21.10.1975
Sameinað þing: 5. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 89 í B-deild Alþingistíðinda. (97)

289. mál, rannsókn á reki gúmbjörgunarbáta o.fl.

Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson) :

Herra forseti. Ég held að það hafi ekki komið fram hér neitt um að iðnsveinar væru bendlaðir við þetta. En út frá því, sem hv. fyrirspyrjandi skaut til mín, vil ég segja það sem mína persónulegu skoðun að ég tel þetta fyrirkomulag á útreikningi, sem tíðkast hefur, mjög óheppilegt. Ég vil sjá hvaða niðurstöður verða af þessari rannsókn, áður en ég tjái mig frekar um það hvort ég treysti mér til að hafa frumkvæði um að breytt verði til í þessu efni. Það er e. t. v. ekki eins einfalt og fljótt á litið gæti virst, vegna þess að hér er um að ræða fyrirkomulag sem hefur staðið lengi.