17.12.1975
Efri deild: 32. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1312 í B-deild Alþingistíðinda. (979)
123. mál, verkefni sveitarfélaga
Bragi Sigurjónsson:
Herra forseti. Það gefur auga leið, að það er lítið hægt að ræða um þetta frv. við 1. umr. það kom hér á borðið hjá okkur í gær og það þarf að bera það saman við mörg lög til þess að finna nákvæmlega út hvað hér er á ferðinni.
Áður en ég vík að sjálfu frv. get ég ekki látið hjá líða að lýsa furðu minni og kröftugri vanþóknun á framkomu hæstv. ríkisstj. gagnvart Alþ. þessa dagana. Fjölda afdrifaríkra frv. er mokað á borð þm. og þeim ætlað að samþ. þau á örfáum dögum án þess að nokkurt tóm gefist til að skoða frv., hvað þá afleiðingar þeirra niður í kjölinn. Slík vinnubrögð gera hvort tveggja í senn: grafa undan virðingu Alþ. og gera þingræðið að tötrum í staðinn fyrir þjóðbúning. Nú er mér fullljóst að það er ekkert sældarbrauð að stýra þjóðarskútu okkar við núverandi aðstæður. En því brýnni nauðsyn er að gera ekki vanhugsuð stýrisgrip. Og því samhentari og skilningsbetri sem áhöfnin er og því betur sem henni er ljóst hvert ber má ætla að betur farnist. En hvernig á nokkur áhöfn að halda skarpskyggni sinni við slíkan flumbruhátt sem nú er hafður uppi við skipstjórnina. Fjárlög sem vantar flestar forsendur til að geta staðist, á að hespa af á örfáum dögum. Samtímis á að afgreiða lög sem hafa í för með sér verulegar breytingar á tekjuöflunarskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga, sem hafa í för með sér verulegar breytingar á tekjuöflunarráðum ríkissjóðs, breytingar á verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga og breytingar á almannatryggingakerfinu. Jafnvel þeir, sem mest og best hafa kafað í þessa lagagerð, munu harla lítið geta sagt fyrir um afleiðingar hennar, hvað þá hinir, sem ætlað er það óvirðulega hlutverk að greiða atkv. með eða móti lagagreinum sem þeir hafa engan kost átt á að mynda sér sjálfir og af eigin könnun skoðun um.
Hér er einmitt slíkt frv. á ferðinni. Eins og ég sagði áðan er engin leið að átta sig á hvert verið er að fara nema bera hverja lagagrein meira eða minna saman við hin og önnur lög. Og þó að ég geti tekið undir það sem hér hefur komið fram í umr., að vissulega megi margt skoða um verkaskiptingu milli sveitarfélaga og ríkisins, þá held ég að það sé brýn nauðsyn á að við gefum okkur betra tóm en hér er ætlast til, og að sjálfsögðu ætti og verður að bera þetta nákvæmlega undir Samband ísl. sveitarfélaga og hafa samráð við það, en það skilst mér hafi verið furðulítið gert. Í dag var mér sagt að formaður Sambands ísl. sveitarfélaga hefði gefið þá yfirlýsingu að hann vildi ekkert nærri þessu frv. koma því að það væri ekkert samráð haft við Samband ísl. sveitarfélaga um það, ekkert tillit tekið til þess sem það hafði lagt til, heldur viðhafður einstefnuakstur um það sem ríkisstj. vildi leggja til að þessu sinni.
Þetta frv. mun koma fyrir þá nefnd sem ég á sæti í, og ég sé ekki ástæðu til þess að rekja mikið hvað ég vildi við það athuga. En þó vil ég drepa hér á eitt atriði sem mér er alveg sérstaklega sárt um að fari í gegn eins og hér er ætlast til, en það er í sambandi við byggingu á dvalarheimilum aldraðra. Ég var í þeirri aðstöðu um nokkur ár að freista þess að koma upp og síðan stækka elliheimilið á Akureyri, og það var fyrst eftir þá lagabreytingu, sem gerð var að ég hygg 1971 eða 1972, að nokkuð vannst á í þeim málum, vegna þess að þar var ríkinu gert að skyldu að taka þátt í byggingarkostnaði að 1/3. Þangað til varð að snapa lán í hinum og öðrum sjóðum fyrir utan það litla sem viðkomandi sveitarfélag gat lagt fram í þetta, og ef á að kippa þessu aftur í gamla horfið, þá er áreiðanlegt að miklu verr fer en verið hefur þó núna 2–3 s. l. ár.
Á það var bent hér áðan, sem er alveg rétt, að það er fyrst nú á síðustu árum sem er að koma skriður á byggingu dvalarheimila fyrir aldraða, og það er alveg gefið mál að mikill þungi verður í þeim málum á næstunni. Þetta er eitt af þeim málum sem ég held að menn hafi ekki gert sér nægilega ljóst hvað eru að verða aðkallandi — ég segi ekki endilega að byggja dvalarheimili, heldur er margt í kringum þetta, eins og aðstoð við aldraða í heimahúsum, dagheimili fyrir þá og sitt hvað fleira. En þetta er mál sem engin tök eru á að sveitarfélögin geti ráðið við ein, og því tel ég að hér sé horfið mjög til baka í þessu frv.
Ég skal ekki tefja störf þd. með löngu máli, en ég vil endurtaka það og fastlega skora á hæstv. ríkisstj. að hraða þessu máli ekki í gegn um þingið nú, heldur gefa sér tóm til að skoða þessi mál betur. Ég sé ekki að það mætti ekki draga það eitthvað fram á veturinn að ganga frá þessu máli, og alveg finnst mér forkastanlegt ef ekki yrði haft fullt samráð við Samband ísl. sveitarfálaga um þá verkaskiptingu sem hér er á ferðinni og vafalaust verður meira tekin til athugunar seinna. En ég sé ekki að þurfi að hraða þessu svo mjög, þessum eina þætti sem hér er tekinn til meðferðar. Og að lokum endurtek ég það, að mér er alveg sérstaklega lítið um að það fari í gegn að ríkinu sé gert aðeins heimilt, en ekki skylt að taka þátt í kostnaði við byggingu dvalarheimila fyrir aldraða.