20.12.1976
Sameinað þing: 36. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1484 í B-deild Alþingistíðinda. (1163)

135. mál, frestun á fundum Alþingis

Forsrh. (Geir Hallgrímsson) :

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir till. til þál. um samþykki til frestunar á fundum Alþingis samkv. 23. gr. stjórnarskrárinnar, þess efnis, að Alþ. álykti að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 21. des. 1976 eða síðar, ef henta þykir, enda verði það kvatt saman á ný eigi síðar en 24. jan. 1977.

Með því að ég hygg að samráð hafi verið haft við forseta þingsins og forsvarsmenn þingflokka og samkomulag orðið um efni þessa máls, þá sé ég ekki ástæðu til þess að till. fari til meðferðar í þn., en óska þess að forseti og Alþingi fjalli um þessa till. og afgreiði hana.