18.12.1976
Sameinað þing: 35. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1425 í B-deild Alþingistíðinda. (1049)

Umræður utan dagskrár

Sigurlaug Bjarnadóttir:

Herra forseti. Þessum umr. utan dagskrár var frestað á dögunum án þess að mér gæfist færi á að þakka hæstv. viðskrh. fyrir svör hans og um leið fyrir að fá að hreyfa þessu máli hér. Það tekur örstuttan tíma frá minni hálfu.

Ég taldi aðeins nauðsynlegt að það heyrðist rödd frá Alþ. í þá átt að fram kæmi að við alþm. fellum okkur ekki við það að aðrar stofnanir í þjóðfélaginu fari inn á okkar verksvið með ráðstöfun mikilla fjármuna. Ég vil taka það fram hér, að ég tel mig ekki hafa gert þetta að ástæðulausu. Það er staðreynd, að í öllum opinberum umr. um þessa þjóðhátíðarmynt og ráðstöfun á hagnaði af henni hefur hvergi verið minnst á Alþ. nema í umr. á eftir fyrirspurnum sem ég hef lagt fram þar að lútandi. Í mínum augum er þetta stórmál, og ég er fegin því að nú liggur það á hreinu að það er ekki aðeins ríkisstj. og stjórn Seðlabankans sem ráðstafa þessum 300 millj., sem eru annars vegar, heldur mun þar koma til kasta Alþingis.

Ég hlýt að tengja þetta enn hinu stóra menningarmáli okkar, þjóðarbókhlöðunni, þessu stóra, en jafnframt vanrækta menningarmáli, og um leið hinni hörmulega vanræktu þjóðhátíðarheitstrengingu um að í tilefni þjóðhátíðarárs skyldi reist þjóðarbókhlaða er rúmaði Landsbókasafn og Háskólabókasafn. Öllum þeim, sem vinna að okkar bókasafnsmálum, þ. e. a. s. í Þjóðskjalasafni og Landsbókasafni, ber saman um að aðbúnaður allur þar sé okkur, sem státum gjarnan af okkar gömlu bókmenntahefð, til mikillar vansæmdar. Þess vegna tengi ég þessi tvö mál órjúfanlega saman. Ég vænti þess, að þegar tillögur Seðlabanka Íslands koma til kasta Alþ., þá verði vandlega íhugað hvar þeim verður best varið. Í mínum huga er enginn vafi á því. Það er þjóðarbókhlaða.