18.12.1976
Efri deild: 28. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1433 í B-deild Alþingistíðinda. (1061)

100. mál, söluskattur

Frsm. minni hl. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Við hv. þm. Jón Árm. Héðinsson og ég urðum í minni hl. innan fjh.- og viðskn. eins og fyrri daginn í þessu máli og höfum skilað séráliti á þskj. 230.

Hér er um að ræða mál sem hefur verið fastur gestur á borðum þingmanna um margra ára skeið. En að þessu sinni er um það að ræða að olíugjaldið er fellt út sem sjálfstætt gjald og tekið inn í fjárlögin um leið og það er formlega gert að hluta söluskatts.

Í þessu sambandi verður að minna á að þetta gjald var upphaflega á lagt til þess að draga úr áhrifum olíuverðhækkana á hitunarkostnað íbúða, það var ekki lagt á í neinum öðrum tilgangi. Í byrjun var gjaldinu líka varið eftir þessari reglu, og þá kom engum í hug að ráðstafa þessu gjaldi til annarra verkefna ríkisins. En það var fyrst eftir að núv. ríkisstj. kom til valda að farið var að klípa af gjaldinu æ meira á hverju ári, þar til nú er svo komið að aðeins óverulegur hluti af þessu gjaldi á að renna til upphaflegs tilgangs síns, þ, e. a. s. 700 millj. af 1700 millj. kr., en 1000 millj. fara til annarra verkefna á sviði orkumála og eru þar með orðnar hluti af almennri tekjuöflun ríkissjóðs.

Þessi þróun er að sjálfsögðu algjörlega forkastanleg og fráleit. Vandi þess fólks, sem verður að kynda hús sín með olíu, er síst minni en áður var, og á það má benda, að samkvæmt þeim upplýsingum, sem Þjóðhagsstofnun lét n. í té, er kyndingarkostnaður með olíu nú nokkurn veginn nákvæmlega þrisvar sinnum meiri en kyndingarkostnaður með hitaveitu og nokkurn veginn nákvæmlega tvöfalt meiri en kyndingarkostnaður með rafmagni.

Það sést best, hversu fráleit þessi stefna er, af því að reikna má út að þeir, sem kynda hús sín með ollu, munu greiða í söluskatt með þessu 1% gjaldi um það bil 550 millj. Þetta er auðvelt að finna út með því einfaldlega að hafa það til viðmiðunar að 70 þús. landsmenn munu njóta þessa styrks og þeir munu því, miðað við hlutfall af íbúafjölda, borga 32% af gjaldinu sem er um 550 millj. kr. En þeir eiga ekki að fá til baka nema 700 millj. Það er því verið að leggja hér á gjald sem nemur 1700 millj. kr. til þess að yfirfæra 150 millj. kr. til þessa fólks. Sjá auðvitað allir hvers konar skrípaleikur er hér á ferðinni, það er ekki hægt að hafa neitt vægara orð um sýndarmennsku af þessu tagi.

Ég hef ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta mál. Við hv. þm. Jón Árm. Héðinsson leggjum til að frv. þetta verði fellt og að jafnframt verði staðið að greiðslum til þeirra, sem enn verða að nota olíu til að hita upp hús sín, á þann hátt sem upphaflega var lofað.