20.12.1976
Neðri deild: 35. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1477 í B-deild Alþingistíðinda. (1150)

119. mál, tollskrá o.fl.

Forseti (Magnús T. Ólafsson) :

Mér þykir leitt að verða að skýra frá því, að þrátt fyrir alla eftirgangsmuni þingvarða hefur hæstv. ráðh. ekki fundist.

Þórarinn hórarinsson: Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umr. Ástæðan til þess, að ég kveð mér hljóðs, er sú, að ég vil lýsa alveg sérstakri ánægju yfir þeim ummælum, sem hv. 5. þm. Reykv. lét hér falla um nauðsyn þess að lækka tolla á heimilisvélum. Ég hef áður flutt þing eftir þing till. um lækkun á heimilisvélum, en því miður fengu þær ekki nægar undirtektir þá, svo að ég gafst hreinlega upp við að halda þessum tillöguflutningi áfram. Ég fagna því alveg sérstaklega að nú skuli þessari hugmynd hafa bæst stuðningur sem hún hafði ekki áður, og ég vænti þess að í framhaldi af því rísi upp nægilega sterkur þrýstihópur hér á Alþ. til að koma þessu réttlætismáli heimilanna fram.