18.12.1976
Efri deild: 29. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1441 í B-deild Alþingistíðinda. (1072)

127. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen) :

Forseti. Þetta frv., sem hefur legið fyrir Ed. og hlotið samþykki hennar, stendur í sambandi við gildistöku nýs fasteignamats nú um áramót. Svo er mál með vexti að í lögum um tekjustofna sveitarfélaga segir svo í 3. gr. að á allar fasteignir, sem metnar eru í fasteignamati, skal árlega leggja skatt til sveitarfélags þar sem fasteign er, og skal skatturinn miðaður við fasteignamat og vera 1/2% af fasteignamati íbúða og íbúðarhúsa, en 1% af öðrum fasteignum.

Fasteignamatið, sem gilt hefur að undanförnu, er frá 1970, og hafa verið ákvæði um það í lögum síðan að heimilt væri að leggja álag á þann fasteignamatsgrunn í sambandi við fasteignaskattinn. Þessi lagaákvæði voru þannig, að í fyrstu var heimilað að ákveða breytingar á hinu nýja fasteignamati, þ. e. a. s. fasteignamatinu frá 1970, til samræmis við verðlag. Síðar var þessu breytt þannig að þessi heimild var miðuð við byggingarvísitölu og breytingar á henni. Samkvæmt þessum lagaheimildum hafa orðið eftirfarandi breytingar á fasteignagjöldum eða þeirri viðmiðun sem hér er um að ræða, að á árinu 1972 var heimilað 20% álag, á árinu 1974 45% álag, 1975 100% álag, 1976 173% og 15. nóv. s. l. var samkvæmt þessum lögum og í samræmi við breytingar á vísitölu ákveðið að á árinu 1977 mætti álag á fasteignamatið í sambandi við álagningu fasteignaskatta vera 236%. Þessi tala, sem greinir í 2. gr. þessa frv., 236% á gamla fasteignamatið, samsvarar hækkun milli ára um 23.1%.

Þegar hið nýja fasteignamat tekur gildi um áramót er þar um margföldun að ræða, þ. e. almennt 51/2 sinnum frá gamla matinu, en í sumum sveitarfélögum nokkru meira. Ef lögin um tekjustofna sveitarfélaga væru óbreytt mundi þessi hækkun fasteignamatsins leiða af sér mjög verulega hækkun á fasteignagjöldum í öllum sveitarfélögum vegna þess að samkvæmt lögum er það skylda hvers sveitarfélags að leggja á fasteignamat 1/2% eða 1%, eftir því sem ég greindi áðan. En til viðbótar þessari skyldu hafa sveitarfélög heimild til að innheimta álag á þennan fasteignaskatt sem má vera allt að 50%.

Í lögunum, sem samþykkt voru á Alþ. á s. l. vori um fasteignamat, er gert ráð fyrir því í bráðabirgðaákvæði, að áður en hið nýja fasteignamat tæki gildi skyldi endurskoða lagaákvæði um þær álögur sem fylgja fasteignamati. Nú held ég að flestir, ef ekki allir, séu sammála um að ekki komi til greina að hækka fasteignaskatta svo mjög sem mundi leiða sjálfkrafa af þessu nýja mati að óbreyttum lögum. Með hliðsjón af því, að verkaskipting sveitarfélaga og tekjustofnar eru í allsherjarendurskoðun, hefur þótt rétt að leggja til við Alþ. að fasteignaskattar á næsta ári verði þrátt fyrir hið nýja fasteignamat ekki hærri en þeir mundu hafa orðið á því ári eftir gamla matinu, en það þýðir 236% álag, eða ef við viljum bera það saman við fasteignamat árið 1970 og notum töluna 100 um það, þá er talan 336 hliðstæð tala fyrir næsta ár, eins og þetta frv. gerir ráð fyrir. Þetta þýðir því að hækkun fasteignaskatta almennt mundi verða 23.l% í samræmi við hækkun byggingarvísitölu. Hins vegar helst heimild sveitarfélaganna um allt að 50% álag óbreytt samkvæmt þessu frv.

Um annað atriði er fjallað í 1. gr. frv. og er efni þeirrar gr. að framkvæmd skuli haldast óbreytt eins og verið hefur um margra ára skeið um það hvenær fyrst sé heimilt að leggja fasteignaskatt á byggingu. Í þeim lögum, sem giltu fram til s. l. vors, þ. e. a. s. frá 1963, að ég ætla, um fasteignamat, var svo ákveðið að fasteignir skyldi meta til fasteignamats þegar þær væru fullgerðar. Það þýddi að ekki var heimilt að leggja á né skylt að leggja á fasteignaskatt fyrr en bygging var fullgerð. Hins vegar verður breyting samkvæmt hinum nýju lögum um fasteignamat því þá er gert ráð fyrir að einnig sé framkvæmt fasteignamat á húsum í smíðum. Formaður yfirfasteignamatsnefndar, Gaukur Jörundsson prófessor, ritaði nýlega félmrn. og benti á þessa breyttu framkvæmd og hvort ekki þyrfti að athuga það mál nánar í sambandi við gjöld sem fylgdu fasteignamatinu. Ef ekkert væri að gert í þessu gæti raunin orðið sú, að þegar fasteignamat kemur á íbúðir í smíðum, hvort sem þær eru fokheldar eða lengra komnar, þá er ekki aðeins heimilt, heldur skylt að leggja þá þegar fasteignaskatt á þær íbúðir. Það þýðir að t. d. ungt fólk, sem stendur í því að koma upp yfir sig íbúð og hefur hingað til ekki þurft að greiða fasteignaskatt fyrr en íbúðin er fullgerð, gæti nú lent í því ofan á aðra erfiðleika við þær framkvæmdir að þurfa að greiða fasteignaskatt meðan íbúðin er í smiðum og áður en búið er að taka hana til afnota. 1. gr. þessa frv. miðar að því að koma í veg fyrir þetta og að á árinu 1977 skuli haldast sú framkvæmd sem verið hefur samkvæmt fyrri lögum. Eftir athugun í félmrn. og víðræður við þá menn, sem gerst þekkja, var ákveðið það orðalag sem greinir í 1. gr. frv.

Ég legg til að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. félmn.