20.12.1976
Efri deild: 32. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1461 í B-deild Alþingistíðinda. (1119)
136. mál, almannatryggingar
Frsm. meiri hl. (Oddur Ólafsson) :
Herra forseti. Í sambandi við þá kostnaðarbreytingu, sem verður við samþykkt þessara laga, hef ég fengið leyfi hæstv. heilbrrh. til þess að skýra hvernig jöfnuður verði fenginn. Það verður gert á þann hátt að tekið verður af þeim, sem hagnast á þessari kostnaðarbreytingu, og fært yfir til þeirra sjúkrasamlaga sem verða fyrir kostnaðaraukningu. Þetta er í raun og veru það atriði sem við höfum átt erfiðast með að gera okkur grein fyrir, en með þessu fyrirkomulagi ætti að vera tryggt að enginn kæmi til með að tapa á þessari breytingu.