18.12.1976
Efri deild: 29. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1436 í B-deild Alþingistíðinda. (1070)
119. mál, tollskrá o.fl.
Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):
Virðulegi forseti. Þegar frv. það, sem hér er til umr., var rætt í hv. Ed., gerði ég nokkra grein fyrir aðdraganda frv. svo og gaf sögulegt yfirlit yfir tollamál hér hjá okkur íslendingum. Ég sé ekki ástæðu til þess að endurtaka það hér í hv. d., en vísa til þess sem sagt var í þeirri ræðu, en vík að helstu ákvæðum þessa frv. eins og það er flutt hér á Alþ. á þskj. 147.
Í fyrsta lagi felur frv. í sér samningsbundnar tollalækkanir á verndarvörum frá löndum EFTA og Efnahagsbandalagsins, en samkv. innflutningstölum frá miðju ári 1970 til ársins 1976 mun innflutningur verndarvara vera alls 17 milljarðar af heildarinnflutningi sem er um 73.4 milljarða kr. eða 23.2%. Þar af nam innflutningur frá EFTA og Efnahagsbandalagslöndum 14.9 milljörðum, en 2.3 milljörðum frá löndum utan EFTA og Efnahagsbandalagsins. Tolltekjur ríkissjóðs af þessum innflutningi námu á sama tímabili 3.5 milljörðum kr. og þar af 2 milljörðum frá EFTA og Efnahagsbandalaginu. Ríkissjóður verður af þessum tekjum á næsta ári og sýnir frv. hvernig tollar af innflutningi frá löndum EFTA og Efnahagsbandalagsins munu fara lækkandi stig af stigi á þessu tímabili, sbr. fskj. með frv. Séu fyrrgreindar tölur um tekjutap ríkissjóðs af þessum innflutningi færðar yfir á tekjugrunn fjárlagafrv. 1977 má ætla að þær nemi samtals 2.3 milljörðum kr. á næstu fjórum árum.
Nokkur frávik er að finna í frv. frá þeim tollalækkunarferli sem samið var um við inngönguna í EFTA og ber þar helst til að samningsbundnum tollalækkunum af nokkrum verndarvörum er þar hraðað vegna eindreginna tilmæla samtaka iðnaðarins. Vörur þær, sem hér um ræðir, fengu á sínum tíma sérstakan EFTA-toll, en þær eru íslenskum iðnaði mun mikilvægari sem hráefni en sem verndarvara og innlend framleiðsla þeirra er mjög takmörkuð. Er tollur á vörum þessum felldur niður að fullu frá löndum EFTA og Efnahagsbandalagsins frá 1. jan. 1977.
Annar þáttur endurskoðunar gildandi tollskrár, sem frv. þetta nær til, er lækkun tolla á verndarvörum innflutnings frá löndum utan EFTA og Efnahagsbandalagsins til að koma í veg fyrir óeðlilegan tollamun á innflutningi frá þessum löndum annars vegar og EFTA- og Efnahagsbandalagslöndunum hins vegar. Er gert ráð fyrir að tollar verði einnig lækkaðir á vörum frá þessum löndum. Er nánari útlistun á tollalækkunum þessum að finna í grg. með frv.
Rétt þykir þó að taka fram í þessu sambandi til að forðast misskilning, sem nokkurs hefur gætt, að samningarnir við EFTA og Efnahagsbandalagið byggjast á því, að samningsaðilar veiti hver öðrum gagnkvæm tollfríðindi. Getur því ekki orðið um að ræða að innflutningur frá löndum utan Vestur-Evrópu njóti almennt sömu tollkjara við innflutning til Íslands og innflutningur frá EFTA og Efnahagsbandalaginu nema samið verði um gagnkvæm tollfríðindi frá viðkomandi aðila á grundvelli GATT-samkomulagsins um fríverslunarsvæði.
Áætlað er að tekjutap ríkissjóðs samkv. þessum þætti muni nema um 90 millj. á ári fram til 1980.
Þriðji þáttur endurskoðunar gildandi tollskrár beinist að lækkun tolla á þeim vélum, hráefnum og rekstrarvörum til iðnaðar, sem gjöld höfðu enn ekki verið lækkuð af. Má segja að af þessum þremur tegundum aðfanga sé rekstrarvörutegundaþátturinn hvað mikilvægastur, því að í langflestum tilvikum höfðu gjöld þegar verið felld niður að fullu og öllu af vélum og hráefnum. Má gera ráð fyrir að lækkun tolla af rekstrarvörum einum sér, þ. e. a. s. af ýmsum vörum til tækninota og verkfæra ýmiss konar nemi um 170 millj. kr. á næstu 4 árum. Koma lækkanir þessar til framkvæmda á mislöngum tíma, en leitast var við að þær lækkanir, sem mikilvægastar virtust, kæmu að fullu til framkvæmda strax frá næstu áramótum.
Fjórði þáttur endurskoðunarinnar beinist að lækkun tolla af fjárfestingarvörum og hef ég þegar vikið nokkuð að þeim þætti. Gert er ráð fyrir, að lækkanir þessar komi til framkvæmda í áföngum og þá í fyrsta sinn 1. jan. 1979. Í grófum dráttum má segja að tollalækkun þessi taki til vöruflokka eins og byggingarefnis ýmiss konar: furu, þakjárns, einangrunarplatna og efnis, steypustyrktarjárns og ýmiss konar raflagnaefnis, auk lækkunar á vélum, vélahlutum og varahlutum almennt, sem þó er að mestu leyti notað í iðnaði og öðrum atvinnurekstri. Gert er ráð fyrir að tekjutap ríkissjóðs af þessum sökum, þegar allar lækkanirnar eru komnar til framkvæmda, nemi um 1 milljarði 150 millj. kr. á grundvelli fjárlaga 1977.
Fimmti þáttur endurskoðunarinnar beinist að lækkun hæstu fjáröflunartolla. Í tollskrárlögum þeim, er tóku gildi í ársbyrjun 1974, var tollur á fjölmörgum vörum, sem báru 100% toll, lækkaður í 80%. Var litið á þessa breytingu sem fyrsta skrefið í átt til lækkunar fjáröflunartolla almennt, og lýstu ýmsir hv. alþm. fylgi við slíka lækkun í umr. um málið hér á Alþ. Um almennan rökstuðning fyrir nauðsyn þess að lækka fjáröflunartolla vísa ég til aths. frv. um það efni, sem tvímælalaust á erindi inn í umr. um framtíðarskipan þessara mála. Af tekjuöflunarsjónarmiðum þótti ekki fært á þessu stigi að lækka fjáröflunartolla meira en svo, að þeir tollar, sem eru 100, verði lækkaðir í 80, svo og allir 90% tollar að undanskildum tollum á bifreiðum. Ég tel að nauðsyn beri til að gera enn frekara átak í þessum efnum enda þótt ekki þyki fært í þessu frv. að tímasetja hugsanlegar lækkanir af þessu tagi.
Sjötti þáttur endurskoðunarinnar miðar að því að allir magntollar að undanskildum magntollum á olíum í 27. kafla tollskrárinnar verði felldir niður. Yfirleitt hafa þessir tollar numið óverulegum fjárhæðum og þar af leiðandi er ekki gert ráð fyrir því að í þeirra stað verði lagður á verðtollur, nema á kartöflur þar sem í stað 20 kr. magntolls pr. 100 kg komi 4% verðtollur. Er ekki gert ráð fyrir neinni aukningu tekna af þessari breytingu og því fyrst og fremst um formbreytingu að ræða.
Þá er komið að mjög mikilvægri breytingu sem í frv. felst frá gildandi lögum, enda þótt ekki hafi sú breyting ein sér neinar tekjubreytingar í för með sér. Er hér átt við þær verulegu textabreytingar sem lagt er til að gera á íslensku tollskránni vegna breytinga sem gerðar hafa verið á tollskrá Tollasamvinnuráðsins í Brüssel sem Ísland er aðili að og íslenska tollskráin er byggð á eins og fyrr er að vikið.
Með þeim breytingum, sem hér um ræðir, fæst mun nánari sundurliðun á innflutningi til landsins, sem í mörgum tilfellum getur haft hagnýtt gildi jafnt fyrir opinbera aðila sem innflytjendur og framleiðendur. Breytingar þessar munu þó vafalaust fyrst í stað valda innflytjendum og tollstarfsmönnum nokkrum erfiðleikum, en eru hins vegar ugglaust til mikilla bóta. Þessu til viðbótar hafa borist beiðnir frá ýmsum samtökum atvinnulífsins hér á landi um enn nánari sundurgreiningu innflutnings eftir tollskrárnúmerum, og hefur í frv. verið reynt að koma til móts við þær óskir, eins og frekast hefur verið unnt.
Fyrst hér er minnst á hið alþjóðlega samstarf á sviði tollamála fyrir milligöngu Tollasamvinnuráðsins má geta þess, að þetta samstarf nær ekki einungis til samvinnu og samræmingar á sviði tollalöggjafar, heldur til samræmingar á öðrum sviðum tolltækni svo og á sviði verðmætisákvarðana og ýmiss konar framkvæmdaatriða. Þá má benda á samstarf til að vinna gegn alvarlegum brotum á tollalögum, svo sem ólögmætum viðskiptum með áfengi, ávana- og fíkniefni o. fl. Hefur fjmrn. upp á siðkastið lagt áherslu á virka þátttöku af Íslands hálfu í þessu samstarfi og mun því verða haldið áfram næstu árin.
Tveimur þáttum endurskoðunarinnar hefur ekki verið gerð grein fyrir, en það eru breytingar á 2. og 3. gr. gildandi tollskrár um heimild rn. til lækkunar eða niðurfellingar aðflutningsgjalda og hins vegar breytingar á ýmsum framkvæmdaatriðum tollalöggjafarinnar í 4.–38. gr. frv. Fer ég ekki nánar út í þau atriði hér, enda er ítarlega gerð grein fyrir breytingum þessum í aths. við frv.
Auk þeirra breytinga, sem nú hefur verið lýst, hafa verið gerðar einstakar breytingar aðrar, og má þar m. a. nefna lækkun tolla á vörubifreiðum undir 3 tonnum úr 40% í 30% til samræmis við gjöld af vörubifreiðum yfir 3 tonn, hækkun tolla á jeppabifreiðum úr 40% í 90%, en á móti er gert ráð fyrir lækkun á innflutningsgjaldi af jeppabifreiðum úr 90 í 50. Er með þessari breytingu endanlega búið að samræma gjöld af þessari tegund bifreiða við gjöld af almennum fólksbifreiðum sem lengi hefur sýnst nauðsynlegt og eðlilegt. Þá má nefna lækkun tolla á ýmsum hátollavörum úr 100% í 35%, enda oft um að ræða hátollavörur sem nánast eru nefndar smyglvörur og þess vegna talið eðlilegt til þess að fyrirbyggja slíkt að breyta um og lækka toll.
Ljóst má vera af því, sem hér hefur verið sagt, að frv. þetta miðar fyrst og fremst að því að ná jöfnuði í samkeppnisaðstöðu innlends verndarvöruiðnaðar við erlendan, áður en tollvernd hans lýkur í ársbyrjun 1980. Til viðbótar þeim leiðréttingum, sem í frv. þessu felast og ganga í fyrrgreinda átt, vil ég minna á heimildarákvæði í fjárlagafrv. fyrir 1977 þess efnis að fella niður að fullu sölugjald af vélum og tækjum til samkeppnisiðnaðar. Það ákvæði er sett í fjárlagafrv. í beinum tengslum við samningu þessa frv. og verður að skoða þá lækkun sem hluta af ívilnandi aðgerðum ríkisstj. sem að er stefnt iðnaðinum til handa. Sú lækkun er talin munu nema 100–150 millj. kr. á ársgrundvelli 1977.
Ljóst er að breytingar þær, sem í frv. þessu felast, eru æði-umfangsmiklar og ættu, eins og fyrr er greint, að jafna verulega samkeppnisstöðu innlends verndarvöruiðnaðar, sé litið á tollahlið málsins sérstaklega. Ef hins vegar á að jafna samkeppnisaðstöðu íslensks iðnaðar við erlendan til fulls og láta hann að auki njóta staðarverndar, sem verið getur veruleg, þá er um það getið í grg. og sýnist ekki ástæða til nánari skýringa hér.
Þrátt fyrir þær breytingar og lagfæringar, sem í frv. felast og miða að bættri samkeppnisaðstöðu innlends iðnaðar, fer ekki hjá því að íslensk tollalöggjöf, sem um langan tíma hefur mótast af háum tollum, verður vart lagfærð á skömmum tíma svo ekki verði einstök vandamál óleyst. Sérstaklega á þetta við þegar aðföng ákveðinnar iðngreinar eru jöfnum höndum til almennra nota, eins og dæmi eru til um. Til þess að unnt sé að leiðrétta alvarlegt misræmi af þessu tagi er í 3. gr. frv. tekið upp víðtækt heimildarákvæði þess efnis, að fella megi niður eða endurgreiða aðflutningsgjöld af aðföngum í verndarvöruiðnaði. Mun fjmrn. verða að meta hverju sinni beiðni um breytingu umrædds heimildarákvæðis á grundvelli mikilvægis hvers máls svo og út frá sjónarmiðum öruggrar tollskrárframkvæmdar og samkeppnisstöðu viðkomandi framleiðslu.
Í grg. frv. er að finna tölulegt yfirlit yfir áætlað tekjutap sem tollalækkanir frv. munu valda ríkissjóði á þeim fjórum árum sem hér um ræðir. Ljóst er að hér er um verulega lækkun að ræða, samtals 4 milljarða og 400 millj. og þar af um 900 milli. sem koma til framkvæmda á næsta ári. um 300 millj. meira en fjárlagafrv., eins og það liggur fyrir, gerir ráð fyrir. Það dylst engum að ríkissjóður verður með einhverjum hætti annaðhvort að draga úr útgjöldum eða bæta sér upp það tekjutap sem ríkissjóður verður fyrir, en það mun að sjálfsögðu koma til kasta þingsins þegar þar að kemur og hefur ekki verið tekin þar um nein ákvörðun að svo stöddu.
Á árinu 1975 var sú ósk borin fram af samtökum iðnaðarins, að leitað yrði eftir því við EFTA og Efnahagsbandalagið að fá almenna framlengingu á aðlögunartíma að því er snertir tollalækkun á verndarvörum. Ríkisstj. taldi ekki rök vera fyrir almennri framlengingu aðlögunartímans, en hins vegar kæmi til álita að óska eftir undanþágum fyrir einstakar iðngreinar er stæðu höllum fæti í samkeppni. Í þessu skyni var að undirlagi ríkisstj. hafin athugun á vegum Þjóðhagsstofnunar á áhrifum fríverslunarsamninga á innlendan verndarvöruiðnað, og mun skýrsla stofnunarinnar væntanleg á næstunni, ef hún þá liggur ekki fyrir nú þegar. Gefst þá tækifæri til athugunar á því, hvort sérstakrar undanþágu er þörf fyrir einstakar greinar verndarvöruiðnaðarins. Í þessu sambandi vil ég leggja ríka áherslu á það hér, að samþykki þessa frv. snertir engan veginn hugleiðingar um þetta efni, því að umsamdar tollalækkanir koma til framkvæmda frá ársbyrjun. Það er því að mínum dómi mjög mikilvægt að það frv., sem hér liggur fyrir, fái afgreiðslu fyrir jól, því að þær tollalækkanir, sem þegar hefur verið samið um og ég gat um áðan, koma til framkvæmda frá og með 1. jan. og yrði mjög erfitt að eiga við afgreiðslu mála ef tollalækkanir á aðföngum og véham til iðnaðarins yrðu ekki gerðar í leiðinni.
Við meðferð málsins í Ed. voru gerð á frv. örlitlar breytingar. Þar var komið enn fremur til móts við iðnrekendur í sambandi við lækkun tolla á aðföngum og efni í vörum til húsgagnaiðnaðar, enn fremur til fataiðnaðar. Þá voru og lagfærð nokkur tollskrárnr. varðandi vélar til landbúnaðar og sjávarútvegs. Enn fremur var breytt þeirri reglu sem gilt hefur um tollundanþágu vegna bifreiða fyrir öryrkja og sjúka. Þær breytingar, sem gerðar voru í hv. Ed., þýða í tolltekjutapi rúmar 100 millj. kr. Hins vegar var talið að um vanmat hafi e. t. v. verið að ræða þannig að ekki þykir ástæða til breytinga í sambandi við þær tölur sem áður höfðu verið gefnar upp og reiknað hafði verið með og mun reiknað með í sambandi við afgreiðslu fjárlaga nú á næstu dögum.
Ég endurtek það, sem ég sagði áðan, að ég legg áherslu á að hv. þd. taki mál þetta þegar til skoðunar, og ég vil vonast til þess að hægt verði að afgreiða tollskrána sem lög frá Alþ. áður en jólaleyfi hefst. Ég leyfi mér svo, virðulegi forseti, að leggja til að frv. þetta verði að lokinni 1. umr. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn., en n. beggja deilda hafa starfað saman að afgreiðslu þessa máls og athugun og embættismenn þeir, sem unnið hafa að málinu, hafa setið fundi n. og gefið þar skýringar.