16.12.1975
Sameinað þing: 34. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1287 í B-deild Alþingistíðinda. (946)
1. mál, fjárlög 1976
Forseti (Gils Guðmundsson) :
Í tilefni af hinni skriflegu brtt., sem hv. 5. þm. Norðurl. e. hefur hér lagt fram, vil ég benda á það, að ég hygg að á henni sé formgalli að þar eru tengd saman tvö atriði sem eru eðli máls samkvæmt sitt á hvorum stað í fjárlagafrv.: annars vegar að niður falli 3 millj. til hagræðingarstarfsemi Kaupmannasamtakanna og hins vegar að teknar verði upp 3 millj. til ylræktarrannsókna. Ég vil þess vegna mælast til þess við hv. þm. að hann hagi þessu þannig, að þar sem hann hefur þegar flutt fyrri hluta till., þá flytji hann síðari hlutann við 3. umr., ef hann gæti á það fallist.