18.12.1976
Neðri deild: 30. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1443 í B-deild Alþingistíðinda. (1075)
99. mál, tímabundið vörugjald
Frsm. meiri hl. (Ólafur G. Einarsson) :
Hæstv. forseti. Fjh.- og viðskn. hefur athugað þetta frv., en varð ekki sammála um afgreiðslu þess. Álit meiri hl. n., sem ég mæli hér fyrir, er á þskj. 237. Meiri hl. leggur til að frv. verði samþykkt, en ég vil láta þess getið að brtt. mun koma fram við frv. síðar, þegar tollskrárfrv., sem nú er til meðferðar hér í hv. þingdeild, hefur verið samþ. Þessa brtt. leiðir af samþykkt þess frv. þar sem breyta þarf þeim tollskrárnr. sem þetta vörugjald tekur til, þótt gert sé ráð fyrir að vörugjaldið greiðist af sömu vörum og áður.