18.12.1976
Sameinað þing: 35. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1426 í B-deild Alþingistíðinda. (1050)

Umræður utan dagskrár

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins láta það koma fram, að hv. 9. landsk. þm. er ekki einn um það að fella afgreiðslu Seðlabankans á þessum málum bæði óeðlilega og óviðurkvæmilega. Það eru miklu fleiri þm. og jafnvel hæstv. ráðh. sem telja að þannig eigi ekki að standa að málum. Ég vek athygli á því, að t. d. samkv. þeim sjónvarpsfréttum, sem komu frá þeirri hátíðlegu athöfn er bankastjóri Seðlabankans afhenti ríkisstj. till. sínar og minnti einna helst á það sem maður les í mannkynssögunni, þegar hans heilagleiki páfinn í Róm afhenti valdamönnum aflátsbréf, var hæstv. fjmrh. ekki viðstaddur þá athöfn. Ég tek það sem merki um það að hæstv. fjmrh. hafi ekki frekar en fjölmargir óbreyttir þm. verið mjög ánægðir með þessi vinnubrögð Seðlabankans.

Ég tek það fram, að það er rétt að gert var ráð fyrir því að Seðlabankinn sendi frá sér till. um ráðstöfun þessara fjármuna. Hins vegar held ég að þegar gert var ráð fyrir því hafi menn alls ekki átt von á að bær till. yrðu kynntar eins og raun varð á, kallaður yrði saman fjölmennur blaðamannafundur, forustumönnum Alþ. og ríkisstj. yrði gert að mæta hjá bankastjórn Seðlabankans og þeim afhentar þessar till. með þeim hætti að landsmenn eru raunar búnir að slá því föstu að hæstv. ríkisstj. og hv. Alþ. hljóti að fara eftir fyrirmælum Seðlabankans að þessu leyti. Ég held, að menn — og þar með talinn hæstv. bankamrh. — hafi alls ekki átt von á slíkri afgreiðslu, og mér finnst hún í fyllsta máta óeðlileg, óæskileg og raunar vitaverð. Ég tel mjög vafasamt að bankaráð og hankastjórn Seðlabanka Íslands hafi nokkra heimild til þess að hegða sér þannig.

Þá kom það líka fram í fréttum af þessum fundi, að Seðlabanki Íslands, sem á að vera undir stjórn þessarar stofnunar, Alþingis, hafi í till. sínum mælt svo fyrir að þessar fjárveitingar hans ættu ekki að hafa nein áhrif á fjárveitingar Alþ. til þeirra mála sem Seðlabankinn af miskunn sinni ætlaði að sinna. Hvernig getur Seðlabanki Íslands gefið fjvn. og Alþ. fyrirmæli um það, hvernig þessar stofnanir eigi að ráðstafa því fé sem þeim ber lögum samkv. að ráðstafa? Ríkisstj. getur ekki gefið Alþ. slík fyrirmæli og þá því síður Seðlabanki Íslands. Þetta er eitt af mörgum atriðum í þá veru að mér og hv. 9. landsk. þm. og fjölmörgum öðrum þm. er nóg boðið. T. d. get ég bent á að það eru fleiri ríkisstofnanir en Seðlabanki Íslands sem hagnast á sinni starfsemi. Við skulum taka t. d. Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins. Ég held að það sé undantekningalaust að söluhagnaður Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á hverju ári er mun meiri en fjárlög gera ráð fyrir. Er það þá eðlilegt að forstjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins taki sér bankastjóra Seðlabanka Íslands til fyrirmyndar, kalli saman blaðamannafund og tilkynni að hann muni leggja fyrir ríkisstj. og Alþ. till. um hvernig eigi að verja þeim fjármunum sem hagnaður Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á árinu hefur orðið umfram fjárlög? Forstjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins gæti gert þetta með sama rétti og bankastjórar Seðlabanka Íslands telja sig geta ráðstafað þeim fjármunum sem hér er um að ræða. Ég tel að þetta sé ekki æskilegt, þetta sé ekki eðlilegt og þetta sé ekki það sem Alþ. eigi að samþ. með þögninni, þegar háttsettir embættismenn, sem stundum setja sig ekki úr færi að gagnrýna stjórnmálamenn, ríkisstj., ráðh. og alþm., fyrir hvernig þeir halda á sínum málum, þ. á m. fjármálum, — þegar þessir sömu menn telja sig vera svo hátt yfir sína yfirbjóðendur hafna að þeir geta kallað þá fyrir sig, eins og páfinn í Róm þóttist geta kallað ráðamenn ríkja fyrir sig á miðöldum, og gefið þeim skipun um hvernig þeir eigi að ráðstafa fjármunum sem þessir sömu menn eiga raunar með að fara.

Þetta mál er að mínu viti ekki afgr. af Alþ. enn. Alþ. og ríkisstj. hafa algjörlega óbundnar hendur af till. Seðlabanka Íslands. og það kemur ekki til mála að mínu viti að ríkisstj. Íslands taki þessar till. Seðlabankans óbreyttar upp og flytji hingað inn á Alþ., meðfram vegna þess að í þessum till. er gert beinlínis ráð fyrir því að Alþ. og fjvn. taki í sambandi við ákvörðun á ráðstöfun fjármuna til ýmissa verkefna á fjárlögum ekkert tillit til þess hvernig þessum fjármunum, sem Seðlabanki Íslands hefur gert till. um að ráðstafa, sé varið.

Ég vil enn fremur vekja athygli hv. alþm. á því, að enn er uppgjöri þjóðhátíðar ekki lokið, og mig uggir það mjög að afkoma þjóðhátíðar sé ekki jafnglæsileg og látið hefur verið í veðri vaka. Þessir fjármunir, sem fengust fyrir þá minnispeninga sem Seðlabanki Íslands gaf út eru sennilega einu fjármunirnir sem munu skila sér í hagnaði. Þetta á að taka og ráðstafa að till. Seðlabankans áður en séð er hver útkoma þjóðhátíðarinnar verður, og síðan er Alþ., væntanlega fjvn., ætlað að standa undir því ef einhver mismunur verður þar á.

Málið er ekki afgr., hvorki af hálfu Alþ. né ríkisstj., eins og ég sagði áðan, og menn mega fyllilega eiga von á því að hér á hv. Alþ. verði lögð fram till. um ráðstöfun þessa fjár með öðru móti en bankastjórar Seðlabankans hafa gert till. um. Annars virðist þetta mál vera orðið þannig varðandi samskipti ríkisvaldsins annars vegar og undirsáta þess. Seðlabanka Íslands, hins vegar, að það virðist vera komið út á þá braut, sem við þekkjum enn úr miðaldasögunni, þegar átökin voru milli annars vegar ríkisvaldsins og hins vegar hins klerklega valds, þar sem Seðlabanki Íslands leikur hlutverk hins síðarnefnda.

Ég ætla nú ekki að fara öllu frekar út í þessa sálma hér, en vil beina þeirri eindregnu áskorun til. hæstv. forseta, að hann reyni að gefa sér tíma til að taka annað mál fyrir áður en kemur að jólafríi. Það eru utandagskrárumr. um Kröflu sem hófust hér á Alþ. fyrir mörgum dögum o,n, er ekki lokið enn. Víð vorum þá tveir þm., sem höfðum kvatt okkur hljóðs, ég og hv. þm. Bragi Sigurjónsson. Hins vegar er nú liðinn svo langur tími frá því að þeirri umr. var frestað, að annar okkar hefur horfið af þingi og er ég því einn á mælendaskrá. Ég vil óska eftir því við hæstv. forseta að hann reyni að ljúka þeirri umr. Ég get heitið honum því að vera mjög stuttorður um það sem ég ætla að segja við þá umr.