17.12.1976
Efri deild: 25. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1407 í B-deild Alþingistíðinda. (1015)

128. mál, Bjargráðasjóður

Helgi F. Seljan:

Herra forseti. Ég hef áður í dag gert hér nokkrar athugasemdir við það hve málatilbúnaður er seint á ferð nú varðandi mörg bæði smærri og stærri mál sem hér liggja fyrir okkur. Ég vil taka það fram að það á ekki við um þetta frv. Mér sýnist það svo sjálfsagt í eðli sínu að það hljóti að geta orðið um það full samstaða. Ég vil aðeins taka þetta fram vegna þess að í nál. frá félmn. Nd. er það kynnt að tveir aðilar þar, Eðvarð Sigurðsson, hv. þm., og Magnús T. Ólafsson hv. þm., hafi ekki tekið þátt í afgreiðslu málsins. Þá sé ég enn frekari ástæðu til þess að lýsa þegar við 1. umr. yfir fullum stuðningi mínum við þetta mál.

Þegar viðlagatryggingin var á sínum tíma hér til umr., þá man ég eftir því að ég benti alveg sérstaklega á að jafnhlíða því hefði í raun og veru þurft að taka til endurskoðunar og afgreiðslu nýja löggjöf um Bjargráðasjóð. Ég taldi miður að það hefði ekki verið gert samhliða, vegna þess að um það komu bæði fram ábendingar frá heim aðilum. sem gerst mátt.u þekkja þessi mál, og eins var það ljóst, að þó að það mál væri í hvívetna ágætt og þarft, þá var engu að síður full ástæða til að gera Bjargráðasjóð nokkurn veginn bjargálna, þó ekki væri meira. Ég veit að á þessu stigi er alveg sérstök ástæða til þess, einkum varðandi búnaðardeildina. Það er alveg fullljóst að til Bjargráðasjóðs verður nú mjög leitað, eins og segir í aths. við lagafrv., vegna þess gífurlega tjóns sem hlotist hefur af völdum óþurrkanna í sumar.

Hér sýnist mér í engu vera of langt gengið með tekjuöflun til sjóðsins. Það er greinilegt að með þessu móti verður hann fær um að sinna hlutverki sínu. Ég þekki mörg dæmi þess að þessi sjóður hefur miklu bjargað, bæði fyrir einstaklinga, fyrirtæki og heil sveitarfélög, og vil þess vegna, ekki síst með tilliti til þess að nál. í Nd. gefur, held ég, nokkuð villandi mynd af afstöðu manna þar, lýsa því yfir í upphafi að ég fylgi þessu frv.