17.12.1975
Efri deild: 32. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1307 í B-deild Alþingistíðinda. (976)

119. mál, Fiskveiðasjóður Íslands

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Þetta frv. um breyt. á l. um Fiskveiðasjóð er um framlengingu á 1% útflutningsgjaldi á sjávarafurðir, en samkv. núgildandi lögum átti þetta sérstaka útflutningsgjald að falla niður 31. des. n. k. Þegar þetta gjald var lögfest í tíð fyrrv. ríkisstj. var jafnframt hækkað framlag ríkissjóðs til Fiskveiðasjóðs sem átti að nema helmingi á móti þessu gjaldi. Það þykir rétt að þetta fari saman. En ég vil taka fram að það er nauðsyn að fá þessa lagaheimild. Hins vegar er verið að endurskoða sjóðakerfi sjávarútvegsins og þegar það liggur fyrir og sú nefnd, sem hefur haft það til meðferðar, hefur skilað áliti, þá verður eðlilega þetta gjald einnig tekið til athugunar sem önnur. Því geri ég fyrirvara hvað það snertir, að það er allt komið undir till. þeirrar nefndar sem stefnir nú að því að ljúka störfum sínum í síðasta lagi fyrir 1. febr.

Herra forseti. Ég legg til að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til hv. sjútvn.