17.12.1975
Efri deild: 31. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1298 í B-deild Alþingistíðinda. (957)

94. mál, bátaábyrgðarfélög

Frsm. (Oddur Ólafsson) :

Herra forseti. Heilbr.- og trn. Ed. hefur fjallað um frv. til l. um breyt. á l. nr. 41 frá 20. apríl 1967, um bátaábyrgðarfélög. Nefndin kallaði til sín sérfræðinga á þessu sviði og fékk upplýsingar hjá þeim og að þeim upplýsingum fengnum leggur hún til að frv. verði samþ. óbreytt.