21.10.1975
Sameinað þing: 5. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 89 í B-deild Alþingistíðinda. (95)

289. mál, rannsókn á reki gúmbjörgunarbáta o.fl.

Fyrirspyrjandi (Sighvatur Björgvinsson) :

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir svör hans og lýsa því jafnframt yfir að það er mjög ánægjulegt hvernig verðlagsyfirvöld og viðskrn. hafa brugðist við þessu máli. Það er alveg rétt hjá hæstv. ráðh., að það er ekki auðvelt um vik þegar kemst upp um það eftir þriggja ára tímabil að verðlagsbrot eins og þessi hafa verið framin allan þann tíma. Spurningin, sem almenningur, sem í þessum málum hefur staðið, veltir fyrir sér, er sú: Hvernig get ég fengið hlut minn réttan? — Spurningin, sem verðlagsyfirvöld hljóta að velta fyrir sér, er þessi: Hvernig getum við komið í veg fyrir að þetta geti gerst aftur?

Auðvitað liggur ljóst fyrir að það er mjög óeðlilegt að þeir, sem verkið vinna, reikni út sjálfir þau laun sem þeir ætla sér fyrir verkið. Þess vegna væri e. t. v. ástæða til þess í sambandi við 2. lið fsp. minnar að beina þeim tilmælum til hæstv. ráðh., hvort hann vildi ekki beita sér fyrir því að athugun yrði gerð á því á vegum viðskrn. eða verðlagsyfirvalda hvort ekki væri rétt að hafa t. d. þann hátt á í sambandi við útreikninga á uppmælingarvinnu að þeir útreikningar yrðu að vera staðfestir af einhverjum opinberum aðila, þannig að húsbyggjandi gæti treyst á að það væri a. m. k. rétt reiknað.