagnaðar eru með lántöku, og er það sérmál sem ekki er búið að afgr. enn þá og ég eyði því ekki orðum að.

Annar þáttur, sem ég ætla aðeins að fjalla um, er þáttur á íþróttasviðinu. Sú var tíðin að hæstv. núv. menntmrh. flutti hér till. um eflingu íþróttaiðkana í skólum landsins, einnig á framhaldsskólastigi. Þessi till. fékk hljómgrunn hjá þm. úr öllum flokkum, og virtist manni að við, sem höfum áhuga á þessum málaflokki, ættum góðan stuðning á Alþ. En hvað skeður nú? Íþróttahreyfingin fær fjármagn sem er í algjöru lágmarki og vantar mikið á að henni sé sinnt.

Mín skoðun er sú, að íþróttahreyfingin útvegi ríkissjóði fjármagn með sinni miklu starfsemi úti um allt land, sínum miklu umsvifum og aukinni sölu í kringum það og margvíslegum skattamöguleikum sem ríkissjóður fær í gegnum starfsemi sem íþróttahreyfingin stuðlar að að eigi sér stað. Ég veit ekki hvort eitthvert samhengi er í því að hafa svo naumt fjármagn í flugvöllunum að flugmálastjóri hótar því, að þeir leggist niður, og er svo nefnt að taka megi flugvélina til íþróttanotkunar. Eru þá slegnar tvær flugur í einu höggi og þykir sumum vel gert. Ég ætla ekki að dæma um það, en ég vænti þess að hæstv. fjmrh., sem er mjög íþróttasinnaður maður og hefur haft áhuga á því um árabil, líti til íþróttahreyfingarinnar fyrir 3. umr. og veiti henni betri úrlausn en liggur fyrir að verði gert í dag.

Íþróttakennaraskólinn á Laugarvatni býr við svo ömurlega aðstöðu að það nær ekki nokkurri átt lengur. Er óhjákvæmilegt að sinna málefnum hans eitthvað. Kennsluaðstaða er þar í algjörlega óviðunandi húsakynnum og þrengsli slík að jafnvel búningsklefar eru notaðir undir kennslustundir, kennarinn getur sig hvergi hreyft, þó að í íþróttaskóla sé, og nemendum er hrúgað þar saman. Einnig hefur viðhald á íþróttamannvirkjum þar verið vanrækt í mörg ár og nær ekki nokkurri átt að halda slíku fram, þar sem þetta er eini skóli landsmanna á þessu sviði.

Ég lít svo á að öll heilbrigð hreyfing og íþróttir séu fyrirbyggjandi aðgerðir sem dragi úr kostnaði á öðrum sviðum. Má í því sambandi nefna að daggjald í Landsspítalanum í dag er 13 þús. kr. á sjúkling, hvorki meira né minna, svo að það er allgott verk sem íþróttahreyfingin vinnur með því að fækka sjúklingum á sjúkrahúsum. Ég er leiðréttur nú í ræðustóli að þau eru komin á síðustu mánuðum upp í 17 þús., en vomu framan af árinu nálægt þeirri tölu sem ég nefndi. Þetta dæmi er aðeins um hversu ört þessi kostnaður vex, en hann mun nú vera hæstur á Landsspítalanum, en á öðrum sjúkrahúsum nokkru neðar sem eðlilegt er. En þetta sýnir aðeins að þær aðgerðir, sem eru þess eðlis að skapa heilbrigt fólk, heilbrigðar sálir í hraustum líkama, má ekki vanmeta, alls ekki.

Lánasjóður námsmanna er enn óleyst vandamál. Þó var því lofað á sínum tíma að frv. um þessi mál skyldi liggja fyrir þinginu, en er enn ekki komið fram. Forsvarsmenn Lánasjóðsins hafa komið á fund n. og sent a. m. k. sumum alþm. grg. um vandræði sín, og eftir því sem þeir segja munu margir námsmenn gefast upp í vetur við áframhaldandi nám ef ekki er sinnt beiðnum þeirra. Menn hafa verið með mismunandi tölur í því sambandi, en ég tel að vægast sagt verði talan 400 millj. að ná fram að ganga. Sumir tala um allhærri tölu. Einnig er annar þáttur, framlag til jöfnunar á námskostnaði hér á landi. Þetta er liður sem er mjög vanáætlaður og vantar nokkra tugi millj. svo að nemendur í framhaldsskólum geti stundað nám með eðlilegum hætti. Þetta eru ekki stórar tölur, en það er afar slæmt ef þessari beiðni er ekki sinnt, og sjá þá margir fram á það, einnig yngri nemendur, að þeir lenda í vandræðum í vetur. Fjvn. hefur fengið greinar gott yfirlit yfir þessi mál, og ég vænti þess, að liðsinni komi nú á milli 2. og 3. umr. í þessu efni.

Einn þáttur, sem er óleystur enn þá, en tekur til sín verulegt fjármagn, er landhelgisgæslan, en hún mun þurfa örugglega á annað hundrað millj. í viðbót við núv. tölur í fjárlagafrv. ef ekki meir.

Nokkra aðra þætti mætti nefna, en þeir gera samtals, eftir því sem við vitum best um 1000 millj. kr. til hækkunar. Þar á meðal er Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins, loforð um greiðslur og lán til togara, vegagerð, vextir, kaupin á Þórshamri áætluð um 45 millj. kr., Lífeyrissjóður sjómanna a. m. k. 20 millj. og fleiri þættir. Þessir þættir samtals auka útgjöld ríkissjóðs, að því er best verður séð, a. m. k. um 1000 millj. kr.

Nú hefur Þjóðhagsstofnunin gert nýja spá um tekjumöguleika og kemst að því að ekki er úr miklu að moða frá því, sem áður hefur verið sagt, varðandi næsta ár. Við í minni hl. álítum því, eins og kom fram hjá frsm. okkar áðan, að hæstv. ríkisstj. muni grípa til þess ráðs að fella ekki niður 12% gjaldið. Þrátt fyrir það að þetta sé í huga okkar höfum við séð að fram er lagt frv. um lækkun til almannatrygginga um allt að 1.7 milljarð, og það var gert með svo skjótum hætti í Ed. í gær að ekki vannst svigrúm til að lesa frv. áður en það var tekið til umr., og svo stórt mál og svo viðkvæmt mál sem það er, á það að fá afgreiðslu nú á tveimur síðustu dögum þingsins fyrir jól. Almenningur í landinu hefur gagnrýnt störf Alþ. og talið það með rislægra móti undanfarið. Ekki verða þessi vinnubrögð til þess að auka hróður okkar í því efni að vanda til verka.

Það er mjög alvarlegt mál og stórmál, hvernig verkaskipting á að fara fram á milli sveitarfélaga og ríkis. Nú fyrir nokkru var haldin ráðstefna á vegum sveitarstjórna í landinu og þar var fjallað um hugsanlega breytingu á verka skiptingu á milli ríkis og sveitarfélaga. Almennt séð held ég að margir séu á því að sveitarfélögin hafi svigrúm og jafnvel áhuga á því að taka til sín aukin umsvif og fylgist þannig með kostnaðarhlutfalli í þeim þáttum sem þau eiga að leggja fram til á móti ríkinu. En hvergi nærri er enn þá mótuð ákveðin stefna í þessu efni, og ég sé ekki annað, ef hespa á fram visst frv. sem fjárlagafrv. gerir ráð fyrir og fjárlagagerð gengur út frá að nái fram að ganga, en að þá verði hér allmikill misbrestur á.

Í greinargóðri skýrslu, sem lá fyrir þessari ráðstefnu, eru taldir upp mjög margir þættir er skipta á milli sín kostnaðarhlutfalli af hálfu ríkissjóðs af hálfu sveitarfélaga. Það eru, eins og alþm. vita, grunnskólar, fræðsluskrifstofur, iðnskólar, húsmæðraskólar, tónlistarskólar, dagvistunarheimili, félagsheimili, Íþróttasjóður, vatnsveitur, vinnumiðlun, heimilishjálp, sjúkratryggingar, atvinnuleysistryggingar, Bjargráðasjóður, bygging heilsugæslustöðva, sjúkrahús o. s. frv., rekstur heilsugæslustöðva, rekstur heilsuverndarstöðva, elliheimili, hafnamál, vegagerð og Byggingarsjóður verkamanna. Þetta eru þeir þættir sem ríki og sveitarfélög skipta milli sín kostnaði stofnkostnaði og rekstrarkostnaði. Ríkið er yfirleitt sá stóri aðili er leggur mikinn meiri hl. fram. Þó er það nokkuð misjafnt og ætla ég ekki að fara að rekja það. En þetta eru flókin mál og snerta raunverulega hvern einasta þegn í landinu og er ekki auðhlaupið að því að breyta hér til skyndilega. Samt sem áður eiga mörg frv., jafnvel yfir 10 frv., að koma fram er breyta viðmiðun í stofnframlagi og rekstrarframlagi þessara þátta. Þau eiga að koma fram núna og hafa sum komið fram á síðustu dögum þingsins og fá mjög skjóta og yfirborðslega meðferð, vægast sagt.

Þetta hörmum við í minni hl. og höfum tilhneigingu til að álykta að meira kapp sé lagt á að fá prósentusamanburð á útgjöldum ríkisins á milli ára heldur en raunhæft mat á því hvað er rétt skipting hjá ríkissjóði og sveitarsjóðum. Þetta gagnrýnum við. Þó að það sé virðingarvert að halda vel í útgjöld ríkissjóðs, þá má ekki blinda menn með tölum í fjárlagafrv. og fjárlögum, að þensla milli ára hafi verið þetta og þetta mörg prósent. Reynslan er sú, og svo segir mér hugur um að einnig muni verða við þessa fjárlagaafgreiðslu, að eftir eitt eða tvö ár birtist frv., sem heitir fjáraukalög, og þá hafi hæstv. fjmrh. og ríkisstj. neyðst til þess að spýta í byssuna á komandi ári og fara langt fram úr gildandi fjárlögum og biðja Alþ. síðar meir að samþ. nokkur hundruð millj. kr. summu eða jafnvel meira, en þá gleymist bara að nefna prósentuna í samanburðinum á milli ára. Þannig eru menn að reyna að leika sér að tölum til þess að sanna almenningi að stefnan sé heilbrigð og rétt og vel staðið á hemlinum, eins og hæstv. ráðh. hefur orðað það sjálfur, að hans hlutverk væri að standa vel á hemlinum. (Gripið fram í.) Já, það veitir ekki af að standa fast á verðbólguhemlinum.

Einn þáttur, sem má víkja að og ég gerði í framsögu minni, er sá þáttur sem Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins á að gefa ríkissjóði, en það er áætlað að ríkissjóður hafi yfir 6 milliarða á næsta ári í nettótekjur út úr starfsemi þeirrar stofnunar. Það eru sem sagt rúmlega 10% af brúttótekjum ríkissjóðs. Þetta er allmyndarlegur baggi. Þó er komið svo vegna ákafa ríkissjóðs að ná í tekjur af vini, að það hefur komið í ljós að hækkunin var svo ör að magnminnkun átti sér stað síðla ársins. Út af fyrir sig fagna ég slíkri þróun, en hitt er jafnóhuggulegt, að staða ríkissjóðs skuli ekki vera betur tryggð en það að hann treysti á tíundu hverja krónu frá þessum tekjustofni. Það harma ég aftur á móti.

Flugmálastjóri hefur mjög gagnrýnt rýra fjárveitingu til flugmála, og ef hann stendur við orð sín kann svo að fara öryggisins vegna að á næsta ári verði flugferðum fækkað á vissa staði á landinu. Þetta er mjög alvarlegt mál, því að ekki er sæmandi að við höfum flugið ekki í eins miklu öryggi og framast er unnt, og hitt er verulegt spor aftur á bak, ef samgöngum í lofti hrakar. Það er okkar stóri þáttur að geta haft heilbrigðar samgöngur í lofti og hefur verið ómissandi fyrir hinar dreifðu byggðir. Nær ekki nokkurri átt að vera með svo rýrt framlag, jafnvel þó að lán þurfi til, að svona yfirlýsingar komi fram af hendi þeirra manna sem eiga að sjá þessum málum farborða. Ég ætlast til þess — og ég veit að það gera fleiri alþm. — að þetta mál verði skoðað gaumgæfilega, enda er þetta eitt af þeim málum sem þarf að athuga mun betur. En það eru mjög margir málaflokkar, eins og fram hefur komið, sem bíða til 3. umr., og veit maður ekki hvernig úr muni rætast, þrátt fyrir það að hart hefur verið eftir rekið að fá svar varðandi niðurstöðu af fjármagni til þeirra rekstrar- og framkvæmdaliða sem þeir taka til.

Það er skoðun okkar í minni hl., að sú þróun, sem þetta fjárlagafrv. boðar, sé öfug. Hinn sameiginlegi þáttur frv. eða sá þáttur, sem veitir fjármuni til sameiginlegrar þjónustu og öryggis fyrir þegnana í landinu, er skorinn niður. Veruleg útþensla á sér stað á þeim þáttum, a. m. k. sumum hverjum, er snerta beinar framkvæmdir og beinan rekstur í þjóðarbúskapnum. Því var þó lofað á sínum tíma, að það yrði sérstaklega athugað. En eins og fram kom í framsögu hjá frsm. minni hl. söknum við þess, að ekki skuli vera haldið áfram með að athuga rekstur hjá vissum ríkisstofnunum. Til þess var mynduð á sínum tíma svonefnd undirnefnd fjvn. sem tók rekstur vissra ríkisstofnana alvarlega til meðferðar, ræddi við forsvarsmenn, kom á staðinn og skoðaði ýmislegt í framkvæmd hjá þessum stofnunum og veitti að mínu mati og ég held allra nm. verulegt aðhald. Þessi starfsemi hefur nú lagst niður. Þó innti ég hæstv. fjmrh. eftir þessu í umr. í Ed., til umr. var frv. um 5% lækkunina, og gat hann þess þá að hæstv. rn. væri reiðubúið til samstarfs við fjvn. Hins vegar álít ég, að það eigi að vera að frumkvæði hæstv. ráðh. eða fjmrn. sem þessi starfsemi á sér stað. Við í fjvn. mundum fagna því ef þetta yrði tekið upp að nýju og viss ríkisfyrirtæki gerðu rækilega grein fyrir fjárfestingaráformum sínum, rekstrarkostnaði og auknum umsvifum, eins og þau jafnan vilja túlka það er þau koma í heimsókn til okkar í fjvn. og biðja um aukið fjármagn. En ekki vantar að margar beiðnir liggja fyrir um stórar upphæðir á hverju hausti og eru jafnan túlkaðar sem óhjákvæmilegar tölur svo að starfsemin megi halda áfram við óbreyttar aðstæður.

Í fjárlagafrv. eru 117 starfsmenn ríkisins merktir stjörnu, og ekki liggur fyrir með hvaða hætti þeir verða áfram til starfa hjá ríkisvaldinu. Við teljum nauðsynlegt að þessi mál séu stokkuð upp og þeim sé komið á hreint. Margir þessara stjörnumerktu manna hafa starfað mörg ár hjá ríkinu, en njóta ekki fullra réttinda, og er óviðunandi að halda slíku áfram. Launaþáttur frv. er óraunsær. Hann hefur ekki verið endurmetinn og hlýtur að hækka. A. m. k. vitum við að laun hafa hækkað síðan frv. var lagt fram, og sá útgjaldaauki, sem þess vegna kemur fram, ætti að setjast í tölur og koma ljóst fram er frv. verður endanlega afgr. Þetta ásamt mörgu fleiru gerir það að verkum, að enn lít ég svo á að frv. sé að verulegu leyti pappírsplagg sem við vitum ekki hvaða mynd tekur, þrátt fyrir það að aðeins tveir eða þrír starfsdagar eru eftir af Alþ. til að móta frv. endanlega í lagaform.