16.12.1975
Sameinað þing: 34. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1277 í B-deild Alþingistíðinda. (943)
1. mál, fjárlög 1976
Ragnar Arnalds:
Herra forseti. Ég mun ekki taka hér til umr. fjárlagafrv. almennt eða þá stefnu, sem í því felst. Það hefur fulltrúi Alþb. í fjvn., hv. þm. Geir Gunnarsson, þegar gert, og ég hef þar ekki mörgu við að bæta sem ekki getur beðið betri tíma. Ég mun hins vegar ræða hér í örfáum orðum um nokkur mikilvæg mál sem ég hef leyft mér að flytja í tillöguformi.
Stærsta till., sem ég vil hér mæla fyrir, fjallar um eflingu landhelgisgæslunnar, og sú till. skýrir sig í raun og veru sjálf. Við umr., sem fram fóru ekki alls fyrir löngu vegna samninga við vestur-þjóðverja um undanþágur til handa veiðiskipum þeirra til veiða innan landhelginnar, stóð hver þm. af öðrum upp úr hópi stjórnarliða og hélt því fram að við yrðum að semja við vestur-þjóðverja vegna þess að við yrðum að geta einbeitt okkur að bretum, við gætum ekki átt í höggi við tvo andstæðinga á sama tíma og værum því til neyddir, þótt menn viðurkenndu jafnframt að samningurinn væri vondur.
Það er almennt viðurkennt að árangur af fyrri aðgerðum landhelgisgæslunnar gagnvart veiðum vestur-þjóðverja hér við land var góður. Landhelgisgæslan klippti á togvíra eftir því sem tækifæri gáfust til, og staðreyndin varð sú, að þegar á leið fóru vestur-þjóðverjar að varast klippingarnar og reyndu í hvert sinn sem varðskip nálgaðist að draga inn vörpuna og flýja í burt. Af þessum sökum fór veiði þeirra jafnt og þétt minnkandi, eins og glöggt sést á þeim tölum sem komið hafa fram um veiðar þeirra hér við land, en þeir munu hafa veitt um 93 þús. tonn 1973, 68 þús. tonn 1974, og áætlað hefur verið af þeim sjálfum að þeir veiði ekki nema um 40 þús. tonn á þessu ári.
Það er að sjálfsögðu augljóst að stríðið við breta gat ekki öllu breytt. Við höfum haft 5–6 skip til gæslustarfa og þar af hafa oft verið eitt eða tvö skip í landi hverju sinni vegna þess að við höfum ekki haft skiptiáhafnir til þess að gera okkur kleift að halda varðskipunum úti alla daga jafnt. Ef einhverjir hv. þm. telja að við getum raunverulega ekki sinnt okkar landhelgisgæslustörfum af þeim þrótti sem nauðsynlegur er gagnvart báðum þessum ríkjum, vesturþjóðverjum og bretum, þá er að sjálfsögðu ekkert einfaldara og ekkert sjálfsagðara en að við tökum skip á leigu og margföldum afköst þessara skipa við klippingar og aðrar aðgerðir gegn erlendum veiðiþjófum.
Miðað við kostnað af rekstri gæsluskipanna við að halda erlendum skipum frá veiðum er að sjálfsögðu augljóst að þau verðmæti, sem í húfi eru, eru margfalt stærri en kostnaðurinn af gæslustörfunum. Ég þarf ekki þar að nefna margar tölur, en læt mér nægja að vísa til umr., sem um þetta fóru fram þegar samningurinn við vestur-þjóðverja var hér til umr. og leyfi mér að fullyrða að hlutföllin milli kostnaðarins og landhelgisgæslu og hins vegar þess taps, sem þjóðin verður fyrir vegna þessara veiða, hlutföllin þar eru vafalaust minnst fimmföld og sennilega tiföld eða fimmtánföld. Nú eigum við í harðri viðureign við breta og þessi viðureign fer harðnandi. Það fer því ekkert á milli mála að brýn þörf er á því að fjölga skipum í gæslunni, þ. e. a. s. ef við ætlum á annað borð að verja landhelgina. Það hefur einmitt komið skýrt í ljós seinustu dagana hvað varðskip okkar geta gert, jafnvel þótt um sé að ræða af hendi andstæðinganna fjölda skipa, bæði herskipa og dráttarbáta. Það sýnir sig sem sagt að það er hægt að verja landhelgina, það hefur sannast að það er hægt, kannske ekki 100%, en í þeim skilningi að við getum gert erlendum veiðiþjófum veiðarnar mjög erfiðar, mjög dýrar og við getum dregið verulega úr þeim. Spurningin er aðeins um vilja, — viljum við verja landhelgina eða ekki ? Ef við höldum áfram að verja landhelgina gagnvart bretum, þá vitum við að samningurinn við vestur-þjóðverja fellur úr gildi í apríllok, vegna þess að ef við höldum áfram að standa í stríðinu gagnvart bretum kemur ekki bókun 6 til framkvæmda á næstu 5 mánuðum og þá fellur samningurinn við vestur-þjóðverja úr gildi á fyrri hluta næsta árs.
Það er því ljóst af báðum þessum ástæðum sem ég hef nú nefnt að það er mjög brýnt að efla flota landhelgisgæslunnar, þ. e. a. s. eins og ég hef margsagt, ef við ætlum að verja landhelgina, — ef ekki, ef ráðamenn ætla að gera samninga við breta síðar í vetur, þá er að sjálfsögðu alveg rétt að samningurinn við vestur-þjóðverja verður áfram í gildi og þá er sjálfsagt ekki þörf á fleiri skipum. Sem sagt, afstaða manna til þeirrar till., sem hér hefur verið borin fram, ræðst af því hvort menn hafa vilja til þess að landhelgin verði varin af ítrasta mætti eða ekki.
Í fjárlagafrv. er nú upphæð sem nemur 863 millj. kr. sem ætluð er til Landhelgisgæslunnar. Í þeirri upphæð er innifalinn allur rekstrarkostnaður við flugrekstur og skipaúthald gæslunnar, öll rekstrargjöld, viðhald, framlög í Landhelgissjóð og gjaldfærður stofnkostnaður. Það er hugmynd okkar, sem þessa till. flytjum, hv. þm. Lúðvíks Jósepssonar og mín, að við upptalninguna í fjárlagafrv. sem Landhelgisgæsluna snertir bætist nýr liður, svo hljóðandi:
„Rekstrarkostnaður þriggja skipa sem tekin verða á leigu til gæslustarfa 350 millj.“
Ég vil síðan mæla hér fyrir nokkrum öðrum till. sem ég hef leyft mér að flytja á þskj. 186,
Í fyrsta lagi eru það fáeinar till. sem snerta skólamál á Norðurlandi vestra. Það er viðurkennd staðreynd og hefur margoft komið fram í skýrslum embættismanna menntmrn. að sveitahéruð á Norðurlandi vestra voru langt á eftir öðrum landshlutum í skólamálum fyrir fáum árum. Nú á seinustu árum hefur verið reynt að bæta úr þessu með mjög miklum byggingarframkvæmdum á mörgum stöðum samtímis, og í tíð vinstri stjórnarinnar jukust fjárveitingar til skólamála í þessu kjördæmi mjög mikið. Fyrir það ber að þakka. Því miður hafa fjárveitingar til þessara mörgu mannvirkja rýrnað allverulega á árunum sem síðan eru liðin, á árunum 1975 og 1976 ef miðað er við framkvæmdakostnað. Þetta hefur hins vegar gerst víðar en í þessu kjördæmi, og hefði ég ekki séð ástæðu til að flytja sérstakar till. sem snerta þetta kjördæmi ef ekki stæði svo á að e. t. v. vegna þessara mörgu mikilvægu framkvæmda eru nokkrar aðrar mikilvægar framkvæmdir í skólamálum þessa kjördæmis sem setið hafa á hakanum ár eftir ár, verið vanræktar ár eftir ár, skildar eftir. Hér er um að ræða einkum þrjár framkvæmdir.
Það er í fyrsta lagi skólabygging á Skagaströnd. Það eru mörg ár liðin síðan Alþ. veitti í fyrsta skipti byrjunarfjárveitingu til þeirrar framkvæmdar. Það mun hafa verið fyrst árið 1972, síðan aftur árið 1973 einhver smáupphæð sem hét byrjunarframkvæmd. Í fyrra var veitt 1 millj. sem að sjálfsögðu dugar ekki til eins eða neins og er aðeins til að sýnast. Þá flutti ég brtt., af því að ég taldi að mælirinn væri fullur í fyrra, um það að þessi skólabygging, sem svo lengi hefur setið á hakanum, fengi a. m. k. 3 millj. kr. En á þessu ári fer allt í sama farið enn einu sinni. Það er enn sett 1 millj. til þessarar skólabyggingar, greinilega aðeins til að sýnast. Af þeirri ástæðu hef ég leyft mér að endurtaka þá till. sem ég flutti hér í fyrra. Þetta er nákvæmlega sama till. sem ég flyt hér aftur um það að 3 millj. kr. fari til þessarar skólabyggingar. Það er hart að þurfa að flytja sömu till. svona ár eftir ár, en hjá því verður ekki komist.
Önnur framkvæmd, sem ég vil nefna hér, er sundlaugarbygging á Hvammstanga. Þessi framkvæmd hefur verið í undirbúningi einnig í mörg ár. Fyrir tveimur árum var veitt byrjunarfjárveiting til þessarar framkvæmdar, og þess vegna hélt ég að eins og títt væri og algengast um slík mál kæmi nokkur fjárveiting í næsta sinn, þ. e. a. s. í fyrra, til þessa verks. En svo gerðist það óvenjulega í fyrra, að fjárveitingin féll með öllu niður og framkvæmdin var búin að fá byrjunarfjárveitingu. Hún fékk enga fjárveitingu í fyrra. Ég flutti þá till. um þetta mál og hún var felld. Nú geri ég ekki annað en að endurflytja þessa till. aftur. Ég tel að þessi staður sé búinn að bíða allt of lengi eftir því að fá þessa nauðsynlegu framkvæmd sem kostar ekki ýkjamikið fé. Það er gert ráð fyrir að framkvæmdin muni ekki verða nema upp á 4–5 millj.
Þriðja skólabyggingin, sem ég vil koma á framfæri, er bygging skóla í Haganeshreppi. Það er skóli á Sólgörðum í Fljótum, og það vill svo einkennilega til að það stendur nákvæmlega eins á með þessa skólabyggingu og hinar tvær sem ég hef nefnt. Það er búið að tala um þessa skólabyggingu í mörg ár, og menntmrn. er búið að gera till. til fjvn. í mörg ár um að þessi skólabygging verði tekin inn á fjárlög. En í fjárlögum stendur ævinlega 300 þús. kr. byrjunarfjárveiting. Það er það lengsta sem þessir ágætu skólamenn í Fljótum komast með fjvn. Það mun hafa verið í fyrsta sinn á árinn 1973 sem slík fjárveiting var veitt. Síðan var hún endurtekin í fyrra og er nú enn endurtekin. Samt sem áður stendur svo á að hér er um að ræða skóla sem er mjög illa aðþrengdur hvað pláss snertir, bæði fyrir kennslu og fyrir starfsmenn, og í fyrra var þessi framkvæmd meðal þess sem menntmrn. lagði sérstaka áherslu á að þyrfti að hafa forgang og gerði þá till. um að fengi 9.2 millj. En eins og ég hef sagt, þá situr enn einu sinni allt við það sama og ekkert útlit fyrir annað en að svo verði út þennan áratug með sama áframhaldi. Það er hjakkað í sama farinu ár eftir ár án þess að nokkuð bætist við. Ég hef leyft mér að flytja einnig í þessu tilviki nákvæmlega sömu till. og ég flutti hér í fyrra, um 3 millj. til þessarar skólabyggingar.
Ég vil svo næst snúa mér að sjúkrahúsmálum. Mér er alveg ljóst eins og fleiri hv. þm. að ætlunin er að spara í útgjöldum ríkisins, og það er ekki sérlega vinsælt að menn séu að koma hér með sérmál sinna kjördæma og ota þeim fram. En ég verð bara að benda ósköp einfaldlega á það, að oft hefur verið smátt skammtað til heilbrigðismála á Norðurlandi vestra, en áreiðanlega aldrei smærra en í þetta sinn. Ég kvartaði sáran yfir því við afgreiðslu fjárlaga fyrir einu ári að fjárveitingar til sjúkrahúsmála og heilbrigðismála á Norðurlandi vestra næmu aðeins 5% af heildarframlögum til sjúkrahúsmála á öllu landinu. En þessi prósentutala hefur nú lækkað í 4%. Og ég vil aðeins benda á það, án þess að ég sé á nokkurn hátt að sjá ofsjónum yfir þeim upphæðum sem renna til annarra kjördæma, að yfirleitt fá önnur kjördæmi langt yfir 100 millj. til sjúkrahúsmála og heilbrigðismála. Ég nefni bara Vestfirði með 132 millj., Norðurland eystra 128 millj., Austurland 104 millj., Suðurland 112 millj. Ég er sannarlega ekki að sjá ofsjónum yfir þessum upphæðum, en ég vil leyfa mér að benda á að það er alveg fráleitt að ætla þá að skammta Norðurlandi vestra 27 milli. Það er 5 sinnum minna en rennur til annarra kjördæma, og er þó fullkomlega ljóst að verkefnin eru ekki minni í þessu kjördæmi en annars staðar. Mér er þetta að sjálfsögðu alveg óskiljanlegt. Ég skil ekki hvers konar sanngirni eða réttlæti þetta er.
Það, sem hér er um að ræða, eru heilsugæslustöðvarnar í kjördæminu. Þær eru 4 og það stendur til að byggja þær allar upp. Það eru tvær, sem eru lengst komnar í undirbúningi og því eðlilegast að einbeita sér að þeim, og það hef ég gert í mínum tillöguflutningi. Það eru Blönduós og Sauðárkrókur. En ég vil minna hins vegar á að bæði Siglufjörður og Hvammstangi standa þannig að vígi að nauðsynlegt er að þar verði um að ræða nokkrar nýframkvæmdir á næstu árum. En það vill svo til varðandi þessar heilsugæslustöðvar, sem ég ætla nú að víkja að, annars vegar á Blönduósi og hins vegar á Sauðárkróki, að það verður það nákvæmlega sama gert um þær eins og skólana sem ég var að nefna. Það er búið að veita byrjunarfjárveitingar til þessara heilsugæslustöðva í mörg ár, en þessar byrjunarfjárveitingar eru svo smáar að þær verða aldrei til neins. Og þó að þessar heilsugæslustöðvar hafi báðar verið í undirbúningi þegar á árinu 1973 og stöðugt verið að herja á stjórnvöld að ýta þessum málum fram, þá er það enn svo að þessar framkvæmdir báðar eru enn á pappírnum og enn hefur enginn grunnur verið grafinn, hvað þá meir.
Árið 1973 voru þessi mál sem sagt á döfinni, og a. m. k. í fjárlögum fyrir árið 1973 voru fjárveitingar þar upp á 500 þús. til Blönduóss og til Sauðárkróks 700 þús., og í fjárlögum í lok þess árs, fyrir árið 1974, er veitt 1 millj. í hvorn stað, átti að duga fyrir hönnunarkostnaði. Við þm. kjördæmisins létum það gott heita, því að það var sagt þá, fyrir tveim árum, að hönnuninni væri ekki lokið og því þyrfti að athuga þetta mál betur. Síðan leið heilt ár, og þá kemur i ljós að hönnuninni er enn ekki lokið að áliti stjórnarherranna hér syðra og menn telja ekki fært að veita til þessarar framkvæmdar nema 10 millj. kr. í hvorn stað. Ég flutti till. í fyrra um að veittar yrðu 25 millj. í hvorn þessara staða og fannst það fullkomið sanngirnis- og réttlætismál. En það var fellt og þær fjárveitingar, sem veittar voru í fyrra, voru síðan skornar niður í sumar svo stórlega að fjármagn gat að sjálfsögðu ekki nýst til eins eða neins. Þær munu hafa verið skornar niður um 50% hvor um sig.
Þegar kemur að fjárveitingum nú í þriðja sinn er enn nákvæmlega sama upp á teningnum. Því er borið við að hönnun og undirbúningi sé enn ekki lokið, mörgum árum eftir að það starf hófst, og enn á að veita þessa sömu sýndarupphæð, 10 millj. kr., í hvorn stað, sem vitað er að nægir ekki einu sinni fyrir hönnunarkostnaði, hvað þá meir. Samkv. áætlunum, sem við þm. kjördæmisins höfum fengið um t. d. heilsugæslustöðina á Sauðárkróki, er þar um að ræða 400 millj. kr. byggingu á verðlagi þessa árs, en hönnunarkostnaðurinn einn mun vera 29 millj. Það er því ljóst að ef frá er dregin hlutdeild heimamanna í þessari byggingu, þá nægir ekki þessi fjárveiting nema fyrir hálfum hönnunarkostnaði, hvað þá meir.
Ég tel að vinnubrögð af þessu tagi séu ekkert annað en sýndarmennska. Það á enn að blekkja fólk með því að sýna því einhverjar tölur á blaði til að halda í því voninni. Ég mótmæli svona vinnubrögðum. Þessi vinnubrögð eru meiri hl. Alþ. til skammar. Ég hef leyft mér að flytja hér enn nákvæmlega sömu till. og ég flutti í fyrra um að þessar heilsugæslustöðvar, sem svo lengi eru búnar að bíða og eru í kjördæmi sem fær 1/5 hluta af fjárveitingum til heilbrigðismála í öðrum kjördæmum, — að þessar heilsugæslustöðvar fái a. m. k. 25 millj. hvor um sig, þannig að fjárveiting nægi a. m. k. fyrir hönnunarkostnaðinum og fyrir jarðvegsraski og allra nauðsynlegasta byrjunarkostnaði, kannske fyrir botnplötu, ef eitthvað er reynt að draga við sig að greiða allan hönnunarkostnaðinn þegar í stað.
Ég hef flutt, herra forseti, þriðju till. og hún snertir Lagmetisiðjuna Siglósíld. Það vill nú svo einkennilega til með þessa till. eins og allar hinar, sem ég hef nú þegar nefnt, að það er víst nákvæmlega sama till. og ég flutti hér fyrir einu ári, ósköp einfaldlega vegna þess að það dregst ár eftir ár að þessi nýi meiri hl. geti hugsað sér að verða við nauðsynlegustu óskum aðila úti á landsbyggðinni sem ekki ná eyrum þessara háu herra. Ég rökstuddi þessa till. i fyrra, og rökstuðningurinn er einfaldlega sá að þessi verksmiðja, sem byggð var fyrir meira en áratug, lög voru sett um árið 1972 og oft hefur verið rekin með ágætum hætti, stundum með hagnaði, stundum ekki, hefur framleitt mjög mikið oft á tíðum, hún hefur neyðst til að breyta framleiðslukerfi sinu vegna þess síldveiðibanns sem sett hefur verið á undanförnum þremur árum, því að hún var eingöngu gerð til þess að framleiða gaffalbita úr síld. Í þessu skyni veitti vinstri stjórnin á sínum tíma 15 millj. kr., en vegna verðbólgu á tímabilinu reyndist þessi upphæð ekki nægileg. Framkvæmdirnar námu um 25 millj. kr., og þá er eingöngu átt við framkvæmdir í sambandi við þessar endurbætur, en auk þess var um að ræða ýmsar framkvæmdir og viðhald á húsinu, sem verksmiðjan stendur i, sem ekki þoldu bið, þannig að framkvæmdakostnaðurinn mun hafa verið allmiklu hærri en nam þessari upphæð. Af þessum ástæðum hafa þessar 15 millj. alls ekki dugað, m. a. vegna þess að fyrstu 5 millj., sem veittar voru, runnu beint upp i gamla skuld við ríkið og komu þess vegna ekki að gagni í þeim tilgangi sem upphaflega var ráðgert. Þess vegna hefur stjórn Lagmetisiðjunnar farið fram á það nú um langt skeið að fá 10 millj. kr. stofnkostnaðarframlag frá ríkinu til viðbótar, en því miður hefur þessi sjálfsagða krafa ekki náð eyrum þessara háu herra af einhverjum óskiljanlegum ástæðum. Ég verð sem sagt að undirstrika það hér, að mér er óskiljanlegt með öllu af hverju það stafar, þetta sinnuleysi sem ríkisvaldið sýnir þessu fyrirtæki sem að allra dómi á hinn fyllsta rétt á sér og hefur skapað þjóðarbúinu miklar tekjur. Það er sem sagt í annað sinn, á þessu ári, sem stjórn verksmiðjunnar kemur til ríkisvaldsins og biður um að fá 10 millj. kr. fjárveitingu, og þetta er í annað sinn, sem fjvn. virðist ætla að hundsa þessa bón. Nú skyldi maður ekki fullyrða of mikið, því að enn er eftir 3. umr. fjárlaga, og af þeirri ástæðu mun ég aðeins sýna þessa till. við 2. umr. málsins, en síðan draga hana til baka til 3. umr. í þeirri von að fjvn. sjái sóma sinn í því að verða við þessari beiðni.
Seinasta till., sem ég flyt við afgreiðslu fjárlaga, er till. um að nýr liður komi inn í framkvæmdalista landbrn. og þar verði um að ræða byggingu grænfóðurverksmiðju á Hólminum i Skagafirði, 15 millj. kr. Forsaga þessa máls er sú, að fyrir allmörgum árum, á árunum 1969–1970, festi Landnám ríkisins kaup á jörðunum Krossanesi, Löngumýri, Lauftúni, öllum í Seyluhreppi í Skagafirði, í þeim tilgangi að þar yrði reist og rekin graskögglaverksmiðja. Land þessara jarða liggur saman og er ákaflega hagkvæmt til jarðyrkju, og það er um 600 hektarar að flatarmáli. Framræslu er lokið á þessu landi, og til viðbótar má nefna að á tveimur þessara jarða, Krossanesi og Lauftúni, eru íbúðarhús sem nota má fyrir starfsfólk, þannig að stofnkostnaður í sambandi við þessa verksmiðju mundi að sama skapi vera minni sem þessum mannvirkjum nemur. Þetta umrædda land liggur norðvestur af Varmahlíð, og á Varmahlíð er jarðhiti góður. Þar hefur borun eftir heitu vatni gefið góðan árangur og vafalaust eru miklar líkur á því að frekari borun gæfi það vatn sem þyrfti til þess að hægt væri að reka þessa grænfóðurverksmiðju fyrst og fremst með notkun jarðhita. Það er nefnilega svo, að þær verksmiðjur, sem fram að þessu hafa verið reistar, eru ekki reknar með jarðhita, eins og mörgum hv. alþm. mun kunnugt. Þær verksmiðjur, sem tilgreindar eru í fjárlögum og fá samtals um 43 millj. kr., til fjárfestingar, þ. e. a. s. Fóðuriðjan í Ólafsdal, Grænfóðurverksmiðjan í Flatey í Austur-Skaftafellssýslu og verksmiðjan í Gunnarsholti, þær eru allar reknar með olíunotkun sem er að sjálfsögðu mjög óhagkvæm, og ber brýna nauðsyn til þess að komið verði upp verksmiðjum sem geti haft hagkvæmari rekstur vegna þess að þær noti jarðhita. Að sjálfsögðu kemur ekki annað til greina en að menn snúi sér nú að Norðurlandinu, vegna þess að þar er engin verksmiðja, en þessar þrjár verksmiðjur, sem ég hef nú nefnt, eru allar á Suðurlandi og Vesturlandi.
Ég þarf ekki að orðlengja frekar hve mikla þýðingu það hefur að aukin verði innlend fóðuröflun og minnkaður innflutningur á korni til fóðrunar á búpeningi. En ég undirstrika það, að þetta mál er ekki í sjálfu sér fyrst og fremst flutt vegna þess að verksmiðjan eigi að rísa í því kjördæmi, sem ég er hér fulltrúi fyrir, heldur vegna þess að ég er sannfærður um að þetta mál hefur mikið þjóðhagslegt gildi og ég undrast það að líða skuli fjöldamörg ár svo að ekkert sé gert til þess að undirbúa verksmiðjubyggingu. Eins og ég sagði áðan, eru nú liðin 6 ár síðan undirbúningur þessa máls hófst, og búnaðarsamböndin í Húnavatnssýslu og Skagafirði hafa rekið töluvert mikið á eftir þessu máli. Mér er kunnugt um það, að þegar n. var starfandi fyrir fáeinum árum sem gera átti till. um staðsetningu grænfóðurverksmiðja í landinu, — það var áður en verksmiðjan i Flatey var byggð, — þá var þessi verksmiðja í Skagafirði nefnd númer eitt. Menn töldu sjálfsagt af ýmsum ástæðum að það yrði byrjað á henni. En einhverjar ástæður hafa valdið því að svo hefur ekki orðið, og þetta hefur dregist von úr viti. Ráðist hefur verið í verksmiðjur sem nota olíu en ekki jarðhita. Ég sem sagt tel að við svo búið megi ekki standa og við verðum að knýja það fram að þessi verksmiðja verði að veruleika.