20.12.1976
Sameinað þing: 36. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1532 í B-deild Alþingistíðinda. (1179)
1. mál, fjárlög 1977
Gylfi Þ. Gíslason:
Herra forseti. Við 2. umr. flutti ég nokkrar brtt. við fjárlagafrv. ýmist einn eða ásamt öðrum hv. þm. Allar till., sem ég flutti einn, tók ég aftur til 3. umr., og margar af hinum, sem ég flutti með öðrum, voru líka teknar aftur til 3. umr., allt í því skyni að hv. fjvn. gæfist kostur á því að hugleiða hvort hún vildi koma að einhverju leyti til móts við þennan tillöguflutning. Það gerði hún í nokkrum tilfellum og hefur þess þegar verið getið með þakklæti að það átti sér stað.
Ein till., sem við fluttum við hv. þm. Albert Guðmundsson, var um hækkun á fjárveitingu til sumarstarfs KFUM í Vatnaskógi. Við tókum þá till. aftur til 3. umr., en hv. fjvn. sýndi málinu þann skilning milli umr. að hækka fjárveitinguna til sumarstarfsins um 250 þús. kr. og endurflytjum við því till. ekki nú við 3. umr.
En mig langar til þess að fara örfáum orðum um þær brtt. sem ég flyt einn og hef endurflutt við þessa umr.
Hin fyrsta þeirra er um Leiklistarskólann sem gert er ráð fyrir að fái 18 millj. 590 þús. kr. til launagreiðslna og 6 millj. til þess að greiða önnur rekstrargjöld. Leiklistarskóli Þjóðleikhússins hefur búið við mikinn fjárskort undanfarið og ekki getað tekið við nýjum nemendum nú um nokkurt skeið. Hann óskaði eftir 19 millj. 590 þús. kr. til launagreiðslna og 7 millj. til þess að greiða önnur rekstrargjöld, og er þessi fjárveiting lágmark þess sem hann þarf á að halda til þess að unnt sé að reka hann með eðlilegum hætti.
Ég flyt einnig brtt. um að fjárveiting til Rithöfundasambands Íslands verði hækkuð úr 200 þús. kr. upp í 1 millj. Rithöfundasambandið ritaði hv. fjvn. bréf sem ég leyfi mér að vitna til — með leyfi hæstv. forseta. Þar segir formaður Rithöfundasambandsins, Ingimar Erlendur Sigurðsson, fyrir hönd sambandsins:
„Rithöfundasamband Ísands hefur undanfarin ár fengið 100 þús. kr. á ári samkv. fjárl. til starfsemi sinnar. Þetta eru einu tekjur sambandsins að undanskildum félagsgjöldum og hrökkva ekki fyrir skrifstofukostnaði, enda hefur sambandið orðið að loka skrifstofu sinni hálft árið.
Næsta vor verður ársfundur Norræna rithöfundaráðsins haldinn á Íslandi, en hann var hér síðast árið 1970. Til að mæta kostnaði fer Rithöfundasamband Íslands þess á leit við hv. fjvn., að fjárframlög ríkisins verði hækkuð úr 100 þús. kr. í 1 millj. kr.
Rithöfundasamband Íslands er eitt fátækasta stéttarfélag landsins, en gegnir afar mikilvægu menningarhlutverki. Óþarft er að taka fram, að raungildi fjárframlags ríkisins til starfsemi sambandsins er nú orðið sama og ekkert sökum verðbólgu.“
Svo mörg eru þau orð. Ég hygg að varla geti leikið á tveim tungum, að íslenskir rithöfundar hafa orðið þjóð sinni til slíkrar sæmdar og eru henni svo nytsamlegir að þeir eiga þessa fjárveitingu sannarlega skilið.
Þá flyt ég till. um að hækka styrk vegna alþjóðaskákmóta úr 600 þús. í 2 millj. Enginn ágreiningur er um það hversu nytsöm íþrótt eða nytsöm list skákin er, og öllum er kunnugt til hversu mikils sóma íslenskir skákmenn hafa orðið þjóð sinni á erlendum vettvangi. Það færist stöðugt í vöxt að þeir taki þátt í skákmótum erlendis og að alþjóðleg skákmót séu haldin á Íslandi. Þessi starfsemi er því sannarlega styrks verð.
Þá flyt ég till. um aukinn styrk til Neytendasamtakanna úr 750 þús. kr. í 2 millj. Eitt af því, sem miður fer að því er snertir kjaramál launþega, er það hversu Neytendasamtökin eru veik og hafa litla aðstöðu til þess að verða neytendum að því gagni sem slík samtök geta orðið. Orsökin er fyrst og fremst fjárskortur Neytendasamtakanna. Því fé, sem varið yrði til þess að efla þau og styrkja, yrði vel varið og mundi tvímælalaust koma að miklu gagni.
Þá flyt ég till. um að auka framlag til byggingar sjúkrahúsa o. fl., þ. e. a. s. til byggingar B-álmunnar við Borgarspítalann hér í Reykjavik. Til þessa eru ætlaðar í fjárl. aðeins 15 millj. kr., en Reykjavíkurborg hefur óskað eftir 45 millj. kr. í þessu skyni og er síst of mikið. Þó að ég vilji engan veginn vanmeta þörfina sem er á byggingu fyrir geðdeildina, þá vil ég leggja áherslu á að það er ekki síður þörf á að hraða byggingu B-álmunnar við Borgarsjúkrahúsið í Reykjavík. Í raun og veru kann ég aðeins eina skýringu á því að til þessarar stórkostlegu nytsömu framkvæmdar séu aðeins ætlaðar 15 millj. kr., og hún er sú, að Reykjavík á engan fulltrúa í fjvn. Það kemur hér í ljós, eins og oft áður á undanförnum árum, að hagsmunir Reykjavíkur eru bornir fyrir borð með alvarlegum hætti í fjvn. Segi ég þetta ekki sérstaklega til þess að deila á meiri hl. n., heldur á n. í heild. Á þessu þarf að verða breyting á næstu árum. Það má ekki lengur við svo búið standa að stærsta kjördæmi landsins, þar sem býr upp undir helmingur landsmanna, eigi engan fulltrúa í þessari langmikilvægustu n. þingsins. Hér er eitt dæmið um skaðlega afleiðingu þess að svo á sér stað að þessari byggingu, sem þarna er um að ræða, skuli ekki vera sinnt með hærri fjárhæð en 15 millj. þegar minnst þarf þrefalda þá fjárhæð til þess að sómasamlega sé að málum staðið.
Að síðustu vil ég aðeins nefna eina till. sem ég flyt ásamt einum öðrum þm., Jóni Árm. Héðinssyni. Við 2. umr. fluttum við brtt. um að Æskulýðssambandi Íslands væru veittur 800 þús. kr. styrkur. Í fjárlagafrv. er Æskulýðssambandinu sjálfu enginn styrkur ætlaður, heldur eru Æskulýðsráði ríkisins ætlaðar 4.1 millj. kr. Þessi till. mun ekki hafa fengið undirtektir í hv. fjvn. og þess vegna vildum við freista þess nú við 3. umr. að flytja varatill. við þessa brtt„ sem sé um að framlagið til Æskulýðsráðs ríkisins verði lækkað um 500 þús. kr., þ. e. a. s. í 3.6 milli. kr., en Æskulýðssambandinu tryggðar 500 bús. kr. af þessu fé, það sé beinlínis tekið fram að af því, sem stendur í frv., 4.1 milli., séu 500 bús. kr. sérstaklega til Æskulýðssambands Íslands. Hygg ég að ekki verði annað sagt en að þessi varatillaga hafi við fulla sanngirni að styðjast.
Ég skal ekki orðlengja um þessar till. vegna þess hve áliðið er orðið kvölds, en læt þetta nægja til rökstuðnings fyrir þessum tillöguflutningi.