16.12.1975
Sameinað þing: 34. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1263 í B-deild Alþingistíðinda. (939)

1. mál, fjárlög 1976

Helgi F. Seljan:

Herra forseti. Hér hefur áður verið rætt af fulltrúa Alþb. í fjvn. um þá heildarstefnu sem fjárlög þessi taka mið af. Það þarf vissulega litlu við það að bæta. Eitt er a. m. k. fullvíst, og það er að mörgum mun illilega bregða við á næsta ári varðandi framkvæmdir úti á landsbyggðinni, því að á engu kemur þessi stefna harðar niður en á þeim brýnu verkefnum sem þar bíða hvarvetna úrlausnar. Menn eiga eftir að sjá hverjar afleiðingar það kann að hafa í atvinnumálum hinna ýmsu staða sem dæmast nú til að draga úr framkvæmdum sínum þó að heimafjármagn sé fyrir hendi. Ekki bætir úr skák að sú breyting á verkefnaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, sem fyrirhuguð er og var að birtast okkur nú í dag, hlýtur blátt áfram einnig að leiða til minnkandi framkvæmda á vegum sveitarfélaganna, svo að aum eru þau skipti fyrir sveitarfélögin sem þar eru helst ráðgerð, fyrir svo utan það, að þar er um sumt verið að umbylta og eyðileggja löggjöf sem sett var beinlínis sem hvati og styrkur fyrir sveitarfélögin í sumum þörfustu samfélagsverkefnum okkar tíma. Þetta frv. hefur nú loksins séð dagsins ljós, það hefur verið býsna ljósfælið, enda ekki nema von þegar maður hefur það

loks augum litið. Menn hafa greinilega verið hræddir við afkvæmi þetta, sem er þó í ljósu samræmi við stjórnarstefnuna í heild.

Mér eru annars skólamálin og skólabyggingarnar einkum hugstæðar af eðlilegum ástæðum. Fyrir skömmu var samþ. hér á Alþ. merk löggjöf fyrir grunnskólastigið, — löggjöf sem krafðist framkvæmda á mörgum sviðum, ekki síst í skólahúsnæði. Virk og sem skjótust framkvæmd þessarar löggjafar er ótvíræð nauðsyn og í kjölfar hennar endurskoðun og nýskipan framhaldsnáms, einkum í þágu verkmenntunar og atvinnuþróunar okkar. Það frv. til fjárlaga, sem við höfum nú fyrir augunum, er hér í hrópandi mótsögn. Skólabyggingar á grunnskólastigi dragast stórlega saman að framkvæmdagildi, og eins og hæstv. síðasti ræðumaður vék að, þegar að iðnskólunum kemur, þá kastar fyrst tólfunum. Til stofnkostnaðar þessa merka menntunarþáttar er varið hvorki meira né minna en 32 millj. kr. Það væri skömm að segja að yfir þessu væri mikil reisn, ekki síst þegar þess er gætt að í haust var því lýst yfir sérstaklega að efnahagserfiðleikar okkar mættu fyrir enga muni bitna á þessum þætti því að stefna stjórnvalda væri umfram flest annað að tryggja eflingu verkmenntunar í landinu. Fagrar efndir eru þetta nú á fyrirheitinu því, 32 millj. samtals til 9 iðnskóla. Vonandi breytist þetta háðsmerki eitthvað milli 2. og 3. umr., og til þess er einmitt till. sú flutt sem hv. þm. Gils Guðmundsson mælti fyrir áðan og ég er meðflm. að.

Í nánum tengslum við skólamálin kemur að þætti sem enn mun von til að geti skánað, ekki síst þegar þess er gætt að hér er um sérstakt gamalt baráttumál annars stjórnarflokksins að ræða, þ. e. a. s. Framsfl., sem einnig ber ábyrgð á þessum málaflokki. Hér er um að ræða jöfnun á námskostnaði til landsbyggðarnemenda sem skv. frv. til fjárl. var lækkuð um 5% frá í fyrra í stað þeirrar óhjákvæmilegu hækkunar sem hlaut að stafa af 50–60% hækkun á framfærslukostnaði þessara nemenda milli ára. Var þó upphæðin í fyrra, um 30 millj. kr., of lág miðað við fulla framkvæmd þeirra laga þá skv. upplýsingum formanns námsstyrkjanefndar, sem er enginn annar en fyrrv. þm. framsóknarmanna Sigurvin Einarsson. Því skal nú treyst, þó að svo virðist sem á fátt gott megi treysta nú, að á þessu verði veruleg lagfæring við 3. umr., og sérstaklega skal skorað á hæstv. menntmrh. að beita nú sínum mikla áhrifamætti, sem hann vissulega hefur hér yfir að ráða, til þess að hér verði veruleg lagfæring á gerð.

Ég skal ekki lengja þessar umr. um almenna stefnu og afleiðingar frv. þess til fjárl. sem nú á að afgr. í vikunni. Það hefur verið nægilega gert.

Oft er á það bent að ekki sé nóg að gera útgjaldakröfur, tekjur þurfi að hafa á móti. Við alþb.-menn höfum bent á ýmsar tekjur sem ríkissjóður gæti hæglega náð, t. d. af fyrirtækjum og atvinnurekstri í landinu, ef vilji væri fyrir hendi. En við því býst náttúrlega enginn undir því stjórnarfari sem nú ríkir, þar sem verndun þessara aðila situr auðvitað í fyrirrúmi, þar sem stjórnarathafnir allar hafa beinst að því beinlínis að færa fjármuni til þessara aðila frá launafólki í landinu.

Ég skal víkja að þeim tveimur smátill. sem ég hef leyft mér að flytja, og svo mjög sem hv. þm. Gils Guðmundsson blygðaðist sín fyrir hækkunartill. sínar þá mætti ég náttúrlega sökkva hér niður úr gólfinu fyrir það hversu hógvær ég er í mínum tillöguflutningi.

Önnur till. er í tveimur liðum, frá okkur hv. þm. Jónasi Árnasyni, um hækkað framlag til annars vegar Bandalags ísl. leikfélaga og hins vegar til leiklistarstarfsemi. Ekki fer það milli mála að leiklistarstarfsemi á landsbyggðinni er oft besti og stundum eini verulegi menningarvotturinn á einstökum stöðum. Þar er starfað af áhuga og fórnfýsi. Þar komast margir í snertingu við hvort tveggja: leikbókmenntir samtíðar og þátíðar og listræna túlkun mannlegra samskipta. Áhugaleikfélög hafa mörg hver reynt við merk leikhúsverk, og íslensk leikritun á þar ekki síður aðdáendur en í atvinnuleikhúsunum, og athyglisvert er hve mörg innlend verk eru á verkefnaskrá hinna ýmsu leikfélaga. Þau eiga fyllstu viðurkenningu skilið, og þess má geta einnig að þau skila drjúgum upphæðum beint til ríkissjóðs í söluskatti af leiksýningum sínum. Sum skila jafnvel hærri upphæð en ríkisstyrkurinn nemur. Ég sé það líka mér til nokkurrar ánægju, að fjvn. hefur hækkað upphæðina örlítið eða um 1 millj., en helmingur hennar fer þó til eins leikfélags, Leikfélags Akureyrar. Samtals er um að ræða 4.2 millj. ef Akureyri er undanskilin, en þar er í raun um atvinnuleikhús að ræða og á það leikfélag í raun og veru að vera sér á báti í fjárveitingum og fyrir því er gert ráð í nýju lagafrv. sem fram kemur sem stjórnarfrv. eftir áramót. Þau leikfélög, 35 að tölu, sem fá þessar 4.2 millj. samtals í styrk, sýna á þessu ári 47 fullgild leikverk og sýningar þeirra eru oft mjög kostnaðarsamar. Ég vil benda á að framlagið til hvers leikfélags lækkar á næsta ári, því að við síðustu úthlutun komu 30 leikfélög með 30 verk. Gróskan og aukningin er það mikil að með hóflegri bjartsýni mætti ætla að 40 leikfélög sýndu allt að 55 verkefni á næsta ári sem úthlutunin l977 kæmi svo til. Þessi hækkun, 500 þús., dugar því skammt og brtt. okkar hv. þm. Jónasar Árnasonar nær ekki einu sinni að jafna þessi met, þannig að sami styrkur og á þessu ári fáist á hvert leikrit, því að við gerum nú ekki till. um meira en 10 millj. samtals eða 1.5 millj. til viðbótar fyrir þessi áhugaleikfélög.

Ég skal nú ekki dirfast að bera þetta fyllilega saman við okkar ágæta Þjóðleikhús sem sýnir að vísu ekki mikið yfir 10 leikrit á ári. Þar fer auðvitað mörg sú starfsemi fram sem sérstæð má teljast, og auk þess er þetta eina ríkisrekna leikhúsið og á að móta og aðstoða við allt leiklistarlíf í landinu. En ekki get ég stillt mig um að benda á þá upphæð sem ríkið greiðir til þessarar stofnunar umfram eigin tekjur hennar, sem þó eru miklar og án efa margfaldar af sýningum miðað við leiksýningar venjulegs áhugafélags. Þessi upphæð, ríkisframlagið, er 175 millj. eða yfir 40 sinnum hærri en til allra áhugafélaganna.

Samband leikfélaganna, yfir 60 að tölu, er Bandalag ísl. leikfélaga og það hefur margfaldað umsvif sín á síðasta ári, m. a. í samvinnu við atvinnuleikhúsin. Námskeið hafa þar verið efst á blaði og aðstoð ýmiss konar við félögin. Samnorrænt námskeið er áætlað í Reykholti næsta sumar og mörg fleiri verkefni eru þar á skrá. Okkur hv. þm. Jónasi Árnasyni er málið nokkuð skylt og er rétt að játa það, við erum nefnilega í stjórn þessa bandalags, en þekkjum þar af leiðandi vel til, svo vel að við leyfum okkur að bera fram hækkunartill. til bæði bandalagsins og leiklistarstarfseminnar almennt. Við tökum þó skýrt fram að hin stóraukna starfsemi bandalagsins er ekki okkur að þakka, heldur nýjum framkvæmdastjóra, Helgu Hjörvar, sem öllum kunnugum ber saman um að hafi verið margstarf þessa bandalags á s. l. ári, og hefur það vissulega kostað stóraukna fjármuni, þó að áhugaleikararnir hafi sjálfir borið mestan þunga kostnaðar af t. d. námskeiðunum. Ég get samt ekki stillt mig um að sýna fram á þýðingu þessa starfs á alþjóðavettvangi, þar sem íslendingur er nú í stjórn IATA, Alþjóðaleiklistarráðsins, einn Norðurlandabúa í 12 manna stjórn þessa alheimssambands, og sakar ekki að geta þess að hann hefur þar unnið mjög athyglisvert kynningarstarf á íslenskum leikbókmenntum, en stjórnarmaðurinn er einmitt hv. þm. Jónas Árnason. En við leggjum til í hógværð okkar að styrkurinn til bandalagsins hækki úr 1 millj. í 1.3 millj. og leiklistarstarfsemin úr 8.2 millj. í 10, þar af 4.3 millj. til Akureyrar, svo að áhugaleikfélögin fái þá 5.7 millj. í sinn hlut, og mun vart þykja mikið í ljósi 175 millj. sem áður var frá greint.

Hin brtt. er ekki heldur mikil fyrirferðar. Þar er um að ræða Styrktarsjóð vangefinna, sem ég hef leyft mér að flytja brtt. um ásamt hv. þm. Karvel Pálmasyni, úr 31 millj. 825 þús. í 35 millj. Upphæðin er hér ekkert aðalatriði, heldur hitt, að sakir þess að lög um Styrktarsjóðinn, þ. e. tappagjaldið svokallaða, falla úr gildi um mitt næsta ár, þá tekur ríkissjóður að sér greiðslu í sjóðinn síðari hluta ársins skv. fjárlagafrv. og því lækkar þessi upphæð úr 33.5 millj. á s. l. ári í 31 millj. 825 þús. Við það að þessi afmarkaði tekjustofn fellur niður og ríkið tekur við þarf upphæðin vitanlega skv. stjórnarstefnunni að lækka, þó að til þessa verkefnis sé. Ég hygg nú að um það náist full samstaða á þingi eftir nýár að framlengja þessi lög, og jafnframt hef ég góða trú á því að tryggja helst hærri tekjur í sjóð þennan, enda alls ófullnægjandi til þeirra miklu verkefna sem biða, ekki síst í ljósi þess að þm. úr öllum flokkum hafa nú flutt hér þáltill. um heildarlöggjöf varðandi málefni vangefinna sem mun stórauka fjármagnsþörf lengi vanræktra verkefna. En ástæðan til þessa tillöguflutnings nú er einfaldlega sú, að okkur þótti ófært að viðurkenna með fjárlagafrv. óbeint eða jafnvel beint að lög um sjóðinn og sérstaka fjáröflun til hans yrðu ekki endurnýjuð, féllu dauð og ómerk þegar þeirra var hvað mest þörf, þegar vaxandi skilningur á málefnum þessa fólks knýr á um aðgerðir. Því er till. þessi flutt nú í trausti þess að fyrir 3. umr. verði þetta leiðrétt í samræmi við endurnýjun laganna. Að öðrum kosti yrði hún borin upp til samþykktar eða synjunar.

Hv. fjvn. má gjarnan vita það, að fullvíst má telja að löggjöfin verði endurnýjuð og sennilega með enn aukinni fjáröflun. A. m. k. telur Styrktarfélag vangefinna sig hafa fyrirheit hér um nægilega sterkt svo að staðist geti.

Ég vil svo aðeins í lokin víkja að till. sem ég er meðflm. að ásamt Svövu Jakobsdóttur og hún mun mæla fyrir á eftir um stórhækkað framlag til byggingar skóla fyrir þroskahömluð börn. Ég vil víkja aðeins að þessari till. sem landsbyggðarmaður, vegna þess að ég veit gjörla hvílíkt hrikavandamál hér er um að ræða og það verður ekki leyst í bili nema á einum stað á landinu svo að vel sé, þ. e. slíkur skóli hér í Reykjavík er forsenda þess að hægt sé að koma einhverju skipulagi á þessi mál úti í landshlutunum. Því er þessi skóli ekki mál Reykjavíkur einnar. Hann er mál landsins alls, og þetta mál er einmitt nátengt því máli sem ég var að mæla fyrir áðan, styrktarsjóðsmálinu. Þarna er nefnilega komið að næsta stigi þar við, og því vona ég að á þessu fáist einhver leiðrétting. Frekari rökstuðnings er áreiðanlega ekki þörf. Sá rökstuðningur kemur fram frá hv. 1. flm. þessarar tillögu.