17.12.1976
Efri deild: 25. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1406 í B-deild Alþingistíðinda. (1009)
127. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Það hefur komið í ljós að nokkur ágreiningur hefur verið um 1. gr. þessa frv., sumt af því byggt á misskilningi. Vegna þess að vitnað hefur verið í afstöðu stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga, sem væri andvíg þessari grein, hefur verið haft samráð og samband við framkvæmdastjóra sambandsins og leitað álits hans á því ef breytt yrði 1. gr. þannig að það yrði skýlaust bundið við árið 1977, eins og brtt. mín felur í sér. Framkvæmdastjórinn hefur tjáð sig samþykkan því og telur að hvorki hann né stjórnin hafi þá lengur neitt við 1. gr. að athuga. Í rauninni var það alltaf ætlunin að þessi 1. gr., eins og 2. gr., væri aðeins til bráðabirgða, en sjálfsagt að kveða skýrt að orði.
Ég vænti þess að menn geti sæst á þessa brtt., hef haft samband við frsm. hv. félmn., og legg því fram þessa skriflegu brtt. og óska afbrigða um hana. Ég vænti þess að málið geti þannig gengið áfram.