21.10.1975
Sameinað þing: 5. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 89 í B-deild Alþingistíðinda. (96)

289. mál, rannsókn á reki gúmbjörgunarbáta o.fl.

Geir Gunnarsson:

Herra forseti. Til þess að ekki valdi misskilningi og ekki verði aðrir bendlaðir við þau verðlagsbrot, sem hér hafa verið rædd, en þeir sem sekir kunna að vera, þá vil ég aðeins undirstrika alveg sérstaklega að þessi brot snerta á engan hátt iðnsveina í byggingariðnaði. Hér er eingöngu og alfarið um að ræða þátt iðnmeistara í byggingarkostnaði. Hér er um að ræða að of hátt hafi verið reiknaður sá hluti byggingarkostnaðar sem er álagning iðnmeistara á vinnu iðnsveina. Ég hef nokkuð orðið var við misskilning í þessu efni, að iðnsveinar séu nefndir í þessu sambandi, og vildi leggja áherslu á að hið rétta komi fram í málinu, að hér er um að ræða mál íðameistara, en ekki iðnsveina.