20.12.1976
Neðri deild: 35. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1474 í B-deild Alþingistíðinda. (1148)

119. mál, tollskrá o.fl.

Ragnhildur Helgadóttir:

Herra forseti. Mig langar til, þó mjög sé liðið nærri jólahléi, að vekja athygli á einu sérstöku máli í sambandi við það frv. sem við höfum nú til meðferðar. Mér er alveg ljóst að það er orðið allt of seint að hreyfa nokkuð við því til breytingar, enda er það seint lagt fram, en ég vil vekja athygli á erindi mínu til skoðunar í þeirri almennu athugun á tekjuöflun ríkisins sem fram fer og mun fram halda á næstunni. En þetta varðar hluta af fjáröflunartollunum og þá sérstaklega tolla á tækjum sem eru nú á dögum alger nauðsyn á heimilum.

Aðrir hv. ræðumenn hafa vikið nokkuð að þessu atriði, en mér hefur lengi verið það ljóst að ákvæði, sem um þetta fjalla í tollskránni, eru löngu orðin úrelt. Þegar ýmis heimilistæki voru tolluð með sama hætti og munaðarvarningur voru allt aðrir tímar hér á landi, og ýmis þau tæki, sem nú eru talin sjálfsögð og óhjákvæmileg í heimilisrekstri, eru ekki lengur þannig að það geti staðist að þau séu notuð sem andlag fjáröflunartolla. Ég nefni sem dæmi þvottavélar. Ef þær taka minna en 6 kg, þá er á þeim 80% tollur samkv. þessu frv., ef þær eru ætlaðar til heimilisnota. Ef þær eru ekki ætlaðar til heimilisnota, þá er 35% tollur. Á strauvélum, ef þær eru ætlaðar til notkunar á heimilum, er 80% tollur, en ef nota á þær annars staðar, þá er 35% tollur. Svona má lengi telja. Jafnvel af sjálfsögðum hlutum til þrifnaðar og heilsuverndar, svo sem ryksugum, er 80% tollur, líkt og af munaðarvarningi, að ég tali ekki um ýmis önnur tæki, kæliskápa t. d. Ég held, að allar nútímaíbúðir séu þannig hannaðar að þar sé óhjákvæmilegt að hafa kæliskáp ef á að reka heimili með sæmilegu móti.

Þetta atriði hefur raunar verið ljóst lengi. Það eru áratugir síðan flutt var um það frv. hér á Alþ. af hv. þáv. þm., Kristínu heitinni Sigurðardóttur, að lækka beri eða fella niður ýmiss konar aðflutningsgjöld á heimilistækjum. Mér finnst satt að segja að það hljóti að fara að líða að þeim tíma að þau sjónarmið, sem sett voru fram þá, fari að verða að veruleika. Á þetta hefur margoft verið bent, sérstaklega af hússtjórnarkennurum, húsmæðrafélögum og fleiri aðilum.

Ég vildi ekki láta afgreiðslu þessa máls fara fram án þess að undirstrika þetta atriði sérstaklega. Þetta snertir hag hvers einasta heimilis í landinu og þeim mun heldur sem nú á dögum er allur viðgerðarkostnaður þessara tækja svo gífurlegur að fólk horfir oft á það að viðgerð, sem er tiltölulega einföld, er svo dýr að það er áhorfsmál hvort ætti ekki fremur að kaupa nýtt tæki, þannig að það er mjög algengt í rekstri allra heimila að leggja þurfi í fjárútlát vegna heimilistækjakaupa.

Um fleiri hluti til heimilisrekstrar á þetta einnig við.

Annan þátt þessa máls langar mig líka að minnast á, og það er þó á heldur jákvæðari hátt. Ég sé í þessu frv. að þar eru töluverðar lækkanir og gert ráð fyrir að enn frekari lækkanir verði í áföngum á ýmiss konar fjárfestingarvörum, sérstaklega til bygginga. Þetta hefur lengi verið mikið áhugamál mitt, og flutti ég þess vegna þátill. um það fyrir nokkrum árum að unnið væri að lækkun opinberra gjalda á slíkum vörum í þeim tilgangi að lækka byggingarkostnað. Mér sýnist, að töluvert hafi miðað í átt að þeim hugmyndum sem ég óskaði eftir að framkvæmdar væru og verið hafa einnig í huga fjölmargra annarra þm. Ég held að þarna hljóti að vera um skynsamlega stefnumörkun að ræða. Þó að tölulega verði um beint tolltekjutap ríkisins að ræða af þessum sökum, þá má einnig undirstrika að ríkið stendur sjálft í verulegum fjárfestingum og mun þar af leiðandi geta komist af með heldur minni kostnað af þessum vörum, ef tollarnir lækka, en ella hefði orðið.

Herra forseti. Ég mun ekki tefja þennan fund okkar frekar. Ég vildi sérstaklega og fyrst og fremst vekja athygli á því og undirstrika þá ósk mína og fjölmargra annarra að unnið verði af mikilli alvöru að því að lækka gjöld af heimilistækjum.