20.12.1976
Neðri deild: 36. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1478 í B-deild Alþingistíðinda. (1160)

66. mál, vegalög

Frsm. (Friðjón Þórðarson) :

Herra forseti. Samgn. hefur falið mér sem frsm. að gera grein fyrir þessu máli. Nm. tóku fram að þeir óskuðu þess að ég kæmi á framfæri því sem þeim lá á hjarta við umr. málsins, en það er ævinlega svo þegar samgöngumál ber á góma að þá liggur mönnum mikið á hjarta. Ég mun því reyna að gera það hér í örfáum orðum.

Hér er um að ræða frv. til l. um breyt. á vegalögum, nr. 66 frá 14. júlí 1975. Frv. var vísað til samgn. 15. þ. m., svo að n. hefur haft mjög nauman tíma til að skoða það vandlega, í raun og veru aðeins tvo daga og þá mjög annasama. En málið var um nokkurn tíma í athuggun hjá samgn. Ed. og gerði hún á því nokkrar breytingar, aðallega tvær sem telja verður til bóta.

Samgn. er ljóst að ef farið verður að hrófla við ákvæðum frv. nú á síðustu dögum þings fyrir jól, þá er nokkuð augljóst mál að það nær ekki samþykki. En það er hins vegar nauðsynlegt þar sem á gildandi vegalögum byggist gerð vegáætlunar. Vegáætlun átti í raun og veru að vera búið að leggja fram, en hún mun hafa tafist m. a. af því að breytingar á vegalögum lágu í loftinu. Á þeim skamma tíma, sem n. hafði til að athuga frv., kallaði hún þó á sinn fund vegamálastjóra, Snæbjörn Jónasson, og Jón Rögnvaldsson yfirverkfræðing hjá Vegagerð ríkisins.

Eins og að líkum lætur voru margir um orðið þegar frv. þetta var lagt á borð nm. og menn töluðu allan þann tíma, sem n. hafði til umráða, um áhugamál sín í þessu efni. Það voru nokkur atriði sem nm. töldu nauðsynlegt að hér yrði komið á framfæri.

M. a. var svo um orðalag 3. gr. frv. Þar vildu nokkrir nm. leggja á það áherslu að það yrði ekki talið neitt forgangsverkefni að það yrði ekki talið neitt forgangsverkefni að leggja bundið slitlag á vegi, heldur ætti jafnframt og ekki síður að hugsa um að byggja upp vegakerfið þar sem það er aðeins slóðar eða götutroðningar víða um land. En þeir töldu að orðalag gr. fæli í sér þá hættu að þeir hlutar vegakerfisins, sem lélegastir eru, yrðu látnir mæta afgangi, en hraðbrautir yrðu látnar hafa forgang. Ég vek athygli á því að í nál. er rætt um hraðbrautir í þessu sambandi, en það er í raun og veru ekki rétt að því leyti til að ef frv. verður samþ. eins og það er nú falla hraðbrautir niður, þá verða ekki lengur til neinar hraðbrautir með því nafni, heldur aðeins stofnbrautir og þjóðbrautir.

Aðrir nm. voru þó á því máli og töldu augljóst að um þetta efni, hvort lagt yrði bundið slitlag á veg eða ekki, færi aðeins eftir umferðarmagni, þ. e. a. s. umferðarmagn réði gerð vegarins, eins og raunar er tekið fram allgreinilega í aths. við 3. gr. frv. Þá lögðu nm. mjög ríka áherslu á að alþm. yrðu hafðir með í ráðum við undirbúning vegáætlunar og yfirleitt öll þau atriði sem snerta þessi mál. Það sýnir hvað þessi mál eru viðkvæm og snerta hagsmuni margra landsmanna að þetta var tekið mjög skýrt fram hvað eftir annað.

Eins og mönnum er kunnugt var 7 manna n., sem undirbjó þetta frv., sérstaklega falið að athuga fjögur atriði.

Það var í fyrsta lagi gildandi flokkun vega. Það er tekið til greina í frv. að því leyti, að nú er 12. gr. þess vikið talsvert við. Áður var um fjóra flokka aðræða að þessu leyti, en ef þetta frv. nær samþykki verða flokkar tveir: stofnbrautir og þjóðbrautir. Eins og segir í grg. með till. n. er þjóðvegakerfinu skipt í tvo flokka og verður meginstofn þjóðvegakerfisins í einum vegflokki. Þetta hygg ég að flestir séu sammála um nú orðið.

Þá var þessari 7 manna n. falið að kanna hvort gera ætti sérstakar svæðaáætlanir eða landshlutaáætlanir, eins og átt hefur sér stað eða fella allar vegaframkvæmdir inn eina allsherjar vegáætlun sem Alþ. afgreiðir í heild. Ég hygg að um þetta séu flestir sammála, að það sé ekki ráð að efna til sérstakra landshluta- og svæðaáætlana þannig að Alþ. fjalli ekki um þær. Að þessu er vikið í 1. gr. frv., en ákvæði hennar felld að öðru leyti að þeirri framkvæmd sem orðið hefur.

Þá var í þriðja lagi rætt um fjárþörf sýsluvegasjóða. Frá því að vegalögin tóku gildi 1. jan. 1964 hafa sýsluvegir verið lengdir allverulega tvívegis með lagabreytingu. Þeir munu hafa lengst á því tímabili, sem liðið hefur frá því að vegalög í núverandi mynd tóku gildi, um 64%, en fjárveitingar til þeirra hafa ekki aukist að sama skapi. Það var því alveg augljóst mál að á þessu þyrfti að gera breytingu, eins og hvað eftir annað hefur verið vikið að á undanfarandi þingum. Kann því að virðast ganga í öfuga átt sú breyting sem samgn. Ed. gerði á frv., þegar hún lagði til að 26. gr orðaðist þannig, að í kauptúnum, sem eru hreppsfélög út af fyrir sig, skuli 3/4 sýsluvegasjóðsgjalda renna í sveitarsjóð ef hreppsfélagið ver til vega- eða gatnagerðar innan hrepps á því ári a. m. k. jafnmiklu fé úr sveitarsjóði. Þarna stóð áður helmingur. Þess vegna sjá menn að það virðist svo um marga eða a. m. k. þó nokkuð marga sýsluvegasjóði, að þeir tapa tekjum við samþykkt þessarar gr. En á annað er að líta. Þetta er mun margþættara mál. Eins og við könnumst allir við, sem setið höfum á Alþ. undanfarin ár, hefur verið vaxandi ásókn hinna fjölmennari kauptúna eftir kaupstaðarréttindum. Þau rök hafa m. a. verið talin fram fyrir þessari ásókn, að kauptúnum hefur verið gert að greiða allhá gjöld til sýslu- og sýsluvegasjóða. Með þessari breytingu, sem nú hefur verið samþ. í Ed., er létt á hinum stærri kauptúnum talsvert að þessu leyti. Vitað er að þau þurfa að verja miklu fé til gatnagerðar, svo að þeim er auðvitað vorkunn. En þetta atriði má ekki eitt út af fyrir sig ráða því, hvort kauptún sækir um kaupstaðarréttindi eða ekki. Það er að vísu ekki sett undir allan leka með því að breyta þessu ákvæði, okkur er það fyllilega ljóst. En okkur er jafnljóst, að hv. alþm. verða að gera sér grein fyrir því að hafa þarf eitthvert taumhald á þeirri þróun sem orðið hefur á undanförnum árum. Það er að mínum dómi óæskileg þróun mála að kauptún, sem í raun og veru eru byggð upp af fólki úr aðliggjandi sveitum, segi skilið við umhverfi sitt af einhverjum ástæðum til þess að ná í kaupstaðarréttindi. En um þetta má margt fleira segja og er ástæða til að ræða það nánar síðar.

Að öðru leyti stefna ákvæði frv. að auknum tekjum sýsluvegasjóða, og er það vel svo langt sem þau ná að leysa vandann.

Ég ætla ekki að fara fleiri orðum um þetta mál, þó að fjöldamargt mætti um það segja. Mér er ljóst að tíminn er naumur og margt þarf að afgreiða, enda tóku nm. í samgn. þá afstöðu, þó að þeim væri þetta vissulega hjartans mál og þyrftu mörgu að velta fyrir sér í þessum efnum, að afgreiða þetta mál einróma. Það er aðeins einn nm. sem undirritar þetta nál. með fyrirvara. N. leggur því til, til þess að hraða þessu máli að nauðsyn, að það verði samþ. óbreytt eins og það kom frá Ed.